Færsluflokkur: Bloggar

Lokafærsla hér

jæja þá erum við komin heim til íslands og þá ætlum við að hætta að skrifa hér inn og nota eingöngu barnalandið.
Ferðalagið gekk allt saman vel og komumst við klakklaust heim :) ég sit hér á Brautarhóli Kristinn er að vinna Margrét er með vinkonu í heimsókn og strákarnir sofa úti.
Margrét byrjaði í skólanum í gær og eignaðist strax 2 vinkonur og eru þær búnar að vera hér að leika í allan dag en það er frí í skólanum á föstudögum LÚKSUS bara í sveitinni HEHE Bjarni Harald heimsótti leikskólann í dag og leist svo vel á að hann vildi ekkert heim aftur hann byrjar svo í aðlögun á mánudaginn. Mér líst rosa vel á leiksólann og erum við bara alsæl með þetta allt saman. Það er frábært hvað krakkarnir eru að aðlagast vel :)
Gámurinn kemur svo vonandi í næstu viku og þá er bara að koma sér fyrir og gera kósý :) tengdó eru búin að gera voða kósý hjá sér í "gamla"bænum en eru ekki flutt enn en gera það líklegast bara þegar gámurinn kemur.
Við erum komin með GSM Kristinn 896 7003 Ragna 896 7004 Margrét 84489888 svo sláið bara á þráðinn :)
Bæjó

Margrét sjónvarpsstjarna :0)

já já hún Margrét Svanhildur var í sjónvarpinu í gær, en handboltaliðinu hennar var boðið að ganga inn á völlinn með spilurunum hér í Silkeborg í stórum leik Grin hún fékk eiginhandaráritanir á handboltaskóna sína og var sko bara í sínu stóra essi þegar hún kom heim Grin

Annars var ég nú á spítala alla síðustu viku , en þegar ég vaknaði á mánudaginn fann ég ekki fyrir vinstri hliðinni í líkamanum Blush ég hélt nú að þetta myndi ganga yfir og var hér í rólegheitum með Símoni og svo lagði ég mig með honum í 3 tíma og þegar við vöknuðum var ég = lömuð í vinstri hliðinni Frown ég hringdi í Kristinn og hann hringdi á slysó sem sendi sjúkrabíl eftir mér, ég lá svo á taugadeildinni í Aarhus alla vikuna en fékk að fara heim á föstudag en er ekki útskrifuð þar sem ég er að bíða eftir myndatöku, það er LANGUR biðlisti í þessa myndatöku og sagði ég við þá að ég gæti ekki legið þarna og beðið þar sem ég er nógu hress til að vera heima þá vil ég það jú helst. Ég er núna að bíða eftir að þeir hringi í mig og láti mig vita hvort ég fæ að vera heima eða hvað Errm ég var annars rannsökuð bak og fyrir og öll þau svör sem eru komin komu vel út Wink Þetta var nú ekki alveg það sem við þurftum núna í flutningunum en við verðum bara að vona að ég fái að vera heima. Kristinn var heima með Símon alla vikuna og fór að vinna í morgun Margrét er heima í vetrarfríi alla þessa viku og hún getur jú hjálpað mér ef þarf Wink

Annars gengur bara vel að pakka og er Kristinn búinn að vera þvílíkt duglegur kassarnir eru orðnir 85 svo það er hægt að segja að við eigum eitthvað af dóti HEHE an það er nú ekki svo mikið eftir ætli við flytjum ekki með 100 kassa og poka Smile

Jæja best að leggjast á sófann meðan Símon sefur Wink


Halló allir !!

Ákvað að gefa mér tíma og skrifa nokkrar línur hér, þó það sé nú mest lítið í fréttum þá þarf maður nú að láta vita af sér Smile

Snjórinn er ekki farinn enn þó það hafi ringt á þriðjudaginn þá var það ekki nóg til að snjórinn færi það er líka enn kallt eða frá 0 til - 3  á mánudaginn var nú samt - 13 BRBRBRBR Crying 

Allir eru hressir og kátir fyrir utan smá nefrennsli hjá gaurunum en það fylgir nú bara kuldanum held ég Blush  Bjarni Harald er alltaf jafn ánægður hjá Tinu "nýju" dagmömmunni og er hann farinn að tala heilan helling réttast sagt stoppar hann ekki HEHE  hann er orðinn spenntur að fá afa Halla og ömmu Tótu en við erum búin að segja honum að þau koma með flugvélinni og svo förum við með þeim, um daginn horfði hann spurningar augum á mig og sagði " Halli koma núna? " ég alveg neiei elskan hann kemur ekki í dag þá dæsti hann og sagði" Halli koma núna í dag ...ekki bíða " HEHE Símon Mikael er duglegur að skoða heiminn á 4 fótum og er duglegur að safna kúlum og marblettum á hausinn þar sem hann stendur upp við allt og heldur að hann geti labbað líka án þess að styðja sig við HEHE Margrét Svanhildur  hefur nóg að gera í skólanum og handboltanum og sundinu og vinkonunum og er bara hin hressasta hún er orðin voða spennt að koma heim til Íslands Wink 

Flutningsundirbúningur er í fullum gangi og hlaðast kassarnir upp , við erum búin að bóka lest til Köben og hótel í Köben nóttina áður en við fljúgum nú vantar bara að bóka bed and breakfast eina nótt hér í Silkeborg þá eru þau mál klár Wink það eru akkurat 4 vikur í dag þar til við setjum í gáminn svo þetta fer að bresta á Grin

Við erum að fara í matarboð hjá foreldrum Jóhönnu "bestu vinkonu Margrétar" í kvöld og er svo búið að bjóða Margréti að gista þar svo það verður stuð  hjá þeim Tounge

Jæja læt þetta duga í bili bæjó


Hellú hellú

Mig langar að byrja á að óska Bylgju og Sigfús ynnilega til hamingju með prinsinn sem fæddist á laugardaginn , sjáumst á laugardaginn Smile

Bjarni Harald er búinn að heimsækja slysó í fyrsta skipti, en hann datt hjá dagmömmunni á föstudaginn þar sem hann var að príla á hillu, að sjálfsögðu þurfti hann svo að lenda á eitthverju dóti og beit því gat í gegnum neðri vörina Blush ég fór með hann á slysó þar sem þetta var þrifið vel og vandlega en annað er ekki hægt að gera við svona, hann stóð sig eins og hetja og fékk meira að segja ís hjá lækninum svo hann var bara hæstánægður með þessa slysóför sína Grin hann er síðan búinn að líta út eins og andrés önd með bláan gogg um helgina en þetta er allt saman að gróa Smile

Við erum bara að pakka á fullu og er kominn stór og stæðileg kassa stæða í hornið á stofunni Wink 

Það er enn snjór og kallt hjá okkur og sér víst ekkert fyrir endan á því á næstunni, Margrét er alsæl með snjóinn og er búin að vera úti að renna sér alla helgina með Cecilie vinkonu sinni en hún gisti hér alla helgina og var svaka stuð á þeim skvísunum :0)

Jæja læt þetta duga í bili bæjó


Gleðilegt nýtt ár !

Gleðilegt ár kæru vinir og ættingjar. Og elsku Linda ynnilega til hamingju með afmælið í dag InLove

Við erum búin að hafa það rosalega gott hér í danaveldi yfir hátíðarnar, bara rólegheit,göngutúrar, hangikjetsát og nóakonfekt í skál Grin  pakkaflóðið var svo mikið að það tók rúma 2 tíma að opna þetta allt saman, krakkarnir fengu rosa fínar gjafir og voru í skýjunum með kvöldið Wink við fengum HVÍTJÓL og var bara nokkuð mikill snjór og er enn. Við áttum rólegt og gott kvöld í gær, horfðum á íslenska skaupið, sprengdum smá rakettur,skáluðum við Margréti og svo bara í rúmið Smile 

Við erum búin að kaupa flug heim og komum við þann 28 febrúar Grin mamma og pabbi koma 21 febrúar og förum við svo öll saman heim Wink við erum aðeins byrjuð að pakka svo þetta er bara allt að gerast Wink


Gleðilega hátíð !!!

Bestu jólakveðjur úr snjónum í Silkeborg !!

 

Kristinn,

Ragna,

Margret,

Bjarni,

Simon

 


Fréttir fréttir :)

loksins er eitthvað að frétta af okkur og ég er EKKI ófrísk HAHAHA Tounge nei við erum búin að selja húsið okkar og erum við á heimleið í lok febrúar Grin planið er að flytja á Brautarhól ( líklegast gamlabæinn) og svo að demba sér í samvinnu með foreldrum Kristins. Okkur hlakkar öllum til ,allavegana okkur hjónum og Margréti strákarnir vita jú lítið hvað er að gerast Wink Margrét mun byrja bara strax í skólanum og Bjarni er komin með leikskólapláss og svo kemst Símon á leikskólann næsta haust Smile Svo það þarf bara að bretta upp ermar eftir jól og byrja að pakka í kassa svo ætla mamma og pabbi að koma til okkar og hjálpa við loka pökkun og setja í gáminn með okkur og fljúga með okkur heim semsagt þau koma og sækja okkur HEHE það er jú bara yndislegt að fá þessa aðstoð frá þeim og metum við þess mikils InLove

Annars er bara jólasnjór hjá okkur og kalt , í morgun var -11 brbrbr Crying svo Símon svaf inni í morgun svo var komið í - 5 eftir hádegið svo Bjarni gat sofið úti vel dúðaður í poka og með bútateppið frá ömmu Tótu yfir sér svo hann andi ekki frostinu ofan í lungun Wink 

 


Húsbóndinn orðinn árinu eldri :)

Já Kristinn átti afmæli á mánudaginn síðastliðinn, við elduðum nautalundir í tilefni dagsins og höfðum það kósý Wink

Stína kom á laugardaginn með 19 kg af jólapökkum,Hangikjöt og nóakonfekt Grin við erum búin að bralla ýmislegt saman eins og  baka 4 smákökusortir, setja upp jólatré (sem verður skreytt í dag) við fórum svo í bæinn í gær og kláraði ég jólagjafirnar og hún gat verslað sér föt. Í dag á bara að slaka á , svo kemur mömmuhópurinn á morgun og annað kvöld erum við að fara á jólabingo hjá TOYOTA , á föstudaginn eru svo jólatónleikar hjá Margréti Svanhildi og svo á að gera eitthvað skemmtilegt á laugardaginn og svo fer Stína heim á sunnudaginn. Kristinn er búinn að fá lánaða "rútu" svo allir komist með á bingo og svo við getum gert eitthvað öll saman Smile

Þegar við  vöknuðum í morgun var allt hvítt úti og fannst Bjarna Haraldi þetta nú frekar skrítið fyrirbæri og var alveg hissa á þessu, hann þekkir jú ekki snjó þessi elska FootinMouth hann benti bara í allar áttir og sagði "se pabbi se " hehe já hann talar dönsku og íslensku í bland. Hann er alsæll hjá nýju dagmömmunni og er eiginlega bara eins og hann hafi alltaf verið þar Wink svo það gengur bara vel með hann þar.Ég  fékk nú hláturskast áðan þegar ég var að hlusta á útvarpið og heyrði að það væri allt stopp í miðbænum og götur lokaðar vegna snjó ,ÞAÐ ER EINGINN SNJÓR það nær ekki einu sinni uppá ökkla hér útí garði þetta er rétt uppá skósóla HAHAHA þessir danir eru alveg ótrúlegir þegar kemur að snjó HAHAHA DANIR OG SNJÓR EIGA EKKI SAMLEIÐ GetLost

Jæja er hætt í bili bið að heilsa ykkur að sinni

 


Allir orðnir hressir má segja :)

jæja jæja þá er þetta að taka enda með þessi veikindi Wink reyndar er Margrét Svanhildur heima í dag með augnsýkingu en fer í skólann á morgun þar sem hún er byrjuð í meðhöndlun með dropa, Símon Mikael er með smá vírus í munninum og fær dropa við því, Bjarni Harald er sprækur sem lækur og er orðinn þreyttur á að vera heima hann er samt heima í dag þar sem dagmamman hans er komin í veikindaleyfi og mun hann byrja hjá nýrri dagmömmu á morgun og verður þar til June er hress á ný, við þekkjum hina dagmömmuna þar sem dóttir hennar er í sama bekk og Margrét Smile

Hjúkkan kom í heimsókn áðan og gerði 8 mánaða þroskapróf á Símoni hann kom vel útur því og er orðinn 9kg og 74cm svo hann stækkar vel, hún var bara rosa ánægð með hann.

Við bökuðum piparkökur,döðlukökur og hindberjakökur á laugardaginn og bragðast allt rosa vel NAMM NAMMGrin Bjarni Harald vildi nú ekkert skera piparkökurnar út með formum heldur bara setja klessur á plötuna og fékk hann að sjálfsögðu leyfi til þess og var hann rosa stoltur af sýnum kökum HEHE svo skreyttu þau kökur í morgun og hlustuðum við á jólamusik á meðan BARA KÓSY Wink

Jæja ætla að fara að nota tímann meðan bræðurnir hrjóta hérna sitthvoru megin við húsið Wink


Að sjálfsögðu veiktist Bjarni Harald líka :(

Jájá hann Bjarni Harald er orðinn lasinn núna loksins þegar Margrét er orðinn hress Frown er þetta ekki bara týpískt . Hann fékk hita á laugardaginn og var frekar slappur um kvöldið og í gærkvöldi hann er nú búinn að vera nokkuð hress í dag bara með smá hitavellu en alveg viljað leika og skemmta mömmu sinni Wink held nú að þetta sé bara eitthver venjuleg flensa í honum.

Ég og Bjarni Harald röltum uppí búð á föstudaginn og sáum þegar kveikt var á jólatréinu þar, svo kiktum við í te til nágrannans Wink helgin fór svo í að jólaskreyta og reyna að láta Bjarna sofa sem mest en hann er jú ekki vanur að sofa inni svo það gekk upp og ofan. Margrét Svanhildur var svo að keppa í handbolta í gær og fór ég með henni, þær unnu báðu leiki og hún skoraði eitt mark sem hún fékk verðlaun fyrir Smile Krakkarnir fengu jú öll aðventugjafir í gær en það er danskur siður að gefa aðventugjafir, Margrét og Bjarni fengu sitthvora DVD myndina og Simon fékk fyrsta bílinn sinn.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband