Færsluflokkur: Bloggar
Sunnudagur, 17. september 2006
Mjög góður sunnudagur :)
Já við erum búin að eiga þennan fína dag með Lisbet & CO þau komu hér um hádegi og við borðuðum rosa góðan kjúkling og tilheyrandi svo var farið í göngutúr um hverfið og svo drukkið kaffi og borðað kökur uuummmm
síðan var spjallað um heima og geima og þau áttu ekki til orð hvað Margrét er farin að tala góða dönsku. Þau keyrðu síðan heim um 6 leitið en þau eru 2 tíma að keyra til okkar.
Fyrir þá sem vilja senda okkur fréttir af sér er emailið okkar kristinn@webspeed.dk svo nú er bara að setjast við tölvuna og pikka og senda okkur smá fréttir af heiman hi hi nú er sko engin miskunn
Knús og Kram Familien Dalsvinget 54
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 16. september 2006
Góðan daginn !
Hæ við erum búin að vera heima að þrífa litla kofann okkar í morgun reyndar fór Margrét í enn eitt afmælið kl:10 og við nýttum tækifærið og þrifum hátt og látt.
Á morgun erum við svo að fá gesti, en Lisbet(sem kristinn var í sveit hjá) börnin hennar 2 og foreldrar hennar ætla að koma um hádegi og eiða deginum með okkur, þau hjálpuðu okkur að flytja inn, og okkur fannst komin tími á að þakka fyrir okkur og buðum þeim í mat og kaffi
Í gær tilkynnti Stína(systir kristins ) okkur að hún væri búin að kaupa miða og væri að koma á þriðjudaginn og ætlar að vera í viku, hún fékk leyfi hjá tengdó að koma 1 en því miður er svo mikið að gera í búðinni og gróðurhúsin þurfa líka sinn tíma, að þau komast ekki til okkar strax en það verður gaman að fá Stínu í heimsókn
hún er svo dugleg að hún ætlar að taka lestina til Aarhus, en hún er nátturlega bara 13 ára en segist geta þetta alveg
Jæja þetta er komið nóg af pikki í dag held ég bið að heilsa ykkur Ragna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 15. september 2006
KOMIN MEÐ VINNU !!! :) :)
Já ég fékk vinnuna JIBBÍ ég fékk semsagt símhringingu kl:9:15 í morgun (sem betur fer var ég vöknuð) Ég á svo að mæta á fund hjá þeim á mánudaginn og planið er að kíkja á vaktaplanið hjá þeim og ég á þá að gefa upp hversu mikla vinnu ég vill og hvenig Næturvaktir, get stjórnað þessu soldið sjálf, þær eru mjög flexibil þarna, sem er alls ekki verra
Svo getur verið að ég fái bland af dagvöktum og næturvöktum sem mér líst vel á . Þetta kemur nú allt í ljós á mánudaginn, ég er bara rosalega ánægð með að vera komin með vinnu
Jæja bið heilsa ykkur í bili 1000 kossar Ragna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 14. september 2006
BRJÁLAÐ VEÐUR !!!!
Já hér er sko alveg brjálað veður aðeins 27c og sól HI HI HI ,allavega erum við búin að hafa það kósý í morgun við hjónin en Kristinn er farin á kvöldvakt núna. Ég er svo á leiðinni út í veðrið að sækja skottuna mína en nú er BÁL í frístundinni en þá fá þau held ég að baka brauð á eldi og fleira skemmtilegt
En Bylgja mín ef þú lest þetta þá er ég alltaf að reyna að kvitta á síðuna hjá þér en það gengur eitthvað erfiðlega bara pirrandi þegar kemur "villa í staðfestingarkóda" en allavega endilega hafðu samband við erum nú bara rétt hjá hvor annari
það væri rosalega gaman að hitta ykkur.
Svo vonandi get ég tilkynnt ykkur að ég sé komin með vinnu á morgun en þangað til reyni ég að senda nokkra sólargeisla yfir á klakann kveðja Ragna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 13. september 2006
Atvinnuviðtal nr. 2 gekk frekar vel :)
Já ég er frekar bjartsýn á að fá þessa vinnu þeim leist bara vel á mig held ég ,og mér leist vel á þetta hjá þeim. Ég fæ svar núna á föstudag líklega og fæ svo að byrja bara sem fyrst sögðu þær í gær
svo að ég er bara nokkuð ánægð með mig í dag
Ég var að koma úr nuddi og er frekar dösuð eftir það svo er líka mjög heitt úti núna svo það er eiginlega bara gott að sitja aðeins inni og kæla sig
annars ætla ég bara að slappa af í dag enda lítið annað hægt að gera í þessum hita. Svo er fimleika æfing hjá Margréti kl:16:00 og að sjálfsögðu rölti ég uppí skóla og sæki hana þangað hi hi
bara svona aðeins að gefa ykkur skýrslu hi hi.
Jæja hef ekki meira að segja í bili knús Ragna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 12. september 2006
Til Hamingju með daginn mamma mín :)
Í dag á hún mamma mín afmæli og langaði mig að óska þér til hamingju með daginn Mig langar líka að óska þér og Dóru góðsgengis í í France. En já hún mamma er að fara til frakklands á morgun til að taka þátt í hönnunarsölusýningu næsta hálfa mánuðinn, þetta á eftir að vera strembið hjá þeim en sýningin er opin frá 10 á morgnanna til 10-12 á kvöldin. En vonandi á þetta allt eftir að ganga vel
En svo var húsbóndinn víst búinn að blogga í morgun dvo ég læt þetta duga í bili
Bið að heilsa ykkur í bili Ragna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12. september 2006
Heitt Haust.
Ja, svolitid skritid ad fa allt i einu svona hita. Madur er vanur ad vera buinn ad pakka stuttbuxunum og taka fram ulpuna. En nuna i morgun for eg i vinnuna i 13c hita kl06:45 i morgun og tad er spad allt ad 25c i dag. Tad er buid ad vera um 20-25sidan a laugardag og a ad vera fram a fimmtudag. Tetta er samt ekkert ad kvarta yfir, bara GOTT.
Annars er eg stoltur ad konunni minni, eins og alltaf. Hun er a leid i atvinnuvidtal i dag, tad var hringt i hana i gærkveldi og bedin um ad koma i vidtal i dag. Reyndar er tetta næturvinna en vid holdum ad tad gæti verid agætt. Minni vinnutimi( 28Timar) og vel Borgad og litid alag midad vid dagvinnu. Bara erfitt med hvernig vid komum svefn til ad passa saman vid rutinu okkar Margretar. Talandi samt um svefnvenjur, tar sem eg vakna kl 06:00 virkamorgna og Stelpurnar minar kl 07:00 ta erum vid yfirleitt farinn ad sofa um 22:00-22:30 a kvoldin og Margret 20:00. Svolitid eins og gamla folkid.
Jæja verd ad reyna vinna meirra og tala minna, Bid ad heilsa Kristinn Bj.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. september 2006
FYRSTI FÓTBOLTALEIKURINN !
Já í dag fórum við á fótboltaleik á Silkeborg leikvanginum, silkeborg var að spila á móti Midt Julland, og þarna voru komnir saman rétt tæp 4000 manns að fylgjast með leiknum. Við hittum 1 íslenska leikmanninn um daginn og vildi hann endilega gefa okkur miða ,svo við ákváðum að skella okkur Allir 3 íslensku leikmennirnir voru með í leiknum og stóðu sig að sjálfsögðu með prýði
EN hitt liðið stóð sig eitthvað betur og vann 2-0
en þetta var samt skemmtileg upplifun og veðrið lék við okkur eða SÓL og 24c og blankalogn
Margrét var bara á brjóstahaldaranum
alveg að fýla sig vel.
Svo er hún búin að vera að æfa sig að hjóla án hjálpardekkja um helgina og gengur það nú svona upp og ofan en þetta er nú að koma hjá henni held ég
núna sitja feðginin útá palli í 22c og sól og eru að gera heimalærdóminn fyrir morgundaginn.
Svo ætlum við að skella okkur í göngutúr í kvöld eftir matinn í góða veðrinu.
Já og við tókum video í gærkvöldi þrusu fína mynd Efter Bryllupid mælum með henni
Biðjum að heilsa ykkur í bili familien Silkeborg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 8. september 2006
Aftur komið SUMAR :)
Nú er rosa gott veður hér hjá okkur og er spáð 24c og sól fram yfir helgi SORRY varð að segja ykkur frá því en veit að þið viljið kannski ekkert vita það þegar veðrið er ekki gott hjá ykkur , en svona er þetta nú bara
Margrét fór í myndatöku í skólanum og þetta voru rosafínar myndir af henni ætla að reyna að skanna eintök hér inn fyrir ykkur vonandi tekst það hún er svo að fara í afmæli á morgun og svo ætlum við nú bara að njóta blíðunnar grilla úti og svona skemmtilegt hi hi.
SÓLAR KVEÐJUR FAMILIEN DALSVINGET
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 7. september 2006
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ODDNÝ OG DÖGG :) :)
Já í dag eiga Oddný ( mamma kristins) og Dögg ( mágkona Kristins) afmæli og viljum við óska ykkur báðum innilega til hamingju með daginn.
Við hjónin erum búin að vera að útrétta í morgun en kristinn fer á kvöldvakt á eftir, Margrét er að fara á safn hér í bænum með frístundinni í dag en nú er prógrammið byrjað þar á fullu, hún mun fara í vetvangsferð eða gera eitthvað öðruvísi en hina dagana, alla fimmtudaga fram að jólum, svo munu þau gista eina nótt í frístundinni í nóvember og er hún voða spennt fyrir því það er rosalega mikið gert fyrir börnin hér í skólanum og frístundarheimilinu sem okkur finnst mjög gott mál
kær kveðja familien í Dalsvinget
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)