Færsluflokkur: Bloggar

HELGIN :)

Já nú er ein enn helgin á enda og var mikið að gera hjá okkur þessa helgina, Kristinn og krakkarnir fóru til VEJLE á föstudaginn að hjálpa Bergþóru & CO að flytja ég var á kvöldvakt svo ég kiki bara seinna á húsið Wink á laugardaginn var Margrét Svanhildur að keppa í handbolta og spiluðu þau 2 leiki annar fór 7-6 fyrir hinum og sá seinni fór 17-1 fyrir Margrétar liði og skoraði hún 5 mörk Grin pabbinn var VEL  stoltur af sinni þegar þau komu heim. Ég fór svo á kvöldvakt og þau tóku spólu sem ég ætlaði nú að horfa á með þeim og hafa kósý þegar ég kom heim kl:21 en ég sofnaði nú fljótlega þar sem ég var VEL þreytt eftir vaktina en við vorum undirmannaðar og íbúarnir frekar órólegir Blush Í gær var baðherbergið tekið í gegn fyrir jólin, við klipptum Bjarna Harald  og er hann voða fullorðinslegur núna en hann var kominn með svo síðann topp að sá varla út svo nú er hann kominn stuttan og fínan topp Wink ROSA SÆTUR. Ég fór svo aftur á kvöldvakt.Þegar ég kom heim sá ég að Kristinn hafði verið í stuði með klútinn á lofti og var búinn að taka til og þrífa í bryggelsinu(forstofa og þvottahús) svo nú er það líka komið í jólafötin, það er nú munur að eiga svona duglegan mann InLove 

Þegar Bjarni Harald vaknaði í morgun vildi hann nú lítið tala við mig Frown greynilega að mótmæla vinnutíma mínum þessa helgina Frown mig langaði nú mest að hafa hann heima í dag en þar sem ég algjörlega búinn eftir þessa vinnutörn þá ákvað ég að hugsa aðeins um mig og litla kúlubúann og hvíla mig í dag.É á svo ekki kvöldvakt aftur fyrr en eftir ca mánuð svo sá stutti ætti nú að geta fyrirgefið mér Wink

Ég setti inn oktober myndir á barnalandið kikið á það  Kissing

 

 


NÚ VERÐIÐ ÞIÐ SKO HISSA :)

Já nú er svo langt síðan ég blogaði síðast að það eru meira að segja STÓR fréttir af familiunni Wink en þannig er mál með vexti að við hjónakornin ákváðum að stækka familiunna okkar og gekk það plan svo vel að við eigum von á litlu kríli þann 6 Maí = ég er kominn 14 vikur á leið Grin við erum að sjálfsögðu mjög hamingjusöm með þetta og er stórasystirin í SKÝJUNUM Smile Við fórum í sónar í síðustviku og lítur allt vel út og krílið stækkar vel Grin Þið hélduð kannski að við værum hætt þar sem við tilkynntum það þegar Bjarni Harald var nýfæddur en maður má jú alltaf skipta um skoðun EKKI SATT.

Ég er búin að vera ótrúlega hress og hef enga ógleði eða slappleika verið með Grin svo ég svíf bara um.

Það er nú aðeins farið að sjá á mér enda ekki langt síðan síðasta kúla hvarf, en þið ættuð að fá að sjá stóra og fína kúlu um jólin Wink 

Annars er bara allt við það sama hér vinna skóli og dagmamma, allir eru hressir og kátir í haustinu í DK

Hef ekki meira að segja núna annað en KVITTA TAKK 


VINNA VINNA OG VINNA :)

Ég er nú í fríi í dag og á morgun en ég er búin að vinna frá fimmtudag til mánudags svo það er fínt að fá frí í 2 daga núna Wink ég kann rosalega vel við mig þarna og er bara hæstánægð.

Dagmömmumálin eru þvímiður enn í kaós en kommunen hafði lofað okkur gestadagmömmu frá gærdeginum (lofað á föstudaginn) en svo kl:6:20 í gærmorgun hringdi síminn og þá var okkur sagt að þessi gestadagmamma væri í fríi og við gætum farið með hann til einhverrar annarar og eitthvað annað í dag NEI TAKK Kristinn var sko ekki kátur og lét hana aðeins heyra það og hún lofaði að finna FASTA gestadagmömmu þangað til June verður frísk og mun konan hjá kommunen hringja á eftir og láta okkur vita hvernig þetta verður. Við neitum algjörlega að láta hann bara hingað og þangað maður verður líka aðeins að hugsa um hann og að honum líði vel. En ég reddaði þessu í gær með að hringja í mömmu vinkonu Margrétar en hún var búin að segja mér að hún væri í fríi svo að hún tók hann í gær (hann þekkir hana vel) þetta gekk rosalega vel og var hann alsæll með þetta . En gærkvöldi var hann síðan mjög ólíkur sjálfum sér og grét útí eitt kom svo í ljós að hann var með 38 í hita og greynilega með beinverki, hann er líka ROSALEGA kvefaður Blush hann svaf EKKI mikið í nótt og mátti ég fara með hann fram um 4 leitið og þá sofnaði hann í fanginu á mér. Hann var nú samt hressari áðan og var hitalaus en kvefaður en ég ákvað nú að láta hann út að sofa (sefur best úti) enda er hann vel dúðaður svo honum ætti ekki að verða meint af því ,bara gott að vera í frísku loftinu Wink  

Ég vona svo bara að hann hressist á morgun og geti farið til dagmömmu á fimmtudaginn og ég í vinnu Wink en við verðum bara að bíða og sjá hvernig hann verður.

Jæja læt þetta duga í bili knús RAGNA og allir hinir 


HÚSFRÚIN BYRJUÐ AÐ VINNA :)

Ég ákvað hér á mánudagskvöldið að rölta yfir til nágrannans (fyrrverandi yfirmanns minns) og spyrja hana hvort hana vantaði ekkert starfsfólk en hún er yfirmaður á 2x deildum á nýju hjúkrunarheimili hér rétt hjá. Hún hringdi svo í mig í gærmorgun og bauð mér í viðtal og ég byrjaði að vinna í dag Grin ég er ráðinn sem föst afleysing á báðum deildunum og mun fá 32 tíma á viku og mun vinna frá 8-15 virka daga og 8-14 um helgar en ég mun vinna aðrahvora helgi sem er ok þegar maður er búinn kl:14 Wink ég var á aldsheimer deildinni í dag og leist mér mjög vel á þetta og féll ég strax inní hópinn Grin ég er bara svo ánægð að vera komin með fasta vinnu að þið trúið því ekki Grin það var engar vaktir að fá hjá hinum þar sem ég var búin að ráða mig og maður hefur ekki efni á að sitja heima við símann og bíða maður fær ekki há laun fyrir það.

En þetta byrjaði vel eða með því að kommunen hringdi í morgun og tilkynnti að dagmamman hans Bjarna Haralds væri kominn í veikindafrí því hún datt niður tröppur og slasaði sig í bakinu TÝPÍSKT svona fyrsta vinnudaginn minn Blush  en Kristinn reddaði þessu og var heima í dag og verður líka heima á morgun svo megum við sjá hvað gerist í næstu viku. Núna væri gott að hafa ömmu eða afa hér til að hlaupa í skarðið Errm en svona er þetta og ég gat ekki annað en hlegið í morgun þar sem það hefur EKKERT verið þar til núna og þá endilega þegar ég er loksins komin með vinnu.

Jæja ætla að slaka aðeins á meðan guttinn sefur  BÆJÓ Kissing


ÆÐISLEG ÞÝSKALANDSFERÐ :0)

Við áttum yndislegan tíma með Karin og Tobi í þýskalandi um helgina. Þetta var bara afslöppun,smá innkaup og borðaður góður matur Wink Margrét Svanhildur naut sín í botn eins og alltaf þegar við erum hjá þeim og hún og Karin spiluðu frá sér allt vit LoL og skemmtu sér konunglega saman og hlógu mikið Grin  Bjarni Harald var líka í essinu sínu og skoðaði allt í krók og kima hjá "oma og opa" honum líkaði VEL við þýska matinn og borðaði á við 3 Tounge   

Krakkarnir voru bæði alsæl að fara af stað í morgun og var litli kúturinn ánægður að sjá June sína (enda búinn að vera í fríi í 4 daga ) Wink Hann er í "legestuen" í dag en þá hittast 3 dagmömmur úr hverfinu og eyða deginum saman þær eru með aðtöðu í klúbbhúsinu hjá skólanum og eru þar alla mánudaga.

Við Margrét erum búnar að gera 39 jólakort og eigum því aðeins 11 eftir Wink svo þetta gengur vel hjá okkur þetta árið.

Kristinn er á námskeiði útí VEJLE í dag og á morgun svo hann fær aðeins að keyra smá þessa dagana en hann er á bíl frá vinnunni svo ég hef bílinn heima.

Við viljum að lokum óska BIRTU HULD vinkonu Margrétar ynnilega til hamingju með daginn á föstudaginn og vonum að þú hafir átt góðann dag í gær InLove Svo á hann LEONARD (kærasti Svanhildar)  afmæli í dag og segjum við því HAPPY BIRTHDAY við hann og vonum að hann eigi góðann dag í dag InLove


GÓÐANN OG BLESSAÐANN DAGINN :)

Við áttum fína helgi hér í ADV 25 við fórum í smá bíltúr á laugardaginn til að kaupa ost handa Karin en hún er mikið fyrir STERKA danska osta og við komum alltaf með minnsta kosti einn þegar við förum til þeirra Smile Kristinn kláraði svo að mála bílskýlið og er ALLT annað að sjá þetta Wink svo höfðum við videokvöld.

Á sunnudaginn var Kristinn að vinna og Bergþóra kíkti í kaffi með strákana svo við Margrét skelltum í súkkulaði köku Tounge TAKK aftur fyrir komuna vinkona það er alltaf svo gaman að fá þig í smá spjall Kissing

Við mæðgur vorum ótrúlega duglegar í gær og gerðum 11 jólakort Margrét kom mér ekkert smá á óvart hvað hún er góð í þessu Kristinn átti sko erfitt með að finna út hver gerði hvaða kort í gær HEHE og fannst skvísunni það sko ekki leiðinlegt Grin hún er svo dugleg og henni fannst virkilega gaman að föndrast með mömmu sinni og það var nú óskup lítið sem ég þurfti að hjálpa henni hún bjargaði sér sko bara sjálf Wink nú erum við strand þar sem okkur vantar bæði kort og límpúða svo við verðum að gera okkur ferð í bæinn á morgun og versla það. 

Við ætlum að kikja í kaffi til Anette á eftir þegar við erum búnar að sækja litla kútinn.

Jæja ætla að fara að kúra í sófanum hjá skvísunni minni (hún kann sko að vera í fríi og liggur núna og horfir á DVD) LoL

KNÚS OG KRAM Ragna 


FJÓRFÆTLINGURINN OKKAR Á AFMÆLI Í DAG

Hann Bangsi er 5 ára í dag svo ætli ég verði ekki að vera extra góð við hann í dag Wink

Annars er bara allt við það sama hér Kristinn að vinna, Margrét Svanhildur í skólanum ,Bjarni Harald hjá dagmömmunni og ég heima að þrífa HEHE nei ég er nú kannski að þrífa alla daga húsið okkar er jú ekki SVO stórt Tounge en ég er nú samt búin að vera dugleg að gera fínt hjá okkur, ég þreif td eldhúsinnréttinguna í gær að innan og utan Grin en það er jú nóg af verkefnum hér handa mér svo dagarnir líða hratt Wink Bjarni Harald er alltaf jafn ánægður hjá henni June og er þetta bara að ganga ótrúlega vel með hann (mikill léttir fyrir mig) það er svo mikill munur að skilja við barnið sitt brosandi en ekki á öskrinu eins og systir hans var stundum Blush það var alveg hræðilegt að skilja hana við sig hún öskraði og grét úr sér lungun svo hringdi ég kannski 1/2 tíma síðar til að athuga með hana þá var hún hæstánægð að leika svo hún var bara að láta reyna á mömmu sina Wink 

Margrét er svo í fríi alla næstu viku og ætlum að við að dúlla okkur hér heima bara 2 mán,þri, og miðvikudag en svo er dagmamman í fríi fim og föstudag , Kristinn er svo í fríi á föstudaginn og við ætlum að drífa okkur til Karin og Tobi í þýskalandi (systir pabba) en það er alltof langt síðan við fórum síðast til þeirra ég held það hafi verið í april FootinMouth svo það er alveg kominn tími á að fara að hitta þau, við ætlum að vera hjá þeim frá fimmtudegi fram á laugardag Wink og hlakkar okkur mikið til að hitta þau og líka bara breyta aðeins um umhverfi.

Okkur mæðgum hlakkar nú líka til að eiga smá tíma bara 2 og ætlum við að bretta upp ermarnar og klára jólakortin Smile en ég er búin með 20 og á þá 30 eftir.Margrét er orðin svo dugleg og vandvirk að hún getur vel hjálpað mér.

Læt þetta duga í bili GÓÐA HELGI og reynið nú að vera bjartsýn þrátt fyrir erfiða tíma heima á Íslandi InLove


HELGIN

Jæja þá er þessi helgin á enda og aftur kominn mánudagur.

Við gerðum nú ekki mikið þessa helgina eða réttara sagt gerði ÉG ekki mikið, þar sem  á föstudagskvöldið helltist yfir mig hálsbólga beinverkir og hiti síðan um nóttina Blush ég lá eins og klessa í sófanum allan laugardaginn og reyndi að sofa. Kristinn fór með krakkana í bæinn og keypti handboltaskó og hnéhlífar fyrir Margréti og nýtti ég tímann í að SOFA.

Kristinn var svo að vinna í gær og ég var búinn að lofa Margréti bioferð og búinn að fá barnapíuna til að koma svo ég skellti mér í BIO og við tókum Jóhönnu vinkonu Margrétar með. ég var nú mun hressari svo þetta var bara fínasta bioferð en við fórum að sjá FAR TIL FIRE( pabbi 4 barna) þetta er svona grínmynd en ég held að þetta hafi verið 3 eða 4 myndin sem er gerð og eru þær allar rosa góðar Smile svo við skemmtum okkur konunglega. Þetta var fyrsta skiptið sem barnapían passaði og gekk það mjög vel og kúturinn alsæll með þetta. 

Hann er ennþá alsæll hjá dagmömmunni og prófaði að sofa einn lúr hjá henni í morgun og gekk það vel. Hann knúsar hana og allt þegar við mætum á morgnanna HEHE hann er svo mikill krúsukall Grin

Hún er ekkert smá ánægð með hann enda ekki annað hægt þegar hann byrjar daginn á að sjarma hana með knúsi HEHE Tounge

Ég veit ekki alveg hvað hann Bjarni Harald þykist geta en hann er farinn að standa upp útá miðjugólfi án þess að stiðja sig við eitt né neitt og vaggar hann fram og til baka og dettur svo á bossann hann er líka farinn að gangameðfram sófanum og færir sig yfir á sófaborðið Margrét var sko EKKI svona köld HEHE kannski er þetta munurinn á stelpu og strák ?? annars eru börn jú svo rosalega ólík.

Jæja ég var að setja inn myndir á hina síðuna og þið megið alveg kvitta bæði hér og þar InLove


Bjarni Harald byrjaður hjá dagmömmu

Já prinsinn okkar er byrjaður hjá henni Juun, það var fyrsti dagurinn í dag og gekk mjög vel, hann var einn í tæpa 2 tíma og var bara alsæll að leika sér og fylgdist VEL með hinum börnunum Wink Mér fannst frekar skrítið að skilja hann eftir fyrsta daginn en það er jú alltaf erfitt að skilja barnið sitt eftir á nýjum stað. Ég er bara svo ánægð hvað þetta gekk vel hann fór ekki einu sinni að gráta þegar ég hvaddi hann (greynilega alsæll að komast út að leika með öðrum) Wink en jiminn hvað hann var þreyttur þegar ég sótti hann, hann var alveg stjarfur í bílnum á leiðinni heim og rotaðist um leið og ég lagði hann út og svaf eins og grjót í 2 1/2 tíma Sleeping hann er farinn aftur út núna og STEINSEFUR Sleeping þetta eru jú mikil viðbrigði fyrir hann þegar hann er búinn að vera einn heima með mér í rólegheitum alla daga.

Annars  er bara allt gott af okkur að frétta. Það er komið haust og farið að kólna og rigna í miklum skúrum. Okkur er strax farið að hlakka til að koma heim um jólin og Margréti finnst ANSI LANGT þangað til við förum en tíminn er svo fljótur að líða að 17 des rennur upp áður en við vitum af Wink

Jæja nóg í bili en þið megið alveg kvitta sko það er ekkert bannað InLove


KÓSÝ HELGI :)

Við erum búin að eiga mjög fína og rólega helgi hér í DK. Á föstudagskvöldið var Kristinn með POKERKVÖLD hér heima , en við krakkarnir kiktum á eina hér í götunni en við vorum 3 sem hittumst með krakkana og var það mjög fínt.   Á laugardaginn var farið á bókasafnið og verslað í matinn, farið heim og hent í kanilsnúða, þegar litlikúturinn var búinn að leggja sig og fá sér smá að borða var farið í göngutúr og haustveðrinu síðan var horft á DVD sem Margrét tók á bókasafninu.  Í gær var síðan slakað á til að byrja með og síðan skelltum við okkur í sund svo elduðum við PURUSTEIK NAMMI NAMM Grin  

Kristinn klippti Margréti á laugardaginn og tókst honum bara vel til og er skvísan ALSÆL með "nýja" hárið Smile hann ætlaði nú að klippa mig líka en guggnaði á því þar sem ég er með svo liðað hár og kannski pínu erfiðaðra að klippa það.

Bjarni Harald er alltaf jafn hress og kátur og fer um allt Margrét er farin að loka inn til sín á morgnanna þegar hún fer í skólann. En honum finnst mest spennandi að fara inn til hennar eða inn á bað svo þessar 2 hurðar eru yfirleitt lokaðar núna.

jæja hef ekki meira að segja í bili BÆJÓ 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband