LOKSINS KOMIN MEÐ HEIMA SÍMA :)

Þá erum við komin með síma (annan en GSM) þetta er svona breiðbandssími og ef þið viljið heyra í okkur getið þið hringt í 0045-5851 2967  Grin 

Þetta er búið að vera fín helgi hér hjá okkur við kiktum í bæinn á laugardaginn og var Bjarni Harald  bara í kerrunni sinni alveg að fýla þetta í botn sat þarna og horfði á allt fólkið og naut sín í botn. Kristinn var svo að vinna í gær og við Margrét tókum til í ruslakompunni hennar og breyttum henni aftur í fallegt herbergi Wink svo fórum við í göngutúr og Margrét þaut um á linuskautunum. svo er bara búið að vera grill og fínheit í matinn enda veðrið til þess, reyndar kólnaði aðeins hjá okkur (17c) en hitinn er á leið upp aftur. Það ringdi loks  í morgun en það voru fyrstu droparnir í Maí mánuði, allt var orðið frekar þurrt svo að þetta voru BARA góðir dropar.

Ég er mun betri í löppinni og ætti að geta farið að fara  út að labba daglega aftur Wink

Jæja gaurinn vill fara að fá pelann sinn og fara út að sofa Sleeping

Kær kveðja frá ADVEJ 25 


Jæja komin helgi á ný :)

Ótrúlegt hvað þessar vikur líða hratt mér finnst að það hafi verið föstudagur í gær Gasp

Ég er loks eitthvað betri í löppinni og er farin að geta stigið almennilega í hana Wink ég fór með Bjarna Harald í vigtun á miðvikudaginn og var læknirinn bara nokkuð kátur með hann, hann er núna 7,2 kg svo hann er að þyngjast fínt þrátt fyrir gubbustandið. Læknirinn  leit á fótinn á mér og var viss um að ég hefði slitið liðband en ég er ekki viss um að það sé rétt þar sem ég er miklu betri í dag.

Kristinn er núna úti að grafa skurð frá götunni og inní hús en við erum að fara að fá breiðband og þá þarf maður að grafa sjálfur fyrir því , en við munum fá mun betri internet og betra sjónvarp en þetta þýðir líka að við munum vera netlaus í einhvern tíma í júní en við lifum það af Wink

Svo erum við búin að panta símabox og þá verðum við með heimasíma og þá munum við hringja frítt til íslands og fleirri landa fyrir aðeins ca 80 dkr á mánuði Wink þá mun fólkið okkar heima fara að  heyra oftar í okkur Grin 

Jæja ætla að fara að sinna prinsinum sem er búin að velta sér yfir á magann og vill fá hjálp  til að komast aftur á bakið HEHE

Góða helgi  


Góð Sumarhelgi (Pinseweekend)

Það er heldur betur ekki amalegt að vera búsettur í DK þessa dagana.  Alla síðustu viku hefur hitmælirinn bara haft eitt markmið og það er að slá sitt eigið met frá deginum áður. Frá mánudag hefur semsagt mælirinn bætt á sig einni gráðu á degi hverjum. Það var 20 á mánudag og svo hefur hitinn bara aukist og aukist í gær var 26c í skugga og það sem Daninn segir að sé "Sumardagur" eru orðnir 3. "Sumardagur" er skilgreindur þegar hitinn hefur farið yfir 25c á veðurathuganarstöðum í DK. En eins og gefur að skilja er heitara í garðinum heima. Á pallinum okkar var um 30c og ekki eitt ský á himninum.

Þetta hefur því verið þungbær vika fyrir húsmóðurina á heimilinu. Hún hefur verið hoppandi á einu fæti með hinn bundinn inn í bindi. Ekkert sérlega spennandi í þessu veðurfari. En svona er nú lífið. Margrét hefur hins vegar verið eins og kýrnar á vorinn úti 18tíma á dag og er orðin hálf svört. Hún fékk mig til að setja loft í sundlaugina hennar og svo komu nokkrar vinkonur í heimsókn og var buslað og skvett svolítið á hver aðra.

Í gær Sunnudag var svo "Komune mesterskab i fodbold" og vorum við frá 11-15 á fótboltavellinum í nágranna bænum í 27c hita. En ekki var að sjá að hitinn hafi gert þeim slæmt og lentu þær í liðnu hennar Margrétar í 3sæti (brons) og vorum þær nokkuð kátar með árangurinn.Bronshafar í KMS

 Margrét

 Freja

 Cecille

  Lizette

 Rebekka

  Rikke

 Marie

 

Duglegar stelpur !!

 

 

 

 

Jæja bestu kveðjur frá ADvej 25.

Frá stoltum föður sem er orðinn aðstoðar þjálfari að eigin frumkvæði.

Kristinn 

  


HÚSFRÚIN HOPPANDI UM Á EINUM FÆTI :(

Já já mér tókst að detta hér á mánudaginn á leiðinni út með Margréti á fótboltaæfingu ÁI þetta var  BARA vont og það endaði með því að Kristinn fór bara með Bjarna og Margréti í fótboltann og ég uppí sófa með fótinn uppí loft og klaka á Crying um kvöldmat leist mér nú ekkert á blikuna þar sem ég var með 3 faldan ökla og verki uppí hné, hringdi því á slysó en það var svo busy hjá þeim að ég gat fyrst komið kl:22 , ég fór því bara ein með TAXA jæja ég lá þarna uppá slysó og var skoðuð bak og fyrir og læknirinn var viss um þetta væri brot Frown mér var skellt í rönken og sem betur fer sást ekkert brot á myndunum Wink þeir voru 3 læknarnir sem skoðuðu myndirnar þar sem þeir trúðu bara ekki að ég væri ekki brotin og löppin liti svona út. Jæja ég er semsagt í teygjuumbúðum og ligg með ís á löppinni. Kristinn var heima þriðjudag og miðvikudag þar sem ég gat jú ekki hoppað hér um með Bjarna Harald í fanginu, Kristinn fór að vinna í morgun og ég trilla Bjarna hér um í kerrunni HAHA já honum finnst þetta frekar skrítið greyinu. ég er nú aðeins farin að tilla í fótinn en fer mér HÆGT. Svo sit ég bara úti og nýt veðursins en það er búið að vera sól og 22-24c alla vikuna og núna er hvorki meira né minna en 26c Bjarni er bara á samfellunni og hefur það gott en hann sefur nú bara inni þessa dagana þar sem það er ALLTOF heitt fyrir hann að sofa úti.

Margrét er á fullu í fótboltanum en það var æfing á mánudag,leikur á þriðjudag og svo æfing á miðvikudag svo er hún að fara að keppa á sunnudaginn í KOMMUNE MESTERSKAP en þetta er stór keppni og eru nokkrar úr liðinu hennar sem munu keppa, hún er voða spennt fyrir þessari keppni en ég er ansi hrædd um að mín verði þreytt um kvöldið þar sem þetta eru 5 leikir sem þær eiga að spila.

Jæja best að fara að stappa banana í strákin, ójá við gáfum honum kartöflur og gulrætur í gær og honum fannst það algjört lostæti Tounge hann er orðin svo duglegur að borða þessi elska Wink

kveðja úr sólinni Ragna (bráðum brún)Cool Grin


sunnudagur til sælu :)

ojá já þá er þessi helgi á enda komin þetta er búin vera fín helgi,Kristinn fór og spilaði poker á föstudagskvöldið(gekk ekki nógu vel) Undecided ég og Margrét skruppum bara 2 í bæinn í gær en það var hreingerningardagur í miðbænum þá er mikið um að vera og góðtilboð á hverju horni, það var pakkað í bænum enda um 18c og sól Cool síðan komu Bergþóra,Jón Óskar ,og strákarnir og eyddu deginum með okkur við drukkum kaffi úti og svo var grillað og borðað úti rosa kósý TAKK AFTUR FYRIR KOMUNA Smile Margrét er núna í afmæli og Bjarni Harald sefur úti nú er ég farin að setja bara þunna húfu á hann þegar hann fer út (enga peysu) og þá sefur hann vel og lengi Wink  Hann lá á teppinu sínu í morgun og velti sér 3x af bakinu yfir á magann ROSA DUGLEGUR Grin svo lá hann bara og stundi UUU þangað til honum var hjálpað aftur yfir á bakið.  Hann er farinn að borða banana ELSKAR ÞAÐ og svo í gær gaf ég honum sveskjusafa og það fannst mínum sko gott hann ríghélt í pelann til að tryggja að einginn tæki þetta gómsæti frá honum HEHE    Við hjónin ætlum nú bara að slaka á í sólinni í dag og njóta dagsins enda ekki annað hægt í þessari veðurblíðu Cool

Ég setti inn myndir á barnalandið á föstudaginn endilega kikkið á það 

KNÚS frá okkur í ADVEJ 25 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband