Miðvikudagur, 23. ágúst 2006
Margrét er með flensu :(
Já nú er stelpan okkar lasin, það gerist víst líka hér í danaveldi ótrúlegt en satt hehe. Hún er að kafna úr kvefi og var með háan hita í nótt litla greyið hún gat varla sofið henni leið svo illa. En við ætlum bara að hafa það extra kósý í dag og reyna að láta hana hrista þetta af sér.
Vonandi verður hún orðin hress á föstudaginn því þá kemur ljósmyndari í skólann og tekur myndir af börnunum bæði hópmynd og svo fullt af einstaklingsmyndum við vorum einmitt búin að panta einhvern pakka af honum svo það yrði frekar fúlt ef hún er síðan veik en ég tel nú ekki miklar líkur á að hún verði enn veik þá
nú verður hún bara að vera dugleg að slaka á í dag og kannski á morgun og þá ætti hún að geta mætt spræk í myndatöku á föstudag.
Nú ætla ég að fara að hjúkra sjúklingnum mínum, bless í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 21. ágúst 2006
HALLÓ HALLÓ !!!!
Jæja nú er ég búin að fara í nudd og það meira að segja 2 faldan tíma já hún vildi að ég kæmi í 2 faldan vill geta tekið stærra svæði í einu hún er að drepa mig þetta er svo vont ég vona að þetta fari að lagast fljótt og ég geti farið að liggja kjurr á bekknum hehe. En hún var að segja mér áðan að stelpan hennar er í sama bekk og Margrét já Ísland er ekki eina landið sem er lítið
en mér fannst þetta frekar sniðugt.
Núna sitjum við Bangsi inni í rigningunni og þrumum og höfum það kósý vona bara að það stytti upp áður en ég fer og sæki Margréti, ég á nefnilega eftir að kaupa mér pollagalla
svo ég verð ansi blaut ef það fer ekki að stytta upp hehe
Nú ætti ég að fara að heyra eitthvað með þessar vinnur sem ég er búin að sækja um, vona að ég fari að fá vinnu en ég hef nú ekki miklar áhyggjur af öðru
Jæja bið að heilsa ykkur í bili kveðja frá familien Dalsvinget 54
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. ágúst 2006
Rólegheita sunnudagur
Já þá er frábær helgi að taka enda, en Olly,Haukur og Birta Huld fóru eldsnemma í morgun (kl:7:00) við vöknuðum og gáfum gestum okkar morgunmat og skriðum svo aftur uppí þegar þau voru farin og kúrðum okkur öll 3 saman í góða rúminu okkar
Við áttum semsagt mjög fína helgi með gestum okkar, farið var í bæinn og þau versluðu vel á útsölunum, svo var farið á Jensens Bofhus og fengið sér að borða nammi namm. svo á laugardaginn fórum við í LEGOLAND og var það mjög fínt fyrir utan mannfjöldan en það var rosalega mikið af fólki og miklar raðir við nutum samt dagsins og við gátum keypt æðislegan kuldagalla á Margréti á útsölunum þar hún verður semsagt fær í allan sjó í vetur. Þessi dagur endaði svo á því að pantaðar voru PIZZUR ofan í þreytt og svangt en glatt fólk
Takk fyrir góða helgi góðu vinir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. ágúst 2006
Beðið eftir Olly & Co
Já nú erum við mæðgur að bíða eftir að Olly,Haukur og Birta detti inn en þau ættu að fara að koma á hverri stundu spáin fyrir daginn í dag rættist ekki alveg en það var búið að spá hellirigningu og þrumum en vitið þið bara hvað ? sólin kom í staðin með 27c með sér
ég vona bara að spáin um helgina rætist ekki heldur þá verður þetta alveg purrfekt
Margrét er búin að læra heima fyrir morgundaginn en hún átti að skrifa frá 1 - 5 nokkrum sinnum og svo finna dýr í réttum fjölda og gera hring um að sjálfsögðu fór hún létt með þetta og vandaði sig alveg ótrúlega mikið hún er svo dugleg þessi elska.
Á eftir ætlar svo grillmeistarinn á heimilinu að grilla hamborgara ofan í liðið uuummmm namminamm.
En nú ætti Olly að fara að hringja og spyrja til vegar hehehe
heyrumst síðar Ragna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 16. ágúst 2006
Hæ hæ
Nú er ég bara heima að taka til og gera fínt í kotinu :0) svo á morgun koma Olly, Haukur og Birta Huld það verður rosa gaman að hitta þau og eyða helginni með þeim, vona bara að veðrið verði gott, en spáin er reyndar ekki sú besta rigning og þrumur
en við getum nú skemmt þeim og okkur þó að það rigni enginn er verri þótt hann vökni
.
Svo á eftir fer ég á hjólinu að sækja stóru stelpuna mína í skólann, en það er sko ekki vandamálið að ná henni niður á kvöldin núna, hún er svo spennt að vakna aftur og fara í skólann það er svo æðislegt hvað hún er að pluma sig vel í skólanum, það skiptir öllu máli að okkur öllum líði vel. Hún er voða spennt að fá Birtu Huld í heimsókn en þær eru mjög góðar vinkonur, svo það verður fjör hjá þeim um helgina
.
Jæja ég ætla að halda áfram að gera fínt.......... sjáumst á morgun Olly & co
knús Ragna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)