kominn tími á smá blogg

jæja það er nú ekki mikið nýtt að frétta af okkur þessa dagana,vinna skóli og dagmamma Wink Kristinn fór reyndar á smá skrall í gær en það var jólahlaðborð hjá TOYOTA og byrjaði það með siglingu kl:16 ég og Bjarni Harald vorum bara ein í kotinu í gærkvöldi en Margréti var boðið að gista hjá vinkonu hennar sem býr við hliðina á okkur. Við vorum búin að reyna og reyna að fá barnapössun svo að ég kæmist með en án árangurs (þakka gott boð Bergþóra Kissing) en við Bjarni höfðum það bara kósý og fórum að sofa á kristilegum tíma Grin Kristinn er að vinna núna en hann vildi nú óska þess í morgun að hann væri í fríi þannig var nú heilsan á mínum Blush en hann lét sig hafa það og dreif sig af stað enda þýðir ekkert annað.  Við mæðgur skruppum aðeins í bæinn í gær og versluðum nokkrar jólagjafir og erum við nú bara að verða búinn með þetta svo jólin geta bara komið HEHE Tounge

Jæja ég held ég hætti bara núna áður en ég fer bara að bulla og bulla og  bulla  


JÆJA ÞAÐ ER BARA 1 Á LEIÐINNI :)

 jamm það heyrdist í einu kríli í gær Smile við vorum farin að svitna sko HEHE ljósan horfði bara á mig þegar ég kom og spurði svo hvort það væru 2 haha já ég er STÓR hehe kúlan mælist eins og ég sé komin 23 vikur, en ljósan vildi meina að þetta væri vegna þess að þetta er barn nr3 og svo stutt síðan síðast Wink svo ég verð eins og FÍLL þegar við komum um jólin HEHEHEHEHE vona að ég geti knúsað ykkur HAHAHA . Það leit allt vel út í skoðuninni, krílið sparkaði vel og mikið og hjartslátturinn mjög skýr Wink

Vildi bara láta ykkur vita Smile já ég var svo að setja inn myndir úr afmælinu KNÚSS


ÁTTUM GÓÐANN DAG Á LAUGARDAGINN :)

Það er sko óhætt að segja að það hafi verið nóg að gera hér á bæ um helgina, ég var GERSAMLEGA búin á því eftir vinnuna á föstudaginn, en þurfti þá að sækja ungana mína fara að versla og svo heim að baka ÚFFÚFF ,Kristinn kom fyrst heim 17:30 þar sem hann hafði verið á námskeiði mið og fimmtudag þá beið hans bunki á borðinu hann á jú að vera búin 15 á föstudögum Shocking þegar hann kom loksins heim fór hann í Fötex að kaupa það sem ekki var til í Netto og svo fór hann sko barasta á MCDONALDS þar sem einginn nennti að elda þennan daginn Wink ég var svo að vinna 8-14 á laugardaginn og fyrstu gestirnir komu 14:30 og síðustu gestirnir fóru 20:30 Smile en þetta var alveg yndislegur dagur Bjarni Harald var í essinu sínu (þegar hann loks vaknaði) og fékk hann súkkulaðiköku og smá M&M og það fannst honum SKO EKKI slæmt HAHA enda var ERFITT að ná barninu niður um kvöldið HANN DANSAÐI Í RÚMINU HEHEHE en hann var SVO þreyttur en bara gat EKKI slakað á Tounge hann fékk mikið af fínum gjöfum og Margrét Svanhildur gerði kórónu handa honum sem hann var ALSÆLL með ég set inn myndir bráðum inn á barnalandið Wink ég var svo að vinna í gær 7 -14 og það er óhætt að segja að ég var þreytt í gærkvöldi og fór nú bara að lúlla kl:21 Sleeping

Ég er svo að fara til ljósunnar á eftir fyrsta skiptið á þessari meðgöngu og er ég voða spennt en það eru allir að segja núna að þetta hljóti að vera minnst 2 þar sem ég er kominn ca 17 vikur en lít út fyrir að vera kominn 24 eða eitthvað álíka svo ég er spennt hvað ljósan segir og hvort við heyrum í einu eða tveimur Gasp ég held nú samt að þetta að ég sé svona stór núna þar sem það er svo stutt síðan síðast og það sást jú bara 1 í sónarnum, en þær í vinnunni vilja nú meina að nr 2 geti falið sig á bakvið Gasp svo við verðum bara að sjá hvað kemur í ljós á eftir.

Jæja best að fara að fá sér í gogginn BÆJÓ Ragna og KÚLAN Tounge


HANN Á AFMÆLI Í DAG HANN Á AFMÆLI Í DAG ........................

já það er ótrúlegt að litli prinsinn okkar er orðinn 1 árs tíminn líður sko ALLTOF hratt, ég er ekki að trúa því að það sé komið heilt ár síðan ég lá með hríðar niðri á spítala en JÚJÚ það er víst raunin Wink Hann fékk 3 pakka í morgun, 1 frá systur sinni = 3 sæta bíla, 1 frá Svanhildi og CO = tré bíl, og einn frá Rúnari og CO = joey boxer náttföt TAKK FYRIR PRINSINN InLove svo fær hann pakkann frá okkur Kristni þegar  Kristinn kemur heim í dag. Hann var nú mest spenntur fyrir pappírnum og skrautinu á pökkunum og er búin að leika mikið með það í dag HEHE svo fengum við okkur ristað brauð í morgun mat áður en Margrét fór í skólann og var hann ALSÆLL að fá frí frá hafragrautnum GrinTannlæknaheimsóknin gekk vel en hann grét sárt þegar honum var skellt og skiptiborð og tannburstaður Crying en um leið og ég tók hann upp dró hann djúpt andann hló farman í tannlæknirinn og vinkaði bless HAHA greynilega búinn að fá nóg. Hún var mjög ánægð með tönnslurnar hans og hann fékk tannbursta og tannkrem í verðlaun var hann alsæll með það og sagði hátt og skýrt TAKK þegar hún rétti honum það Grin var hann voða montinn þegar við löbbuðum út með tannburstann í annarri og tannkremið í hinni BARA KRÚTT Grin Nú sefur afmælisbarnið úti í rokinu og er mamman að slaka aðeins á Wink

Svo verður smá veisla á laugardaginn en Lisbet og krakkarnir koma og Aarhusbanden og Vejle liðið Wink svo þetta verður vonandi góður dagur.

Jæja hætt í bili kossar og knús frá okkur öllum 


Vika síðan síðast

Já maður hefur nú aðeins minni tíma núna til að vera í tölvunni þessa dagana, en síðasta vika er búin að vera fín hjá okkur ég var í fríi mánudag og þriðjudag og svo vinna 3 daga og svo HELGARFRÍ já ég skrifa það með stórum þar sem þetta er fyrsta fríhelgin mín síðan ég byrjaði að vinna. Við fórum í bæinn á fimmtudaginn og dressuðum krakkana upp fyrir jólin í H&M og verða þau aðal pæjan og aðal töffarinn þessi jólin Grin en við fundum rosa fín föt á þau og erum sátt við þau kaup, síðan voru keyptar nokkrar jólagjafir WinkMargrét keypti líka afmælisgjöf handa bróður sínum. í gær vorum við bara heima að hafa það kósý, gerðum ostaköku og settum í frysti (fyrir afmælisveisluna næsta laugardag) í dag er Kristinn að vinna og við Margrét bökuðum eina smákökusort og Margrét gerði RICECRISPES kökur fyrir afmælið. 

Það er frekar leiðinlegt veðrið núna RIGNING OG ROK og er því  BARA kósý að vera heima hjá sér með kertaljós og kósýheit Wink

Bjarni Harald er svo heppinn að hann fer til tannlæknis á afmælisdaginn sinn en hér í DK eru öll börn boðuð til tannsa þegar þau eru 1 árs, ég er í fríi á fimmtudaginn svo hann verður í fríi á afmælisdaginn sinn og heimsækir tannsa, ég vona bara að það gangi vel en ég er ekki alveg að sjá hann fyrir mér opna munninn vel svo að hún sjái tennurnar almennielga en það kemur í ljós allt saman Smile

TAKK FYRIR SENDINGUNA ELSKU RÚNAR, HARPA OG SALKA RANNVEIG  hann fær nú samt ekki að opna fyrr en á fimmtudaginn og munum við hringja þá og heyra í ykkur InLove

kveð í bili ætla að skella nautasteik í ofninn NAMMI NAMM 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband