Mánudagur, 10. nóvember 2008
HELGIN :)
Já nú er ein enn helgin á enda og var mikið að gera hjá okkur þessa helgina, Kristinn og krakkarnir fóru til VEJLE á föstudaginn að hjálpa Bergþóru & CO að flytja ég var á kvöldvakt svo ég kiki bara seinna á húsið á laugardaginn var Margrét Svanhildur að keppa í handbolta og spiluðu þau 2 leiki annar fór 7-6 fyrir hinum og sá seinni fór 17-1 fyrir Margrétar liði og skoraði hún 5 mörk
pabbinn var VEL stoltur af sinni þegar þau komu heim. Ég fór svo á kvöldvakt og þau tóku spólu sem ég ætlaði nú að horfa á með þeim og hafa kósý þegar ég kom heim kl:21 en ég sofnaði nú fljótlega þar sem ég var VEL þreytt eftir vaktina en við vorum undirmannaðar og íbúarnir frekar órólegir
Í gær var baðherbergið tekið í gegn fyrir jólin, við klipptum Bjarna Harald og er hann voða fullorðinslegur núna en hann var kominn með svo síðann topp að sá varla út svo nú er hann kominn stuttan og fínan topp
ROSA SÆTUR. Ég fór svo aftur á kvöldvakt.Þegar ég kom heim sá ég að Kristinn hafði verið í stuði með klútinn á lofti og var búinn að taka til og þrífa í bryggelsinu(forstofa og þvottahús) svo nú er það líka komið í jólafötin, það er nú munur að eiga svona duglegan mann
Þegar Bjarni Harald vaknaði í morgun vildi hann nú lítið tala við mig greynilega að mótmæla vinnutíma mínum þessa helgina
mig langaði nú mest að hafa hann heima í dag en þar sem ég algjörlega búinn eftir þessa vinnutörn þá ákvað ég að hugsa aðeins um mig og litla kúlubúann og hvíla mig í dag.É á svo ekki kvöldvakt aftur fyrr en eftir ca mánuð svo sá stutti ætti nú að geta fyrirgefið mér
Ég setti inn oktober myndir á barnalandið kikið á það
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 5. nóvember 2008
NÚ VERÐIÐ ÞIÐ SKO HISSA :)
Já nú er svo langt síðan ég blogaði síðast að það eru meira að segja STÓR fréttir af familiunni en þannig er mál með vexti að við hjónakornin ákváðum að stækka familiunna okkar og gekk það plan svo vel að við eigum von á litlu kríli þann 6 Maí = ég er kominn 14 vikur á leið
við erum að sjálfsögðu mjög hamingjusöm með þetta og er stórasystirin í SKÝJUNUM
Við fórum í sónar í síðustviku og lítur allt vel út og krílið stækkar vel
Þið hélduð kannski að við værum hætt þar sem við tilkynntum það þegar Bjarni Harald var nýfæddur en maður má jú alltaf skipta um skoðun EKKI SATT.
Ég er búin að vera ótrúlega hress og hef enga ógleði eða slappleika verið með svo ég svíf bara um.
Það er nú aðeins farið að sjá á mér enda ekki langt síðan síðasta kúla hvarf, en þið ættuð að fá að sjá stóra og fína kúlu um jólin
Annars er bara allt við það sama hér vinna skóli og dagmamma, allir eru hressir og kátir í haustinu í DK
Hef ekki meira að segja núna annað en KVITTA TAKK
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 28. október 2008
VINNA VINNA OG VINNA :)
Ég er nú í fríi í dag og á morgun en ég er búin að vinna frá fimmtudag til mánudags svo það er fínt að fá frí í 2 daga núna ég kann rosalega vel við mig þarna og er bara hæstánægð.
Dagmömmumálin eru þvímiður enn í kaós en kommunen hafði lofað okkur gestadagmömmu frá gærdeginum (lofað á föstudaginn) en svo kl:6:20 í gærmorgun hringdi síminn og þá var okkur sagt að þessi gestadagmamma væri í fríi og við gætum farið með hann til einhverrar annarar og eitthvað annað í dag NEI TAKK Kristinn var sko ekki kátur og lét hana aðeins heyra það og hún lofaði að finna FASTA gestadagmömmu þangað til June verður frísk og mun konan hjá kommunen hringja á eftir og láta okkur vita hvernig þetta verður. Við neitum algjörlega að láta hann bara hingað og þangað maður verður líka aðeins að hugsa um hann og að honum líði vel. En ég reddaði þessu í gær með að hringja í mömmu vinkonu Margrétar en hún var búin að segja mér að hún væri í fríi svo að hún tók hann í gær (hann þekkir hana vel) þetta gekk rosalega vel og var hann alsæll með þetta . En gærkvöldi var hann síðan mjög ólíkur sjálfum sér og grét útí eitt kom svo í ljós að hann var með 38 í hita og greynilega með beinverki, hann er líka ROSALEGA kvefaður hann svaf EKKI mikið í nótt og mátti ég fara með hann fram um 4 leitið og þá sofnaði hann í fanginu á mér. Hann var nú samt hressari áðan og var hitalaus en kvefaður en ég ákvað nú að láta hann út að sofa (sefur best úti) enda er hann vel dúðaður svo honum ætti ekki að verða meint af því ,bara gott að vera í frísku loftinu
Ég vona svo bara að hann hressist á morgun og geti farið til dagmömmu á fimmtudaginn og ég í vinnu en við verðum bara að bíða og sjá hvernig hann verður.
Jæja læt þetta duga í bili knús RAGNA og allir hinir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 23. október 2008
HÚSFRÚIN BYRJUÐ AÐ VINNA :)
Ég ákvað hér á mánudagskvöldið að rölta yfir til nágrannans (fyrrverandi yfirmanns minns) og spyrja hana hvort hana vantaði ekkert starfsfólk en hún er yfirmaður á 2x deildum á nýju hjúkrunarheimili hér rétt hjá. Hún hringdi svo í mig í gærmorgun og bauð mér í viðtal og ég byrjaði að vinna í dag ég er ráðinn sem föst afleysing á báðum deildunum og mun fá 32 tíma á viku og mun vinna frá 8-15 virka daga og 8-14 um helgar en ég mun vinna aðrahvora helgi sem er ok þegar maður er búinn kl:14
ég var á aldsheimer deildinni í dag og leist mér mjög vel á þetta og féll ég strax inní hópinn
ég er bara svo ánægð að vera komin með fasta vinnu að þið trúið því ekki
það var engar vaktir að fá hjá hinum þar sem ég var búin að ráða mig og maður hefur ekki efni á að sitja heima við símann og bíða maður fær ekki há laun fyrir það.
En þetta byrjaði vel eða með því að kommunen hringdi í morgun og tilkynnti að dagmamman hans Bjarna Haralds væri kominn í veikindafrí því hún datt niður tröppur og slasaði sig í bakinu TÝPÍSKT svona fyrsta vinnudaginn minn en Kristinn reddaði þessu og var heima í dag og verður líka heima á morgun svo megum við sjá hvað gerist í næstu viku. Núna væri gott að hafa ömmu eða afa hér til að hlaupa í skarðið
en svona er þetta og ég gat ekki annað en hlegið í morgun þar sem það hefur EKKERT verið þar til núna og þá endilega þegar ég er loksins komin með vinnu.
Jæja ætla að slaka aðeins á meðan guttinn sefur BÆJÓ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 20. október 2008
ÆÐISLEG ÞÝSKALANDSFERÐ :0)
Við áttum yndislegan tíma með Karin og Tobi í þýskalandi um helgina. Þetta var bara afslöppun,smá innkaup og borðaður góður matur Margrét Svanhildur naut sín í botn eins og alltaf þegar við erum hjá þeim og hún og Karin spiluðu frá sér allt vit
og skemmtu sér konunglega saman og hlógu mikið
Bjarni Harald var líka í essinu sínu og skoðaði allt í krók og kima hjá "oma og opa" honum líkaði VEL við þýska matinn og borðaði á við 3
Krakkarnir voru bæði alsæl að fara af stað í morgun og var litli kúturinn ánægður að sjá June sína (enda búinn að vera í fríi í 4 daga ) Hann er í "legestuen" í dag en þá hittast 3 dagmömmur úr hverfinu og eyða deginum saman þær eru með aðtöðu í klúbbhúsinu hjá skólanum og eru þar alla mánudaga.
Við Margrét erum búnar að gera 39 jólakort og eigum því aðeins 11 eftir svo þetta gengur vel hjá okkur þetta árið.
Kristinn er á námskeiði útí VEJLE í dag og á morgun svo hann fær aðeins að keyra smá þessa dagana en hann er á bíl frá vinnunni svo ég hef bílinn heima.
Við viljum að lokum óska BIRTU HULD vinkonu Margrétar ynnilega til hamingju með daginn á föstudaginn og vonum að þú hafir átt góðann dag í gær Svo á hann LEONARD (kærasti Svanhildar) afmæli í dag og segjum við því HAPPY BIRTHDAY við hann og vonum að hann eigi góðann dag í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)