Færsluflokkur: Bloggar
Fimmtudagur, 14. desember 2006
Góður dagur :)
Já í dag erum við búin að eiga góðann dag, það var foreldrakaffi í frístundinni og fórum við að sjálfsögðu í það, fengum við kaffi og "æbleskiver" eða eplabollur sem eru spes danskur siður fyrir jólin maður hitar þær og hefur svo sykur, flórsykur og sultu á disk og dýfur svo eplabollunum þar í , þetta bragðast nú bara nokkuð vel en þegar við mættum á svæðið spurði einn starfsmaðurinn okkur hvort við þekktum ekki þessar eplabollur " við alveg nei " en þá hafði hún Margrét okkar spurt fyrr um daginn hort hún mætti ekki fá eina svona KARTÖFLU HE HE
fannst þeim þetta frekar fyndið HE HE .
Við brunuðum svo heim og skiptum um föt og fórum svo á PIZZA ROMA og fengum okkur að borða ROSA GOTT svo var bara slakað á í kvöld yfir TV. Kristinn fékk að sjálfsögðu pakka , en við mæðgur gáfum honum bók ,en þeir sem þekkja Kristinn vita hvað hann er mikill bókaormur og hann er búinn að finna sér danskann höfund sem hann kann vel við og fékk hann bók númer 2 í afmælisgjöf og var ALSÆLL með það. Það er búið að vera ERFITT fyrir mig að banna honum að kaupa sér þessa bók síðastliðna daga hef reynt að segja honum að bíða eftir kiljunni HE HE HE
Hann bauð uppá rúndstykki í vinnunni og íslenskt nóa konfekt sem danirnir kunnu VEL að meta. Ég er að fara að vinna en ég er aðeins betri í höndinni
og vona ég bara að það haldist þannig.
Jæja ég minni enn og aftur á gestabókina og athugasemdirnar hér fyrir neðan, og við þökkum fyrir þær afmæliskveðjur sem Kristinn fékk í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. desember 2006
KRISTINN Á AFMÆLI Í DAG :) :)



Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 13. desember 2006
MARGRÉT ORÐIN SPRÆK 'A NÝ :)
Nú ætla ég að byrja á að óska henni Fanney vinkonu okkar ynnilega til hamingju með afmælið, við sendum þér afmæliskossa og knús , njóttu dagsins
Já en hún Margrét okkar fór nú bara eldhress í skólann í gær og var bara eins og ekkert gubberí hefði verið ég veit ekki alveg hvað er í gangi með hana en þetta er í 4 eða 5 sinn síðan við fluttum út sem hún gubbar eina gusu og svo ekki meir og þetta er alltaf á nóttinni
já eins og ég segi þá veit ég sko ekki hvað er að valda þessu
En hún er hress og kát núna og fór spennt í skólann því hún er að fara í kirkjuna á jólaleikrit með skólanum í dag
Ég fór í nudd og hnykk í gær ,en ég er búin að vera að drepast í hægri höndinni síðan á sunnudag (of mikið föndur) HE HE nei ég segi nú bara svona. En ég er semsagt með klemmdar taugar í öxlinni sem leiðir niður í fingur sem þíðir að ég er með mikla verki í öllum handleggnum og höndin er frekar kraftlaus ég á að setja fostpoka á öxlina 3x á dag og gera léttar æfingar svo er það nudd og hnykk aftur eftir viku
og taka því rólega í vinnunni, ekkert að snúa fólki bara gefa lyf og þannig
vona ég nú að ég verði orðin góð fyrir jól svo að Kristinn þurfi nú ekki að skera steikina ofan í mig og opna pakkana
nei ég bíð sko með pakkana ef ég verð ekki orðin góð það er ekkert gaman að láta annan opna pakkana fyrir sig
En ég verð orðin góð
Jæja ætla að fara að hvíla hendina og skella ís á hana BRBRBRBr KALLLT
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 11. desember 2006
Margrét lasin :(
Já skottan okkar vakti mig um miðnætti í nótt, með því að öskra ÉG ER BÚIN AÐ GUBBA MAMMA ég var ekki að trúa þessu en jújú ALLT í ælu í herberginu hennar og hún NÁFÖL í framan þessi elska
Hún gubbaði nú ekki meira en er frekar slöpp í dag.
Ætla ég svo að gera jólahreingerningu á herberginu hennar í dag Kristinn skrapp á pósthúsið með jólakortin til ykkar
og svo ætlar hann að koma við í sjoppu og kaupa kók og snakk handa skottunni og einnig leigja eins og eina videomynd fyrir hana. Hann fer svo á kvöldvakt í kvöld en hann skipti á fimmtudeginum þar sem hann á jú afmæli á fimmtudaginn og langaði að vera heima það kvöldið
Vona ég nú að Margrét hressist í dag og mæti spræk í skólann á morgun Hún er búin að vera að gera allskonar jólajóla í frístundinni einn daginn kom hún heim með þessa líka flottu aðventuskreytingu og svo í síðustu viku gerðu þau brjóstsykur og kom hún heim með fullan poka af þeim á föstudaginn NAMMI NAMM rosa góðir hjá henni
Svo á miðvikudaginn fer hún í kirkjuna með skólanum en eldri krakkarnir sýna jólaleikrit, fékk hún boðskort með heim um daginn
En nú ætla ég að fara að þrífa herbergið hennar heyrumst síðar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. desember 2006
Mjög fín helgi :)
Já við erum búin að eiga mjög góða helgi Á laugardaginn kiktum við aðeins á jólastemninguna í bænum og svo um kvöldið fórum við á JULEFROKOST með TOYOTA liðinu var það fínt en þetta var á STÓRUM stað í Aarhusum svona álíka og NASA, það voru 150 manns frá TOYOTA og sátum við með fínu fólki á borði ( sem nennti að spjalla við mig )
Fannst okkur nú frekar fyndið að á borðunum var léttvín og bjór í könnum og var vel fyllt á
vorum við nú róleg í þannig drykkjum enda fórum við snemma þar sem við þurftum að sækja Margréti en hún skemmti sér konunglega þar sem hún var í pössun svo að allir áttu gott kvöld
Í dag erum við búin að vera að klára að ganga frá jólakortunum og svo fórum við í bíó á HAPPY FEET sem er alveg hreynt FRÁBÆR MYND Í ALLA STAÐI
Jóhanna vinkona Margrétar kom með okkur og svo kom hún með okkur heim að leika eftir Bíó var svaka stuð á þeim stelpunum
Jæja nú ætla ég að koma stúlkunni í draumaheimana
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 8. desember 2006
HALLÓ ALLIR !!
Jæja það er enn mjög skrýtið desember veðrið hér hjá okkur í danaveldi, eða 15c hiti og rigning. Það ringdi svo mikið í gær að ég var eins og hundur á sundi þegar ég kom uppí skólann hennar Margrétar, það var svo mikið rok að það þýddi ekkert að nota regnhlíf. Svo tókum við nú bara strætó heim en ég var öll rennblaut og þurfti að hafa alskipti við heimkomu Við bökuðum piparkökur og vanilufingur í gær og tókst mjög vel
Í morgun fór ég svo í nudd og kikti svo aðeins í búðir. Ég er búin að redda pössun annað kvöld svo að við komumst bæði á jólahlaðborð
sem að verður eflaust mjög gaman. En það er ein í vinnunni sem ætlar að fá Margréti í heimsókn hún á 8 ára tvíbura svo þetta verður bara gaman fyrir Margréti. Við erum svo búin að kaupa miða á HAPPY FEET sem verður frumsýnd hér um helgina þetta er víst mjög skemmtileg fjölskyldu mynd og erum við búin að bjóða Jóhönnu vinkonu Margrétar með, við förum á bíóið semsagt á sunnudag = nóg að skemmtun um helgina
Í kvöld á að slaka á baka pizzu frá grunni í kvölmat og hafa það VERULEGA KÓSÝ
MUNIÐ AÐ GESTABÓKIN BÝTUR EKKI OG HAFIÐ ÞAÐ SEM ALLRA BEST UM HELGINA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 6. desember 2006
Komin jólalitur
Já þá er búið að skella jólalit á síðuna en því miður fann ég einga Jólamynd en þetta verður bara að duga. Í nótt voru þrumur og eldingar 10c hiti og ROK frekar furðulegt Desember veður, og voru þær að segja í vinnunni að það hafi ekki verið svona hlýtt í desember síðan sjautjánhundruð og súrkál
og finnst þeim þetta mjög skrýtið veður.
Nú er Margrét í afmæli og ég er að fara að vinna í kvöld en ég skulda einni í vinnunni vakt og ætla að borga skuldir mínar í kvöld, svo er ég komin í frí Við ætlum að klára að græja jólakortin um helgina og senda af stað á mánudag, svo þið fáið þau vonandi fyrir jól, við vonum líka að einhver nenni að senda okkur kort OKKUR FINNST SVO GAMAN AÐ FÁ jólakort
Ég veit að við fáum allavega 2 kort eitt frá Bylgju sem var að vinna með mér á Rofaborg en býr nú í Aarhus, svo efast ég nú um að hún systir mín sleppi kortinu til mín í ár þrátt fyrir að þurfa að senda það á milli landa
en við vonumst allavegana til að fá fleiri en 2 kort. Við hjónin erum vonandi að fara á jólahlaðborð með TOYOTA en við erum ekki búin að redda pössun
,vonandi reddast það, annars verður Kristinn bara að fara 1 en mig langar að sjálfsögðu að fara líka og prófa Danskt jólahlaðborð en það kemur í ljós hvort ég kemst
En jamms og jæja ég ætla að kveðja ykkur í bili, kveðja frá vorhitanum í danaveldi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 5. desember 2006
Skrýtið veður
Já í dag er búið að vera frekar skrýtið veður eða 17c hiti og mikið rok. Ég fór á fund í vinnunni,Margrét fór heim með vinkonu sinni og Kristinn sótti okkur svo þegar hann kom til Silkeborg Margrét er að fara í afmæli hjá BESTU vinkonu sinni á morgun til kl:16:30 svo að ég ætti að geta sofið vel
Skoðunin í Randers kom þannig út að hún er lág í 2 efnum sem ég get ekki munað hvað heita en þeir vilja samt ekkert gera við því að svo stöddu. Hún er á réttri leið og hefur bætt á sig 1kg síðan hún var útskrifuð í seinna skiftið
við eigum svo að mæta aftur í mars með hana í tékk.
Jæja það var nú gott að Grímur og Dögg fengu að vera í friði fyrir tollurunum hefði verið frekar fúlt ef þeir hefðu rifið upp allar gjafirnar
Held að ég hafi nú barasta ekkert meira að segja í dag bið að heilsa ykkur í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. desember 2006
Helgarfærslan
Jæja þá er FRÁBÆR helgi á enda komin við áttum mjög góða helgi með Grím og Dögg. Grímur kom á föstudagsmorgni og sóttum við hann inn í Aarhus svo kom Dögg um kvöldið og var hún sótt á lestarstöðina hér í Silkeborg. Kristinn eldaði svínalundir og góðgæti með UUUMMMMM
Svo var setið og spjallað fram eftir kvöldi. Kristinn þurfti síðan að mæta til talningar í vinnunni á laugardagsmorgun en við hin tókum lestina inní Aarhus og kíktum á mollið á lestarstöðinni ÞVÍLÍK GEÐVEIKI þar allir að kaupa jólagjafir og þar á meðal Grímur og Dögg var ég nú bara mjög hissa á hvað þau náðu að kaupa af gjöfum í öllum þessum látum
Kristinn sótti okkur svo eftir talningu og var brunað heim ALLIR ÞREYTTIR Svo um kvöldið lá leiðin á JENSENS BÖFFHUS alltaf jafn gott
Sunnudeginum var svo eitt í smá sýnisferð um borgina okkar og afslöppun og svo Andabringur í kvöldmat og Hættuspil eftir mat. Eldsnemma í morgun eða kl:5 fóru Kristinn og Grímur og Dögg inn til Aarhusa en þau áttu flug í hádeginu.
Takk æðislega fyrir frábæra helgi og góða sendingu frá klakanum
Á eftir förum við svo með Margréti út í Randers í tékk og fáum þá vonandi loka svör á þessu öllu saman.
Bæjó í bili og hafið það sem ALLRA best fjölsyldan í Dalsvinget 54
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 30. nóvember 2006
Bangsi reyndi að strjúka :(
Já í morgun þegar ég kom heim ákvað ég nú að leyfa fjórfætlingnum að spræna, en NEI NEI var ekki bara þessi myndarlega tík að spóka sig hér fyrir utan og Bangsi að sjálfsögðu tók á rás á eftir henni Stökk Kristinn í föt og fórum við út að leita en EINGINN Bangsi
eftir dálitla leit hringdi síminn og var það maðurinn sem átti tíkina, sem sagt Bangsi hafði ellt hana heim og hún býr hinum megin við skóginn svo að hann hefur ellt hana góan spotta. Margrét va ralveg miður sín yfir að hann var ekki heima þegar hún fór í skólann en hún vissi að hann var fundinn þegar hún fór
Þegar hann kom svo loks heim eftir þetta ævintýri SKAMMAÐIST HANN SÍN SVO MIKIÐ hann vissi sko alveg uppá sig sökina og fór beint inní búr
Og héðan í frá er það ólin þegar hann fer að spræna ( ætla sko EKKI að missa hann aftur)
Jæja húsbóndinn er aftur á kvöldvakt og ætlum við mæðgur að slaka á í kvöld og ætla ég snemma að sofa var búin að vaka í 25 tíma þegar ég fór loks að sofa í morgun og svaf aðeins í 5 tíma í dag svo já SNEMMA í rúmið í kvöld
Annars erum við öll bara hress og kát að vanda og hlakkar okkur öllum til morgundagsins en þá koma Grímur og Dögg til okkar þau ætluðu að koma í kvöld en Dögg þarf að sitja Læknafund í Köben á morgun svo þau koma á morgun í staðinn
Grímur ætlar að taka morgunlestina svo hann mun koma um hádegi og svo kemur Dögg seinna um daginn.
Ætlum við að fara út að borða og fleira skemmtilegt með þeim um helgina og fáið þið nánari skýrslu eftir helgi
ÉG KVEÐ ÞÁ AÐ SINNI, húsmóðirin Dalsvinget 54
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)