Færsluflokkur: Bloggar
Miðvikudagur, 3. júní 2009
DRENGJAKORINN ADV 25
Ja vid erum svo heppinn her a bæ ad vid eigum okkar eigin drengjakor en thegar Simon Mikael grætur mikid byrjar Bjarni Harald lika og tha syngja their fallega saman i kor.
Margret Svanhildur var ad keppa a meistaramoti i fotbolta a sunnudaginn og lentu thær i 4 sæti af 16
Simon Mikael er ENN mjog ovær en eg var med hann hja doksa og er med "kolik"veit ekki hvad thad heitir a islensku en thetta er semsagt maginn og mikid loft i honum sem angrar hann en hann thyngist vel og er ordinn 5,3 kg og 58cm svo hann vex vel
en nu er hann byrjadur i orga a mat svo lengra verdur thetta ekki ad sinni BÆJO
PS talvan vildi ekki skipta yfir a islenskt lyklabord :(
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 29. maí 2009
Síðan síðast
Já það er ekki mikið um blog þessa dagana þar sem það er einfaldlega ekki tími til að sitja í tölvunni.
Við fórum í afmæli hjá Kristófer og Kormáki (Bergþóru & co) á laugardaginn og var það rosa fínt Takk aftur fyrir okkur þetta var rosa fínn dagur
Svo er nú ekki mikið í fréttum allir eru hressir og kátir fyrir utan að Símon Mikael prófar raddböndin ansi mikið þessa dagana en hann er MJÖG órólegur greyið og greynilegt að maginn er að angra hann greyið vona nú að það fari að lagast svo við mæðginin getum farið að sofa aðeins meira, en hann vaknar á 1/2 tíma fresti á daginn og 2 tíma fresti á nóttunni svo ég er að verða ansi þreytt
en Kristinn er nú dugelgur að taka hann þegar hann kemur heim svo ég geti nú aðeins sinnt hinum 2
Jæja þá er 1/2 tíminn líðinn og Símon vaknaður svo ég kveð að sinni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 20. maí 2009
Týndar í skóginum :(
Á föstudaginn síðastliðinn ákvað ég að labba og sækja Bjarna Harald, Margrét fór með því ég keyri jú ekki 2 vagna í einu. EN þar sem ég er svooooo ratvís tókst okkur að villast á leiðinni maður þarf að fara í gegnum skóg á leiðinni og við villtumst þetta líka rosalega í skóginum að við vorum 1/2 tíma að finna rétta leið
við fórum í endalausa hringi en aldrei sama hringinn samt úff hvað þetta var óþæginlegt og PIRRANDI
við duttum svo niður á mann sem fylgdi okkur þar til ég þekkti mig, ég var aðeins of sein að sækja Bjarna en það var OK þar sem ég hafði hringt úr skóginum (alltaf gott að hafa gsm með í skógarferðir) HEHE Kristni fannst þetta nú bara fyndið og mun hann stríða mér með þessu næstu mánuðina
Margrét fór svo til THEM og gisti þar í íþróttahúsi með bekknum sínum og skemmti hún sér mjög vel þar. Við vorum annars bara heima í róleghietum um helgina og Kristinn var að vinna á sunnudaginn.
Ég fór svo í mömmuhóp í gær og líst bara vel á kellurnar í honum við erum 7 á aldrinum 29 - 43 svo þetta er fjölbreyttur hópur, við erum 4 sem eigum fleirri en 1 barn og 2 sem eigum 3 svo það verður mikið spjallað hjá mér á þriðjudögum HEHE
jæja Símon Mikael er að vakna svo ég kveð að sinni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 14. maí 2009
Búin að eiga yndislegan tíma...
með mömmu og pabba Takk aftur fyrir allt og alla hjálpina í húsverkunum
Við náðum í þau í Aarhus en Kristinn reddaði þeim bil frá Köben svo keyrðu þau til Aarhus og við sóttum þau þar, laugardeginum var svo eytt í bíltúr til Ebeltoft og smá sætsýn um sveitaveigina sunnudagurinn var brara heima dagur, kallarnir voru duglegir í garðvinnunni og við kellurnar vorum að bardúsa ýmislegt innan dyra ásamt því að liggja í sólbaði
Á mánudaginn fórum við svo öll í bæinn með strætó og var pínu eytt þar, ég var dressuð upp af mömmu og pabba (afmælisgjöf )
og Margrét Svanhildur verslaði slatta á sig en hún átti pening frá afmælinu sínu og vildi kaupa sér föt fyrir það. Bjarni Harald svaf nú allan bæjartúrinn en það var verslað líka á hann
Símon Mikael er búinn að fá svo mikið af fínum fötum og vantar ekkert í augnablikinu svo hann fékk ekkert í þetta skiptið. Mamma og pabbi voru nátturlega með fullar töskur af gjöfum (eins og alltaf)
og voru öll börnin dressuð upp af þeim
þriðjudaginn var ég bara heima með mömmu,pabba,Bjarna og Símoni, mamma og pabbi skruppu reyndar á efnaútsölu og gerðu góð kaup þar (ekki slæmt að detta niður á það) svo var leikrit í skólanum hjá Margréti og fórum við þangað kl:17 Margrét Svanhildur var í 2 atriðum,hún var fyrst prinsessa í öskubuskukjól og svo var hún í dansatriði en þær voru 4 sem dönsuðu við MONEY MONEY með ABBA, hún stóð sig eins og hetja og vorum við ekkert smá stolt af henni
Mamma og pabbi tóku svo lest héðan frá Silkeborg í gær og átti Margrét frekar erfitt með að kveðja þau en hún er búin að vera með MIKLA heimþrá uppá síðkastið litla skinnið ég vona að það fari að lagast það er svo erfitt að sjá hana svona leiða
Bjarni Harald var alsæll að hafa ömmu sína og afa og var sáttur með að vera úti alla daga með afa sínum að bardúsa í garðinum
Símon Mikael er farin að sofa betur á daginn og borðar og borðar og stækkar og stækkar.
Jæja bless í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 7. maí 2009
Loksins gefst mér tími.....
til að blogga smá en þar sem hann Símon Mikael er ekkert of duglegur að sofa á daginn og þá gefst mér nú ekki mikill tími til afslöppunar í tölvunni
en hann sefur sem betur fer ágætlega á nóttunni.
Við buðum Bergþóru & CO í hádegisgrill og kaffi á sunnudaginn í tilefni afmæli Margrétar Svanhildar, þetta var mjög góður dagur og Bergþóra var dugleg að stússast í Símoni Mikael TAKK aftur fyrir kommuna það er alltaf gaman að fá ykkur
Ég var svo með litla kútinn hjá lækninum í morgun og er hann nú aðeins búinn að léttast, hún vildi meina að hann sé ekki að fá nóg að borða og sagði mér að fara að gefa honum stærri máltíðir(þá fer hann kannski líka að sofa betur ) annars var hún bara ánægð með hann. Ég á svo að mæta aftur með hann eftir 2 vikur í vigtun.
Ég er byrjuð á námskeiði hjá kommununni en þetta er svona námskeið fyrir nýbakaðar mömmur, og felst í að aðstoða mann í að léttast og halda vigtinni. Við munum hittast í 1 ár og kílóin eiga að fara hægt og rólega
Svo fékk ég líka bréf í morgun um að ég er komin í mömmuhóp og byrjar það 19 maí þá verður nóg að gera hjá mér og Símon Mikael, mömmuhittingur á þriðjudögum og námskeið á miðvikudögum
Mamma og pabbi eru að koma til okkar á morgun og ætla að vera hjá okkur í 5 daga. Okkur hlakkar öllum MIKIÐ til að fá þau. Margrét Svanhildur er líka svo ánægð því þau ná að sjá hana sýna leikrit á þriðjudaginn
Jæja ég þarf að fara að sækja Bjarna Harald bless í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 28. apríl 2009
Frumburðurinn átti afmæli í gær.....
Já hún Margrét Svanhildur er orðinn 9 ára skvísa, þar sem við vorum netlaus í gær kom einginn afmælisfærsla hér inn á afmælisdaginn hennar svo nú er ég búin að bæta úr því
Hún hélt afmæli fyrir stelpurnar úr bekknum á sunnudaginn í Aqua og gekk það vonum framar, þetta var mjög skemmtilegur og velheppnaður dagur og hún var alsæl með daginn. Bjarni Harald var í essinu sínu,hljóp fiskibúranna á milli og klýndi andlitinu upp að glerinu, svo hékk hann á handriðinu þegar otrarnir fengu að borða eitt bros í framan HAHA það var yndislegt að fylgjast með honum, hann naut sín sko alveg í botn og brosti eyrnanna á milli.
Prinsessan fékk svo afmælisköku í gær og hún fékk að ráða kvöldmatnum og varð kínamatur fyrir valinu hjá henni
Hjúkkan kom svo aftur í gær og er hún hæst ánægð með Símon Mikael, hann er orðinn 3,5 kg og 51,5cm svo hann dafnar vel og er kominn með bollukinnar og ættarsvipinn frá mér undirhökuna flottu
Jæja nú kallar prinsinn á mat en hann sefur úti í vagni í 1.sinn
bless í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 22. apríl 2009
Simon Mikael 3 vikna í dag
Já litli snúðurinn okkar er 3 vikna í dag , hann er orðinn tæp 3 kg og dafnar vel. Hann mætti nú samt sofa aðeins betur á daginn svo mamman komi einhverju í verk en hann sefur vel á nóttunni svo það er best að vera ekkert að hvarta
Annars er bara lítið í fréttum núna allir eru hressir og kátir og sumarið að koma, spáin hljóðar uppá 20-22 c og sól um helgina ef þið viljið kikja i kaffi þá erum við heima við
Við erum að fara að halda uppá afmælið hennar Margrétar Svanhildar á sunnudaginn, hún og ein úr bekknum ætla að halda saman uppá afmælin en það eru bara 3 dagar á milli þeirra. Herlegheitin verða í Aqua en það er svona ferskvatnsdýrasafn með fullt af flottum fiskum og öðrum dýrum, þær fá að sjá dýrunum gefið og svo fá þær pizzu og fleirra góðgæti og svo er rosa flott útileiksvæði sem verður líklegast notað vel ef veðurspáin rætist
Kristinn er byrjaður á fullu í vinnunni og er nóg að gera hjá honum þar, og við Símon Mikael höfum það kósý heima í brjóstaþoku og pelagjöfum
Jæja er hætt í bili bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15. apríl 2009
KOMIN HEIM :)
Jæja við mæðginin fengum loks að koma heim á sunnudaginn (páskadag) Símon Mikael dafnar vel og er orðinn duglegur að drekka bæði brjóst og pela Við fórum svo með hann í vigtun á spítalanum í gær og er hann að komast í fæðingarþyngd. Heimahjúkkan kikir svo á okkur á morgun.
Margrét Svanhildur og Bjarni Harald eru rosa kát að vera búin að fá okkur heim, Bjarni Harald er ótrúlega góður við litlabróður sinn og er alltaf að kyssa hann og knúsa við leyfum honum að fylgjast með þegar við erum að skipta á litla kút og finnst honum svaka sport að fá að standa uppá stól og halda í höndina á Símon Mikael við skiptiborðið
Margrét Svanhildur er alltaf jafn dugleg að hjálpa til og gefur litla kút pela.
Við viljum þakka fyrir allar kveðjurnar
Er að fara að setja inn fleiri myndir á barnalandið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 9. apríl 2009
Skírdagur 2009
Svo er páskahelginn uprunninn. Við erum á fullu að taka til í garðinum eftir veturinn og fáum líka til þess þetta fína vorveður 15-20c og sól. Bjarni er ekkert smáhrifinn af að geta verið úti í stígvélum og pollabuxum í sandkassanum sem pabbi hans smíðaði. Ég keypti mér mosa skerara og er á fullu að hreinsa grasflötina okkar enda ekki mikið af grasi í flötinni.Svo eru líka öll hin verkin sem þarf að gera, enda er það þannig með gamlan gróin garð með nóg af plöntulífi að alltaf er hægt að finn eitthvað að dunda við.
Ragna liggur enn á spítala með Símon Mikael en hann er ekkert sérstaklega duglegur að taka á móti næringu. En góðu fréttirnar eru þær að þau eru flutt til Silkeborg þannig að það er ekki eins langt að fara. Það var líka 30mín akstur til Viborg en aðeins 5mín til Silkeborg sygehus. Þau hafa það samt gott og strákurinn er hraustur og fínn. Ragna er líka öll að koma til eftir sjúkrabeðs legu síðan í Janúar.
Jæja læt þetta duga í bili. Bestu kveðjur frá DK.
Kristinn, Ragna Steinunn, Margrét Svanhildur, Bjarni Harald og Símon Mikael.
(úff þvílík runa :) )
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 1. apríl 2009
Fæddur Strákur. !!!!!
Hæhæ allir.
Já það fæddist lítill prins kl16:03 í dag 1apríl.
Þetta er ekki aprílgabb:) !
Nefndur strax - Símon Mikael.
Kveðjur frá DK.
p.s myndir eru komnar á barnalandssíðuna. !!!!!!!!!!!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)