Færsluflokkur: Bloggar
Fimmtudagur, 15. janúar 2009
VEIKINDI OG AFTUR VEIKINDI :(
Þetta eru nú meiri veikindin á þessum bæ ég er ALVEG að vera búin að fá nóg sko EN á laugardaginn leist okkur ekkert á hljóðin í drengnum þegar hann dró andann og hann hafði hóstað svo mikið um nóttina að hann náði ekki andanum FREKAR ÓHUGGULEGT við ákváðum því að fara með hann á læknavaktina og viti menn hann er kominn með astma-bronkitis litla skinnið og þarf nú að fá lyfjapúst þegar hann fær slæm hóstaköst
Margrét rauk síðan upp í hita á laugardagskvöldið og var síðan OK á sunndaginn ,hundveik á mánudaginn OK á þriðjudaginn og svo aftur veik í gær, Bjarni Harald fór til dagmömmunnar í gær og Margrét Svanhildur í skólann í dag en þá er ég lökst í rúmið í staðinn
en ég er að DRUKKNA í kvefi með beinverki og niðurgang
ég vona nú að þetta gangi hratt yfir og við förum nú öll að vera hress
Það er voðalega lítið annað í fréttum af þessum bænum svo ég hætti bara í bili
PS ætla að reyna að skella inn desember myndum á hina síðuna á eftir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 9. janúar 2009
KOMINN BLOGGTÍMI
Við áttum alveg yndislegan tíma á Íslandi í faðmi fjölskyldna okkar og erum við öll alsæl með þessa ferð og þessi jólin þvímiður náðum við ekki að heimsækja marga í þessu stoppi enda var planið þetta sinnið að SLAPPA AF og vorum við dugleg í því. Við verðum bara duglegri í heimsóknum næst
Við fengum öll margar og fínar gjafir og voru allar töskur úttroðnar á "heim"leið en samt ekki yfirvigt
enda erfitt að sprengja yfirvigt þegar maður má vera með 70kg. Bjarni Harald svaf eiginlega allt flugið báðar leiðir svo það er ekki erfitt að ferðast með hann við mæðgur kiktum á video(vorum með ICELAND AIR) svo flugið leið hratt.
Margrét var alsæl að koma aftur í skólann og er hún búin að vera dugleg að leika með vinkonunum eftir skóla. Bjarni var líka nokkuð hress með að koma aftur til June og krakkanna en hann var pínu feiminn fyrst en var fljótur að hrista það af sér og stökkva í leikinn. Kristinn er búinn að hafa nóg að gera í vinnunni svo þessi helgin er kærkominn hjá honum, ég var að vinna í gær og hinn en var heima í dag með litla kútinn þar sem hann er fullur af kvefi og var með 38,5 í gærkvöldi hann er nú búinn að vera hitalaus í dag en er með ljótann hósta og mikið kvef vona bara að hann jafni sig um helgina.
Það er búið að bjóða okkur í afmæli á sunnudaginn hjá Rakel Talíu (í Aarhus) og vona ég að sá stutti verði orðinn hress svo við komumst öll
Jæja ætla að fara að gera pizzu bless í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 14. desember 2008
AFMÆLI OG LITLU JÓLIN
Í dag á húsbóndinn afmæli og er hann orðinn 31 árs "gamli kallinn" við ákváðum því að gefa hvort öðru jólagjafir og krakkarnir fengu gjafir frá okkur svo á að elda góðann mat og hafa það kósý í kvöld Bjarni Harald varð aftur veikur á fimmtudaginn en dagmamman "gleymdi"að setja hann í lopasokkana þegar hann fór út að sofa "það var frost" og var hann svo kaldur frá tám upp að hnjám að ég hef aldrei vitað annað eins hann var eld rauður og þrútinn af kulda ARRG hvað ég varð reið útí hana þegar ég sá þetta og þá var hann líka kominn með 39c í hita
og rauk uppí 40 um kvöldið, svo var hann slappur hér á föstudaginn og rauk uppí hita á föstudagskvöldið
hann er búinn að vera hitalaus í gær og í dag og krossum við bara fingur að það haldist þannig. Ég ætla svo aðeins að ræða við dagmömmuna á morgun og láta hana vita að við séum EKKI glöð með þetta. Kristinn er LOKS að hressast en þeir eru báðir MJÖG kvefaðir
Margrét stóð sig eins og hetja á miðvikudaginn á helgileiknum og vorum við SVO stolt af henni hún talaði mjög hátt og skýrt og var bara hin rólegasta í þessu.
Margrét fékk náttborð frá okkur í jólagjöf og eru þau núna að setja það saman, Bjarni fékk FICHER PRICE bóndagarð með fullt af dýrum og traktor og öðrum fylgihlutum og var hann alsæll með það
Best að fara að huga að matseldinni biðjum að heilsa öllum og sjáumst brátt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 9. desember 2008
JÆJA ALLIR AÐ HRESSAST
jæja þá er flensan loksins að fara að kveðja þetta heimilið Bjarni Harald er jú búinn að liggja í 8 daga svo það er kominn tími á að hann hressist. Kristinn lagðist svo á föstudaginn og ég á sunnudaginn en nú förum við öll af stað á morgun í vinnu og dagmömmu og Margrét Svanhildur í skólann en hún hefur sloppið við þessa flensuna enda er hún ekki mikið búin að vera heima.
Hún er svo að fara að sýna helgileik á morgun og er hún voða spennt fyrir því og er hún búin að læra textan sinn utanaf og kann öll lögin enda búin að æfa sig mikið.
Svo er bara kominn spenna í okkur enda bara vika í að við brunum til Kóngsins Köben við munum svo gista hjá Jökli og co eina nótt og svo liggur leiðin til Íslands á miðvikudaginn
Kristinn á afmæli á sunnudaginn og ætlum við að halda "jól" og borða góðann mat og opna pakka Margréti finnst sko EKKI slæmt að fá 2x jól HAHA
Jæja ætla að baða guttann það er svooo hressandi eftir svona veikindi að fara í bað ,BÆJÓ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4. desember 2008
ÞVÍLÍK FLENSA SEM LITLI KÚTURINN KRÆKTI SÉR Í :(
Hann Bjarni Harald er sko búinn að vera veikur en hann byrjaði með niðurgang á laugardagskvöld og og sunnudag en var ekkert slappur svo ég fór með hann til June á mánudaginn þar var hann eitthvað tuskulegur allan daginn og svo um kvöldið var minn byrjaður að hósta líka og um nóttina jókst hóstinn og hiti bættist við hann var mjög slappur allan þriðjudaginn og um nóttina fór hitinn í 41 takk fyrir og hóstinn versnaði mikið. Við fórum með hann til læknis í gær og voru teknar blóðprufur og hann skoðaður vel. Hann er með einhvern vírus sem hann á að vinna sjálfur á, í morgun vaknaði hann svo með augnsýkingu í báðum augum og enn með 38 -39 í hita. Hann er nú aðeins farinn að borða en er MJÖG slappur greyið. Þetta er eitthvað að ganga hjá dagmömmunni og var hún ekki með nein börn í gær þetta tekur um 5 daga að ganga yfir svo við vonum að hann hressist um helgina
Við hin erum hress og finnum eingin einkenni 7 9 13
jæja best að fara að hugsa um hann knús á alla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 30. nóvember 2008
kominn tími á smá blogg
jæja það er nú ekki mikið nýtt að frétta af okkur þessa dagana,vinna skóli og dagmamma Kristinn fór reyndar á smá skrall í gær en það var jólahlaðborð hjá TOYOTA og byrjaði það með siglingu kl:16 ég og Bjarni Harald vorum bara ein í kotinu í gærkvöldi en Margréti var boðið að gista hjá vinkonu hennar sem býr við hliðina á okkur. Við vorum búin að reyna og reyna að fá barnapössun svo að ég kæmist með en án árangurs (þakka gott boð Bergþóra
) en við Bjarni höfðum það bara kósý og fórum að sofa á kristilegum tíma
Kristinn er að vinna núna en hann vildi nú óska þess í morgun að hann væri í fríi þannig var nú heilsan á mínum
en hann lét sig hafa það og dreif sig af stað enda þýðir ekkert annað. Við mæðgur skruppum aðeins í bæinn í gær og versluðum nokkrar jólagjafir og erum við nú bara að verða búinn með þetta svo jólin geta bara komið HEHE
Jæja ég held ég hætti bara núna áður en ég fer bara að bulla og bulla og bulla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 25. nóvember 2008
JÆJA ÞAÐ ER BARA 1 Á LEIÐINNI :)
jamm það heyrdist í einu kríli í gær við vorum farin að svitna sko HEHE ljósan horfði bara á mig þegar ég kom og spurði svo hvort það væru 2 haha já ég er STÓR hehe kúlan mælist eins og ég sé komin 23 vikur, en ljósan vildi meina að þetta væri vegna þess að þetta er barn nr3 og svo stutt síðan síðast
svo ég verð eins og FÍLL þegar við komum um jólin HEHEHEHEHE vona að ég geti knúsað ykkur HAHAHA . Það leit allt vel út í skoðuninni, krílið sparkaði vel og mikið og hjartslátturinn mjög skýr
Vildi bara láta ykkur vita já ég var svo að setja inn myndir úr afmælinu KNÚSS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 24. nóvember 2008
ÁTTUM GÓÐANN DAG Á LAUGARDAGINN :)
Það er sko óhætt að segja að það hafi verið nóg að gera hér á bæ um helgina, ég var GERSAMLEGA búin á því eftir vinnuna á föstudaginn, en þurfti þá að sækja ungana mína fara að versla og svo heim að baka ÚFFÚFF ,Kristinn kom fyrst heim 17:30 þar sem hann hafði verið á námskeiði mið og fimmtudag þá beið hans bunki á borðinu hann á jú að vera búin 15 á föstudögum þegar hann kom loksins heim fór hann í Fötex að kaupa það sem ekki var til í Netto og svo fór hann sko barasta á MCDONALDS þar sem einginn nennti að elda þennan daginn
ég var svo að vinna 8-14 á laugardaginn og fyrstu gestirnir komu 14:30 og síðustu gestirnir fóru 20:30
en þetta var alveg yndislegur dagur Bjarni Harald var í essinu sínu (þegar hann loks vaknaði) og fékk hann súkkulaðiköku og smá M&M og það fannst honum SKO EKKI slæmt HAHA enda var ERFITT að ná barninu niður um kvöldið HANN DANSAÐI Í RÚMINU HEHEHE en hann var SVO þreyttur en bara gat EKKI slakað á
hann fékk mikið af fínum gjöfum og Margrét Svanhildur gerði kórónu handa honum sem hann var ALSÆLL með ég set inn myndir bráðum inn á barnalandið
ég var svo að vinna í gær 7 -14 og það er óhætt að segja að ég var þreytt í gærkvöldi og fór nú bara að lúlla kl:21
Ég er svo að fara til ljósunnar á eftir fyrsta skiptið á þessari meðgöngu og er ég voða spennt en það eru allir að segja núna að þetta hljóti að vera minnst 2 þar sem ég er kominn ca 17 vikur en lít út fyrir að vera kominn 24 eða eitthvað álíka svo ég er spennt hvað ljósan segir og hvort við heyrum í einu eða tveimur ég held nú samt að þetta að ég sé svona stór núna þar sem það er svo stutt síðan síðast og það sást jú bara 1 í sónarnum, en þær í vinnunni vilja nú meina að nr 2 geti falið sig á bakvið
svo við verðum bara að sjá hvað kemur í ljós á eftir.
Jæja best að fara að fá sér í gogginn BÆJÓ Ragna og KÚLAN
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 20. nóvember 2008
HANN Á AFMÆLI Í DAG HANN Á AFMÆLI Í DAG ........................
já það er ótrúlegt að litli prinsinn okkar er orðinn 1 árs tíminn líður sko ALLTOF hratt, ég er ekki að trúa því að það sé komið heilt ár síðan ég lá með hríðar niðri á spítala en JÚJÚ það er víst raunin Hann fékk 3 pakka í morgun, 1 frá systur sinni = 3 sæta bíla, 1 frá Svanhildi og CO = tré bíl, og einn frá Rúnari og CO = joey boxer náttföt TAKK FYRIR PRINSINN
svo fær hann pakkann frá okkur Kristni þegar Kristinn kemur heim í dag. Hann var nú mest spenntur fyrir pappírnum og skrautinu á pökkunum og er búin að leika mikið með það í dag HEHE svo fengum við okkur ristað brauð í morgun mat áður en Margrét fór í skólann og var hann ALSÆLL að fá frí frá hafragrautnum
Tannlæknaheimsóknin gekk vel en hann grét sárt þegar honum var skellt og skiptiborð og tannburstaður
en um leið og ég tók hann upp dró hann djúpt andann hló farman í tannlæknirinn og vinkaði bless HAHA greynilega búinn að fá nóg. Hún var mjög ánægð með tönnslurnar hans og hann fékk tannbursta og tannkrem í verðlaun var hann alsæll með það og sagði hátt og skýrt TAKK þegar hún rétti honum það
var hann voða montinn þegar við löbbuðum út með tannburstann í annarri og tannkremið í hinni BARA KRÚTT
Nú sefur afmælisbarnið úti í rokinu og er mamman að slaka aðeins á
Svo verður smá veisla á laugardaginn en Lisbet og krakkarnir koma og Aarhusbanden og Vejle liðið svo þetta verður vonandi góður dagur.
Jæja hætt í bili kossar og knús frá okkur öllum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 16. nóvember 2008
Vika síðan síðast
Já maður hefur nú aðeins minni tíma núna til að vera í tölvunni þessa dagana, en síðasta vika er búin að vera fín hjá okkur ég var í fríi mánudag og þriðjudag og svo vinna 3 daga og svo HELGARFRÍ já ég skrifa það með stórum þar sem þetta er fyrsta fríhelgin mín síðan ég byrjaði að vinna. Við fórum í bæinn á fimmtudaginn og dressuðum krakkana upp fyrir jólin í H&M og verða þau aðal pæjan og aðal töffarinn þessi jólin en við fundum rosa fín föt á þau og erum sátt við þau kaup, síðan voru keyptar nokkrar jólagjafir
Margrét keypti líka afmælisgjöf handa bróður sínum. í gær vorum við bara heima að hafa það kósý, gerðum ostaköku og settum í frysti (fyrir afmælisveisluna næsta laugardag) í dag er Kristinn að vinna og við Margrét bökuðum eina smákökusort og Margrét gerði RICECRISPES kökur fyrir afmælið.
Það er frekar leiðinlegt veðrið núna RIGNING OG ROK og er því BARA kósý að vera heima hjá sér með kertaljós og kósýheit
Bjarni Harald er svo heppinn að hann fer til tannlæknis á afmælisdaginn sinn en hér í DK eru öll börn boðuð til tannsa þegar þau eru 1 árs, ég er í fríi á fimmtudaginn svo hann verður í fríi á afmælisdaginn sinn og heimsækir tannsa, ég vona bara að það gangi vel en ég er ekki alveg að sjá hann fyrir mér opna munninn vel svo að hún sjái tennurnar almennielga en það kemur í ljós allt saman
TAKK FYRIR SENDINGUNA ELSKU RÚNAR, HARPA OG SALKA RANNVEIG hann fær nú samt ekki að opna fyrr en á fimmtudaginn og munum við hringja þá og heyra í ykkur
kveð í bili ætla að skella nautasteik í ofninn NAMMI NAMM
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)