Fimmtudagur, 8. mars 2007
MIKIÐ AÐ GERA NÚNA ÞESSA DAGANA
já nú er sko mikið að gera hjá okkur ég var að vinna þriðjudag og í dag og svo á morgun Kristinn er búin að vera hér í Silkeborg í gær og í dag og á morgun og svo öll kvöld í húsinu .Smiðurinn er langt komin og Kristinn er byrjaður að sparsla meðfram gatinu sem var verið að fylla uppí og ég var að byrja á Margrétar herbergi áðan. Kristinn er núna upp í húsi að sparsla og undirbúa parketvinnu Margrét er búin að vera að leika í húsinu við hliðina en þar búa systur ,sú eldri er jafngömul Margréti og þekkjast þær því úr skólanum og svo er sú yngri 4 eða 5 og geta þær allar leikið mjög vel saman eins og Margrét kýs að orða það. Það er einginn smá munur að hafa vinkonur fyrir hana bara í næsta húsi og býst ég við að þetta verði eins og Gvendargeislanum = hún verður alltaf úti að leika sem er nátturlega bara frábært
Margrét fór með frístundinni á sædýrasafn í dag og fannst það mjög gaman svo var hún úti að leika með nágrannastelpunum alveg til kl:6 enda komið vor í loftið hér hjá okkur, svo var brunað heim eldað mat og svo var hún rotuð kl:8 alveg búin á því litla skinnið
Hún er svo að fara í afmæli á laugardaginn og Kristinn er að fara á fund og útað borða í Aarhus og ég ætla að kikja í kaffi til Anitu sem var að vinna með mér á Næturvöktunum
það verður fínt að kikja á hana og spjalla smá. Ætli við verðum svo ekki allan sunnudaginn uppí húsi og það sem eftir er af næstu viku til að ná að flytja inn þann 17. Þetta verður törn en það verður líka gott þegar þetta er búið
uuummm
nú held ég að ég hafi ekki meira að segja í bili annað en góða helgi og gangið hægt um gleðinnar dyr
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 6. mars 2007
LÆKNASTÚSS OG HÚSASTÚSS
Ég ætla nú að byrja á að þakka fyrir allar kveðjurnar TAKK TAKK .
Já í gær fórum við Margrét með rútunni til RANDERS en það tók rúman klukkutíma, svo lentum við á mjög fínum lækni sem er nú alveg sammála okkur um að þetta gangi ekki lengur hún er jú búin að vera með niðurgang stanslaust í 5 mánuði EKKI GOTT hann skipulagði semsagt hellings rannsóknir í viðbót og voru teknar blóðprufur í gær og svo á að athuga með efnaskiptin í líkamanum, og hvort hún sé með eithverskonar ofnæmi, og svo eitthver MJÖG SPES rannsókn sem við þurfum að eyða degi í á sjúkrahúsinu í Aarhus og þar þurfa þeir að fá 3x nýjar afförrings prufur (hægða prufur)já ég veit það er kannski ekki huggulegt að lesa þetta en þetta er sem er næst á dagskrá og nú er bara að vona að það finnist hvað er í gangi og hægt sé að gera eitthvað fyrir hana
hún er orðin VERULEGA þreytt á þessu litla skinnið
við vorum 2 klukkutíma í þessu stússi í gær og kiktum svo á búðarráp í kringlu í Randers og lyftum okkur aðeins upp eftir blóðprufurnar
og eyddum smá pening þar. Svo sótti Kristinn okkur og við brunuðum í IKEA og versluðum smá þar . Svo lá leiðin uppí Hús og hittum við á smiðinn þar og var hann búinn að saga gat í vegginn og svo í dag hitti ég hann aftur og hann ætlar að stefna á að klára verkið á morgun eða hinn . En við erum búin að mála stofuna og svefnherbergið og skápinn hjá Margréti en það eru gamlir skápar og ákváðum við að lífga uppá þá við eigum eftir að mála hurðarnar á skápnum í okkar herbergi sem eru DÖKKBLÁAR núna ekki alvega að fýla það og þær verða hvítar. Við stefnum svo á að flytja inn þann 17 mars svo ef þú ert laus þá SIGFÚS þá myndum við gjarnan vilja fá aðstoð við flutningana
annars er bara allt á fullu ég var að vinna í dag til 15:30 fór svo í húsið og hitti á smiðinn og svo á að hvíla lúin bein í kveld enda verður ekki málað meira fyrr en smiðurinn er búinn. Jæja nú held ég að ég hafi ekki meir að segja í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 3. mars 2007
HEJ ALLE SAMMEN
Jæja nú fáið þið smá bloggfærslu Við erum byrjuð að mála í húsinu og erum nú bara nokkuð sátt við litavalið okkar
Húsið var TIPP TOPP þegar við fengum afhent, en þetta er 1.skipti sem ég tek við húsi eða íbúð og þarf ekki að byrja á að skrúbba allt hátt og lágt
MIKILL MUNUR. Svo skildu fyrri eigendur eftir ýmislegt handa okkur eins og stiga til að komast uppá háaloft, garðklippur allskyns parket bón og olíu, allskynstappa og aukahluti í eldhúsið og bara hitt og þetta. Svo á að eyða helginni uppí húsi og mála og mála en á fimmtudaginn fór ég um eitt leitið og teypaði allt í stofunni og okkar herbergi svo öll undirbúningsvinna er að mestu búinn. Svo kom smiðurinn sem ætlar að fylla uppí vegg og búa til hurð í öðrum vegg(það eina sem við gerum ekki sjálf) og ætlar hann að byrja á mánudaginn og þá getur Kristinn byrjað að parketleggja á miðvikudag eða fimmtudag, en já við fórum í gær og fjárfestum í parketi en það var á 50% afslætti svo að við ákváðum að kaupa á Margrétar herbergi og ganginn við fengum semsagt fm á 300dkr í staðinn fyrir 700dkr já þetta er frekar dýrt parket sem blessað fólkið valdi
en þetta tilboð er bara um þessa helgi svo við stukkum af stað strax í gær og þetta var til á lager svo parketið er komið uppí hús.
Já ég var að vinna á BALLE BÖRNEHAVE á fimmtudag frá 9-13 og svo hringdi hún um 9 leitið í gærmorgun og bað mig um að koma sem fyrst ég var nú sofandi þegar hún hringdi svo að ég stökk á fætur skellti í mig mig morgunmat og hjólaði uppeftir var mætt 9:20 já ég var frekar snögg var ég svo til kl:15 og gekk þetta bara rosalega vel og féll ég bara strax inní hópinn
mér líst vel á þennan leikskóla og það tóku allir mjög vel á móti mér bæði starsmenn,börnin og foreldrarnir svo að þetta lítur bara vel út
hérna eru börnin með matarpakka með sér en hver deild eldar svo með börnunum einu sinni í viku og börnin eiga svo sína daga sem þau koma með bollur eða þessháttar handa allri deildinni sem þau fá svo í kaffinu semsagt hvert barn kemur með kaffimat af heiman ca einu sinni í mánuði. Þetta er nú soldið öðruvísi hér en heima en hér eru blandaðar deildarnar frá 3-6 ára og börnin fá að flakka á milli deilda í frjálsum leiktíma og það er ekki svona mikið planað hvað börnin eiga að gera eins og heima á íslandi þetta er allt miklu frjálsara og mér sýnist þetta ganga bara alveg mjög vel, það er nátturlega líka planað eins og ferðir útí bæ, leikfimistímar og þessháttar.
Ég og Margrét erum svo að fara til Randers á mánudaginn en hún á að mæta í tjekk á barnadeildinni og er ég frekar spennt að heyra hvað þau segja því þetta er ekki að ganga nógu vel hjá henni hún er með niðurgang næstum hvert skipti sem hún fer á WC og hvartar enn um verki hún er semsagt búin að vera með í maganum síðan 6. okt svo að þetta er orðið frekar langdreigið og nú er bara að berja í borðið hjá læknunum og fá einhver SVÖR TAKK þetta gengur ekki svona FOR EVER við ætlum að taka rútuna og svo sækir Kristinn okkur eftir vinnu ég skal svo henda inn færslu hér á mánudagskveld
og þangað til segi ég bara GÓÐA HELGI og VERIÐ GÓÐ HVORT VIÐ ANNAÐ og já TAKK TAKK fyrir allt KVITTIÐ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
ALLT AÐ GERAST :0)
Já nú eru hlutirnir farnir að gerast hér á þessum bæ VIÐ FÁUM HÚSIÐ OKKAR Í DAG NÁKVAMLEGA KL:15:30 AÐ ÍSLENSKUM TÍMA Erum við ógurlega spennt að fara að mála og gera fínt þar, og Margrét getur varla beðið eftir að komast í garðinn góða
en hér þar sem við búum núna er svoddan bílaumferð og menn úti að vinna uppi á þökum svo að hún hefur ekki getað verið mikið úti að leika með vinkonunum þegar þær koma í heimsókn
svo sagði Jóhanna í gær (hún kom aftur með okkur heim ) að í nýja húsinu er sko GÓÐUR garður og þar geta þær sko leikið alveg í friði (hún þekkir stelpuna sem bjó í húsinu) og var að reyna að hughreysta Margréti sem var frekar leið yfir að geta ekki verið úti
Já þetta verður sko miklu betra þar sagði Margrét þá ógurlega glöð
Svo fékk í hringingu frá BALLE BÖRNEHAVE og var beðin um að mæta til vinnu á morgun kl:9 þetta er fyrsta skiptið sem þær þurfa á mér að halda svo að ég er voða glöð yfir að fá að koma og prófa danskann leikskóla vona ég svo bara að ág fái fleirri hringingar
því ekki meika ég að sitja heima og gera ekki neitt þó svo að ég fái jú nóg af verkefnum næstu daga í húisnu ,een ég fæ jú ekki borgað fyrir það
en þetta reddast allt ég var líka ekki búin að segja ykkur að ég er búin að SÆKJA UM SKÓLA já þið lásuð rétt ég er búin að sækja um í sjúkraliðaskólanum hér í SILKEBORG og vona að ég komist þar inn og þá ætti ég að geta byrjað þar 1. JÚLÍ þetta er semsagt 18 mánaða nám og ég fæ 100.000 ísl. á mánuði í laun og 10.000 ísl.í bókastyrk á önn, svo það besta (fynnst mér) það er bara einu sinni próf , eða í lok námsins ekki í lok hvers áfanga eins og heima ,þetta hentar PRÓFSKREKK eins og mér rosa vel
en þetta á allt eftir að koma betur í ljós en þið megið alveg KROSSA FINGUR fyrir mig
EN nóg af blaðri í dag ætla að reyna að gera eitthvað hér heima bæ í bili og munið GESTABÓKINA KNÚS OG KRAM FAMILIEN Bjarnason
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
HELLÚ ALLE SAMMEN
jæja í morgun fórum við hjónin og versluðum málningu og pöntuðum rosa flott veggfóður fyrir Margrétar herbergi svo fórum við og sóttum Margréti og fékk leyfi til að taka 2 vinkonur sínar með heim og eru þær búnar að vera að leika sér og vera í tölvunni og flissa og pískrast um strákana í bekknum HI HI þær skemmtu sér alveg glimrandi vel
Kristinn er á kvöldvakt í kvöld en hann skipti á fimmtudeginum svo að við getum öll sömul tekið við lyklunum af HÚSINU okkar
og svo verður bara málað um helgina allavegana byrjað
Svo var pabbi Jóhönnu að bjóða fram aðstoð sína við að veggfóðra þegar hann heyrði að við höfum aldrei veggfóðrað þá var hann fljótur að segja okkur bara að hringja
held að það sé nú betra að fá einn vanann svo að þetta verði PURRFEKT.
Myndin sem við fórum á í gær var alveg þræl fín og gátum við öll skemmt okkur konunglega, svo var LAMBALÆRI í matinn rosa gott
Nú er farið að bergmála í húsinu okkar og við erum búin með alla kassa sem við áttum svo nú er bara að bíða til fimmtudags Kristni er farið að klæja í puttana að byrja í húsinu
Svo erum við búin að taka þá ákvörðun að kaupa bara parket á Margrétar herbergi og leyfa teppinu að vera á ganginum, það er svo dýrt parketið sem er á stofunni og 1 herberginu en okkur langar að setja eins á svo að við ákváðum að gera þetta bara í rólegheitum enda liggur ekkert á og einginn sem segir að það þurfi að gera allt STRAX
við viljum bara ekki að Margrét hafi teppi á sýnu herbergi (finnst það ekki sniðugt uppá hósta pg þannig ) svo að hennar herbergi verður gert TIPP TOPP
En nú ætla ég að fara að elda PASTARÉTT bið að heilsa í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)