Ragna hætt á Næturbröltinu

Já nú er ég hætt á Næturvöktunum en ég hefði átt að taka 2 í viðbót en því miður er ég bara gersamlega BAKK ligg hér með hitapoka og get ekki sofið fyrir bakverkjum Crying Já þetta byrjaði á laugardaginn og hefur þetta versnað og versnað og í nótt var lyftan mikið notuð þar sem ég gat ekki gengið upp tröppurnar Frown ég hringdi svo áðan og spjallaði við þær í vinnunni og var mér sagt að vera bara heima og reyna að jafna mig Errm já mér finnst nú alveg ömurlegt að hringja mig veika 2 vaktirnar en það er bara ekkert annað í stöðunni, þær voru nú alveg komnar að því að senda mig heim í nótt þar sem ég næstum gat ekki setið,ekki staðið og gekk því um Skelkaður  já þeim leist ekkert á mig og sögðu mér að spjalla við þær á skrifstofunni sem ég jú gerði. Margrét er heima og er hún búin að vera að horfa á VIDEO í morgun og er núna í BARBIE hún er búin að vera svo góð í morgun eins og hún er jú flesta daga Wink en hún tók ekki í mál að fara í frístundina þar sem einginn af hennar vinkonum er þar núna hún vildi frekar vera heima þó að hún vissi að hún yrði að dunda sér sjálf og leyfa mér að sofa. 

Já nú í haust  ætlar vinafólk okkar að flytja hingað út JJEYYYYYY þau ætla að búa í AALABORG sem er um 1 1/2 tíma frá Silkeborg. Þetta eru þau Fanney og Ari og jú börnin koma að sjálfsögðu með Perla Sóley og Pálmi Rafn Wink Það verður æðislegt að fá þau hingað út stelpurnar eru rosa góðar vinkonur en það var jú Perla sem kom hingað til okkar síðasta sumar. Nú verður mörgum grill og kósý kvöldunum eytt með þeim Grin  já okkur hlakkar sko BARA til að fá ykkur hingað út kæru vinir Wink Jæja nóg í bili best að reyna að sofa smá Sleeping bæjó í bili 


SPOOKY NÓTT

Já í nótt þá upplifi ég frekar spooky hluti Undecided en þannig er að í gærmorgun dó kona á elliheimilinu en hún átti fyrst að vera sótt í dag, svo í nótt þá allt í einu dettur hljóðið út í sjónvarpinu hjá okkur , ljósin blikka og svo hringir talstöðin og vitiði bara hvað ? það var úr herberginu hennar sem var hringt Gasp já frekar spooky við fórum öll 3 og kiktum þar inn og tækið pípti hjá henni ( en þegar fólkið er búið að hringja á okkur þá pípir tækið inni hjá þeim ) svo að þá vissum við að við höfðum ekki heyrt RANGT  herbergisnúmer. Okkur varð nú frekar órótt við þetta ,svo stuttu síðar fórum við að heyra fótatök og ískur og sendum karlmanninn rúnt um ganga hússins ALLIR SVÁFU svo var hringdi talstöðin aftur frá hennar herbergi og þá leist okkur ekki á blikuna og maðurinn sem var með mér á vakt varð svo hræddur að hann fölnaði og ég hélt hann ætlaði að pissa niður af hræðslu Woundering endaði svo með því að við kveiktum kertaljós og reykelsi og þá féll allt í ró á ný JÁ JÁ ÞAÐ VAR ALDEILIS AÐ HÚN ÞURFTI AÐ KVEÐJA OKKUR ÞESSI  Gasp Halo og já það er hægt að segja að það hafi verið fjör á vaktinni , en við fengum ekki hljóðið aftur á sjónvarpið Errm en svona var nú það. 

Kristinn og Margrét eru búin að fara í göngutúr og út í fótbalta en það er frost í dag en sól. Ætla þau svo að skella sér í sund á morgun og reyna að ná úr sér kvefinu (inni laug) svo ég fæ svenfrið á morgun Sleeping 

Vona ég nú að það verði fín nótt í nótt án allra SPOOKY THINGS 

Jæja við biðjum að heilsa knús og kram FAMILIEN  


SMÁ SNJÓR OG SMÁ KALLT

Jæja þá er aftur smá vetur hjá okkur en það er smá snjódrífa og frost, en sól og logn ég var að vinna í nótt og svaf svo til hálf 4 og fór þá að sækja Margréti í afmæli hjá bekkjarsystursinni sem býr í götunni sem við erum að fara að flytja í Kristinn er á kvöldvakt svo að ég og Bangsi röltum og sóttum skvísuna þar með fékk Bangsi klukkutíma hreyfingu Wink og að sjálfsögðu vakti hann lukku hjá stelpunum í afmælinu Grin Við fengum PAKKA í dag VEIII alltaf gaman að fá pakka Margrét fékk að opna kasann þegar hún kom heim þetta var frá Mömmu og pabba (Tótu og Halla) og mamma var búin að sauma GEÐVEIKA peysu/kápu í stíl við húfu sett sem Svanhildur systir gaf henni í jólagjöf Wink nú er skvísan bara eins og klippt útur tískublaði Grin svo var kassinn fylltur með NIZZA súkkulaði og ROYAL búðing Grin TAKK TAKK TAKK elsku mamma og pabbi Margréti fannst þetta bara æðislegt og mátaði strax kápuna sem smellpassar Wink ég verð að smella mynd af henni í öllu settinu og skella hér inn. Annars segi ég bara mest lítið , það var ráðin karlmaður í mína stöðu en hann var áður að vinna í svona afleisingarfyrirtæki og hafði oft tekið vakt hjá okkur og þekkir því okkur og rútínuna hjá okkur svo hann þarf enga aðlögun sem er ekki verra Smile svo var önnur kona líka ráðin og byrjar hún á mánudaginn og mun ég aðlaga hana mínar 2 síðustuvaktir. Kellurnar voru voða fegnar að fá karlmann í hópinn en það er visst öryggi að hafa einn slíkan á næturvöktunum svo þær eru bara nokkuð kátar með þetta Wink En nóg um vinnublaðr

Bið að heilsa ykkur öllum og munið bara að kvitta Kissing 

PS.Ollý mín er jörðin nokkuð búin að gleypa þig ?? ég er farin að fá frákvarfseinkenni að hitta þig ekki á MSN og heyra ekki af þér Blush endilega skrifaðu mér línu Wink


Snjor og allt stopp

Jæja kom ekki sma snjor. Og trafikin her fyrir utan er alveg stopp. Merkilegt ad ekki turfi nema 1cm snjo til ad lama alla starfsemi med litilli kunnattu i snjo akstri. Tad var gamall karl sem "festi sig" herna fyrir framan innkeyrsluna inn a planid og turfti islendingurinn ad syna hvernig færa ætti bilinn. Ad sjalfsogdu med glæsibrag og handbremsusnuning.

Annars for eg a kynningu a nyju linunni fra Pioneer i Bilagræum og Leidsogukerfum i gærkveldi. Teir fra Pioneer Danmark budu okkur i mat og drykk a undan og svo var fundur med kynningu a tessum nyju utfærslum og hvad vid megum eiga von a fljotlega. I fundarhlei voru allir reknir fram i kokur og kaffi. Tarna voru hvorki meira ne minna 10 !! Shockingmismunandi hnalltorur. Eg let eina sneid dugaPouty. Virkilega flott!!

Svo er kvoldvakt a morgunn og a fostudag a eg ad leysa af i Silkeborg. Helgin verdur svo tekin rolega med Margreti tvi Ragna a ad vinnaInLove

Kvedjur ur snjodrifunni i Aarhus. Kristinn


HÆ HÆ OG HÓ HÓ

Við viljum byrja á því að óska Sigga og Ingu til hamingju með soninn og að sjálfsögðu Birnu Maríu með litla bróður Kissing en þau eignuðust dreng 28 janúar en komu fyrst heim í gær þar sem litli snáðinn þurfti aðeins að koma við á vökudeildinni og ná sér í smá skammt af súrefni, en nú heilsast mæðgininum vel Wink 

Annars er bara rólegheita dagur hjá mér (Rögnu) í dag ég fór í hnykk og náði svo í Margréti og nú erum við bara að TJILLA eins og það kallast Smile Kristinn er að fara á fund í vinnunni í kvöld svo hann kemur seint heim, þannig að þið fáið ekki myndir í dag en mér tókst nefnilega að týna myndum einhversstaðar í tölvunni (þær finnast ekki) og mig langar ekki að missa myndirnar frá í gær svo að Kristinn fær að setja þær inn og veita mér betri kennslu í þessu Wink Ég heyrði í yfirmanninum mínum í dag og ég klára næstu törn og svo hætti ég , ég þarf að aðlaga inn nýja manneskju þannig að hún bað mig að vera út mína viku, en ég var búin að biðja um að fá að hætta á sunnudag en ég gat jú ekki sagt nei við hana þar sem hún er búin að vera svo almennileg við mig Smile Margrét er nú ekki alveg á því að mæta í frístundina í næstu viku þar sem flestir verða í fríi en ég ætla að heyra í mömmu Jóhönnu og sjá hvort hún megi vera þar mánudag og þriðjudag svo er Kristinn á kvöldvakt á miðvikudag svo að þá getur hún verið heima Wink  Þetta reddast allt saman.

Jæja nú hef ég ekki meira að segja en bara KVITTA TAKK Wink 

KVEÐJA RAGNA  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband