Færsluflokkur: Bloggar
Miðvikudagur, 29. nóvember 2006
Nóg að gera !
Í morgun vöknðum við mæðgur kl:6:30 því að Margrét þurfti að mæta í blóðprufur milli kl:7:30 og 9 og ætlaði ég sko að vera fyrst á svæðið og losna við bið en að sjálfsögðu var full biðstofa þegar við mættum kl: 7:25 svo að við máttum bíða í um 40 mín og Margrét var aðeins of sein í skólann sem var nú í lagi
Að sjálfsögðu stóð hún sig með prýði í blóðprufunum (eftir að deifiplástrarnir voru farnir) svo dreif ég mig í bakaríið og keypti rúnstykki handa okkur Kristni og fór svo heim og lagði mig aðeins aftur. Svo erum við hjónin búin að vera að pakka inn jólagjöfum(fyndið að vera að því í nóv) en Grímur ætlar að taka þær með sér svo við megum ekki vera seinni að þessu
Kristinn er að fara á kvöldvakt bæði í dag og á morgun og ég er að fara að vinna í nótt en svo er ég í fríi fram á mánudag svo ég ætti að geta notið helgarinnar með Grím og Dögg
En þið eigið nú hrós skilið fyrir að taka ykkur á í kvittinu, TAKK FYRIR ÞAÐ endilega haldið áfram að vera svona dugleg
Held ég kveðji ykkur bara í bili bið að heilsa ykkur úr vorinu í dk (15c & sól)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 27. nóvember 2006
Róleg og góð helgi í Þýskalandi
Já á föstudaginn fórum við til þýskalands. Kristinn tók lestina í vinnuna um morguninn og svo brunuðum við mæðgur og bangsi að sjálfsögðu til Aarhusa skoðuðm við nú ÓVART sveitirnar í kringum Aarhus en við komumst nú á leiðarenda að lokum Svo lá leiðin til Elmshorn og var komutími þar um 19:00 borðað spjallað og farið í bólið
Laugardeginum var svo eitt aðeins í búðum og svo afslöppun góður matur spjall og í rúmið.
Sunnudagurinn var mjög rólegur Margrét hjálpaði frænda sínum í garðinum að taka upp laufblöðin, svo kom mamma Karinar í mat og svo brunuðum við heim . Margrét og bangsi komu bæði útur dekruð heim eftir þessa heimsókn en það er nú í lagi Það verður nóg að gera hjá Margréti að opna dagatöl en hún þarf að opna 3 dagatöl(það er nú ekki eins og það sé leiðinlegt) en sem betur fer vorum við ekki búin að kaupa nammidagatal þar sem hún fékk eitt slíkt frá Karin og Tobi
svo það verður eitt hlaupdagatal, eitt prinsessudagatal og svo jólasveinninn heimagerði
Nú er verið að skipta um þak hjá okkur og stendur bangsa nú ekki alveg á sama að hafa einhverja kalla uppá þaki að berja og bramla en vonandi verður þetta nú búið þegar Grímur og Dögg koma á fimmtudaginn svo þau fái svefnfrið
Jæja ætla að fara að dúlla mér eitthvað bæjó í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
JÓLA INNKAUP :)
Margrét hristi nú af sér slappleikann í gærkvöldi og vildi ólm fara í skólann í morgun Svo við hjónin gripum tækifærið og skruppum í bæinn að versla jólagjafir, náðum við nú að gera góð kaup og svo voru líka keyptar dagatalsgjafir en hér er bara einn jólasveinn svo að danirnir gefa frekar gjafir frá 1.des og svo aðventugjafir, þar sem ég var búin að föndra jólasvein með 24 skúffum kom sér vel að kaupa litla og stóra pakka í það
og að sjálfsögðu alla handa prinsessunni. Vorum við nú næstum búin að kaupa dagatal handa bangsa en það eru til dagatöl í búðunum með hunda eða katta kexi, en við vorum ekki alveg að sjá framá að geta geymt það í 24 daga svo hann fær bara jólapakka í staðinn
Nú er Kristinn á kvölvakt og við mæðgur erum að hugga okkur heima í hlýjunni en það er grenjandi rigning en samt 10c hiti en manni verður jú kallt þegar maður er rennblautur
Ætlum við að bruna til Þýskalands á morgun og vera yfir helgina, kíkja á Hamburg skreytta og klára jólagjafirnar, enda ekki seinna vænna þar sem Grímur og Dögg koma næsta fimmtudag og á að láta þau taka hluta með sér heim. Já mér finnst ótrúlegt að þau séu bara að koma eftir 7 daga mér fannst eitthvað svo langt þangað til þegar þau fóru að tala um að koma en tíminn flýgur jú áfram er ég "vonandi" búin að fá frí í vinnunni næstu helgi svo að ég sofi nú ekki allan tímann sem þau stoppa. Og já Dögg mín ég skal reyna að eiga nokkur kort eftir til að gera smá með þér
og við ætlum að reyna að vera búin að baka kókostoppana svo Grímur fái smá smakk af þeim( þá er best að gera 8 falda uppskrift ) HE HE HE sérstaklega vegna þess að NAMMIGR'ISINN í brautarhólsfjölskyldunni (Oddur) kemur 16 des og ekki nenni ég nú að baka meira þegar hann er farinn svo það verður bara bakað nóg og Oddur fær góðann skammt og svo er bara að fela smá svo að við fáum eitthvað á sjálfum jólunum
en það er ekki auðvelt að fela góðgæti fyrir Oddi hann er voðalega góður í því að þefa uppi góðgæti
En þetta er nú bara smá grín Oddur minn þú tekur þessu ekkert illa er það nokkuð?? En þið sem þekkið brautarhólsliðið vitið nú kannski hvað ég meina HE HE HE
En nú er komið nú af bulli í dag, skrifa aftur eftir Þýskalands för KNÚS Í KRÚS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 22. nóvember 2006
Fyrsti foreldrafundurinn í Frístundinni
Já í gærkvöldi fórum við hjónin á foreldrafund, já við fórum bæði því að hún Anita sem vinnur með mér bauðst til að hafa Margréti í heimsókn enda var fundurinn bara klukkutíma svo að ég ákvað að þiggja það Enda fannst okkur mjög gott að komast bæði á fyrsta fundinn. Þetta var nú fámennt og kósý en þetta var bara fyrir hennar grúbbu og bara fyrir þá foreldra sem eiga barn í 6 ára bekk, þar sem margir eiga eldri systkyni og þekkja reglur frístundarinnar og hvernig allt gengur fyrir sig þurftu þeir foreldrar ekki að mæta, semsagt við vorum foreldrar 3 barna
Úr því þetta var svona fámennt ákváðu starfsmenn frístundarinnar að dekka borð með kaffi, smákökum og konfekti, auk kertaljós svo já þetta var MJÖG kósý. Þau höfðu nú bara gott að segja um Margréti og þau sögðu að hún væri mjög hress og kát allan daginn
sögðu þau líka að hún væri svo opin og hún væri ekkert feimin að draga þau með sér að sýna þeim hvað hún vildi ef þau skildu ekki hvað hún sagði eða hún kunni ekki að segja hvað hún vildi sem er mjög gott og við vitum að það hefur hjálpað henni mikið í þessu öllu að hún er ekki feimin og ef einhver skilur hana ekki þá bara reynir hún á annan máta þar til hún er skilin
Hún var mjög ánægð að vera boðið í heimsókn til Anitu en hún á eina 2 ára og voru þær að halda danssýningu fyrir Anitu þegar við komum að sækja hana
svo á Anita líka eina 19 ára og er hún til í að gerast barnapía hjá okkur svona einstaka kvöld, þar er nátturlega nauðsynlegt að komast út öðru hvoru.
En í morgun hringdi kennarinn hennar Margrétar í mig og sagði að hún væri búin að vera með magaverki og lægi bara í sófanum ákvað ég að fá hana heim og bauðst kennarinn til að skutla henni heim þar sem ég er bíllaus var ég mjög fegin þar sem ég var jú á vakt í nótt og hafði aðeins sofið 3 tíma þegar hún hringdi en ég er nú að vona að þetta sé einhver flensa í henni núna hún er ekki með niðurgang en er með magaverki og ég held hún sé með hita (mælirinn er bilaður, sýnir 34c) en hún er semsagt búin að liggja undir teppi og horfa á barnaefni og ég hef aðeins dormað hjá henni svo er ég nú komin í frí svo ég fer bara snemma að sofa í kvöld
EN nú ætla ég að halda áfram að kúra hjá englinum mínum kveðja Ragna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 20. nóvember 2006
HVAÐ ER Í GANGI MEÐ YKKUR ??? :( :( :( :( :( :(
Já ég segi bara hvað er í gangi ? það eru 14 búnir að kíkja á síðuna í dag en EINGINN athugasemd eða hvað þá í gestabóikinni ER ERFITT AÐ KVITTA Á SÍÐUNNI? ER ÞAÐ VANDAMÁLIÐ? ef svo er reynið þá að láta okkur vita
Ég átti annars anna sama nótt í vinnunni, en það lítur út fyrir að einhver magflensa sé að herja á gamlafólkinu svo það var MEIRA en nóg að gera í nótt. Margrét fór í skólann og ég sótti hana kl:15 og gekk bara vel hjá henni í skólanum var alsæl að hitta vinina og kennarann
Okkur varð frekar kallt á leiðinni heim en það var þónokkur vindur, var því ákveðið að fá sér heitt kakó er komið var heim ákváðum við nú líka að henda í pönnsur og var húsbóndinn himinn lifandi að koma heim í pönnsulykt
Nú sit ég ein í myrkrinu við tölvuna og er að bíða eftir að geta farið til vinnu. Ég er hjólandi núna þar sem Kristinn þarf jú að mæta kl:7:30 og ég er ekki búin fyrr en kl:7:30 það er nú bara rosalega hressandi að hjóla en mér lýst ekki alveg nógu vel á veðrið ákkurrat þessa stundina ROK OG RIGNING = BLAUT þegar ég mæti á vakt en ég er nú að vona að það stytti upp þessar 5 mín sem það tekur mig að hjóla
En nóg með það ætla að fara að tíja mig í úlpu og skó og vetllinga og jú hjólahjálminn að sjálfsögðu Bið að heilsa ykkur knús og kram Ragna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 19. nóvember 2006
Róleg og góð helgi :)
Já við erum búin að hafa það nokkuð gott um helgina. Margrét er að hressast en það tekur jú sinn tíma fyrir hana að safna upp kröftunum á ný.
Við fórum aðeins út í gær að versla og bara aðeins að fá okkur frýskt loft, svo var tekið video og haft það kósý svo fór ég að vinna og gekk vaktin vel og hratt
Ein sem vinnur með mér á 8 ára tvíbura og var hún búin að safna fötum í poka handa Margréti (ekkert smá sætt af henni)
svo þegar ég vaknaði í dag sýndi ég Margréti pokann og var hún ekki alveg að skilja afhverju hún var að gefa henni FULLAN poka af fötum
en hún var þetta líka glöð að fá fullt af nýjum og fínum fötum, og var hér tískusýning í hádeginu
Hún er orðin voða spennt að fara í skólann á morgun, en hún er búin að klára fyrstu verkefnabókina og á að fá nýja á morgun. Hún missti nú þó nokkuð úr síðast þegar hún var á spítalanum en gerði sér nú lítið til og bætti það upp á einum degi ( 9 blaðsíður) nú er hún líklegast búin að missa úr aftur og er hún búin að gera samning við Kristinn að vinna vel heima á morgun og þriðjudag þar sem það er nú ekki skemmtilegt að vera á eftir öllum bekknum með verkefna vinnu.
Jæja nú hef ég ekki meira að segja í bili og jólakortagerðin kallar
MUNIÐ GESTABÓKINA, HÚN BÝTUR EKKI FAST !HE HE HI HI HA HA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 17. nóvember 2006
Mæðgurnar komnar HEIM :) :)
Já nú var Margrét aftur lögð inn á þriðjudaginn og komum við loks heim í dag hún var rannsökuð á ýmsan hátt og fundu læknarnir út að hún var með sýkingu í maganum og í slímhúðinni í "bossanum" hún var frekar slöpp og þreytt en er nú hressari og erum við ALSÆLAR að vera komnar heim
svo á ég að hringja á barnadeildina á föstudaginn og fá lokasvör úr blóðprufu og þeir vilja líka fá að vita hvernig gengur með hana. Svo á hún að fara í blóðprufur í lok mánaðrains og svo 4 des eigum við að mæta í viðtal á barnadeildinni. Vonum við svo ynnilega að hún fari nú að hressast almennilega og þetta fari að taka enda
Hún stóð sig alveg eins og hetja í öllum ranssóknunum enda DUGNAÐAR STELPA Á FERÐ
Nú á að dunda sér heima um helgina en ég fer að vinna annaðkvöld ég var ekki að ORKA að fara í vinnu í kvöld.Það tekur á að vera með veikt barn á spítala og veit ég nú ekki hvor er þreyttari ég eða hún EN BARA SNEMMA Í BÓLIÐ Í KVELD
Jæja nú biðjum við að heilsa ykkur í bili Ragna, Kristinn og Margrét Svanhildur
Og Já við fáum húsið 1.mars ef einhverjum langar að koma og bera KASSA HE HE HE HE HE HE
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13. nóvember 2006
Margrét kölluð í fleiri rannsóknir !
Já síminn hringdi hér klukkan 07 í morgun, var það læknirinn sem var með Margréti á föstudaginn og var hún eitthvað búin að vera að bera bækur sínar við kollega sína um helgina og vilja þau fá hana aftur til rannsókna á morgun. Vona ég nú að þeir finni hvað er að maganum í henni því að hún var aftur komin með niðurgang í gær og svaf MJÖG illa um helgina fyrir verkjum í maganum Hún verður alltaf frekar slöpp á kvöldin og sagði læknirinn að við mættum endilega koma úteftir í kvöld sem að ég held að ég geri þar sem hún er slöppust á kvöldin, það er líka þæginlegra fyrir Kristinn að skutla okkur í kvöld
en þetta kemur allt í ljós í dag.
Annars vorum við bara heima í gær að gera jólakort og hafa það KÓSÝ. Svo fór ég í nudd í morgun og tók Margréti með mér því hún er heima þar sem hún er ENN með niðurgang. Fórum við svo í LYKKE SKO og keyptum á hana kuldaskó og var ECCO fyrir valinu, vildum við kaupa almennilega skó enda eru þeir ekkert mikið dýrari en aðrir skór hér og þeir eru líka vatnsheldir svo örkuðum við í KÆRE BÖRN og keyptum jólakjól á hana, og við keyptum líka jólakjól á BIRTU HULD vinkonu hennar svo þær verða eins um jólin bara í sitthvoru landinu
Nú erum við komnar heim í kotið og sjúklingurinn lagstur í sófann við TV þar sem hún er mjög orkulítil er hún alveg búin á því eftir smá bæjarferð
En ég bið bara að heilsa að sinni og læt ykkur vita hvað kemur útur þessu á morgun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 11. nóvember 2006
Eiit deginum á spítalanum :(
Já í gær fór ég með Margréti til heimilislæknisins okkar og vildi hún að við færum með hana aftur út til Randers á Barnadeildina til skoðunar brunaði Kristinn til Silkeborg að sækja okkur og svo var haldið til Randers (klukkutími) Margrét svaf nú alla leiðina
jæja hún var semsagt skoðuð og vorum við þarna í 4 klukkutíma svo fékk hún leyfi til að fara heim þar sem hún var orðin MUN hressari
hún fékk lyf sem hún á að taka og nú er bara EINS GOTT að þetta sé búið .
Hún var bara nokkuð hress í dag og fórum við aðeins í jólagjafaleiðangur inn í Aarhus gekk það fínt og svo var farið á VIDEO leiguna og það er KÓSÝKVÖLD framundan á bænum
kær kveðja frá okkur til ykkar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 9. nóvember 2006
Læknastúss
Já í gær var Margrét mjög slöpp og með rennandi niðurgang ég var EKKI glöð yfir að þetta væri byrjað aftur. Ég hringdi á læknavaktina í gærkvöldi og var mér sagt að mæta með hana til skoðunar á sjúkrahúsinu hér í Silkeborg. Þar sem Kristinn var á kvöldvakt hringdi ég á TAXA , Læknirinn á vaktinni vildi gefa henni lyf sem stoppaði niðurganginn þar sem þetta LAK bara niður (afsakið lýsingarnar) en svona var þetta (SLÆMT) hún var einnig MJÖG aum við skoðun og vildi læknirinn að ég hringdi á barnadeildina í dag og er ég nú að bíða eftir að læknir þar hringi í mig til baka
vona ég að við förum nú að fá einhver svör á þessu öllu saman, hún er nú búin að vera slæm í maganum í HEILAN MÁNUÐ og vitum við að það er eitthvað sem hlýtur að valda þessu og viljum við fara að fá SVÖR það er ekki hægt að hún sé ALLTAF með niðurgang hún er að sjálfsögðu búin að léttast og er HUNDSLÖPP
Já svo í morgun fórum við inní Aarhus því að ég átti tíma hjá Taugalækni þar, gekk það allt vel og mér leist vel á lækninn, hann skoðaði mig gaumgæfilega og ætlar hann svo að senda lækninum á íslandi MAIL því hann vill fá aðeins betri upplýsingar frá honum.
Já svo að þessa dagana er bara verið í LÆKNASTÚSSI sem er nú EKKI það skemmtilegasta sem við gerum en svona er þetta og nú bíðum við bara eftir hringingu frá barnadeildinni
læt ykkur svo vita hvað kemur í ljós úr þessu með skottuna okkar.
kveðja frá danaveldinu góða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)