KOMIN TÍMI Á SMÁ FÆRSLU :)

já nú finnst mér vera komin tími á smá færslu hér, það er búið að vera nóg að gera núna síðustu daga. Margrét var að keppa í fótbolta á þriðjudag og svo var það æfing hjá henni í gær, Kristinn er búin að vera vinna og vinna en þeir eru ENN undirmannaðir og ég er búin að vera á fullu í skólanum og í nuddi og nálstungum svo þetta eru búnir að vera langir dagar. Við mæðgur skriðum nú bara saman uppí kl:20 í gær en ég var gersamlega búin á því var búin að vera í skólanum til 15 og svo beint í nálastungur og loks komin heim kl:16:30 ég er mjög þreytt þegar ég er búin í nálastungunum en mér finnst þær vera farnar að virka svo það er bara frábært Smile Margrét er núna næstu vikur að vinna verkefni um hjólin í skólanum og þá eiga krakkarnir að koma hjólandi og svo eru þau að fræðast um hjólin í umferðinni og þess háttar henni finnst þetta alveg ógurlega spennandi og er alveg mjög mikið upptekin af þessu verkefni Grin Ég er líka búin að vera að vinna verkefni í viku í skólanum en við fórum í grunnin á "KOST" það er að segja mat og hvernig er hægt að bæta lyst hjá sjúklingum og gera matinn á spítulunum gyrnilegri, þetta er mjög spennandi verkefni og lærdómsríkt T.D. reiknuðum við út einn dag hvað við borðuðum og fengum með því að sjá hvort við segum að borða rétt. ég kom bara vel út og er að borða nóg miðað við að vera BOMM og er ég að fá nokkuð réttan skammt af næringarefnum Wink 

JÆJA JÆJA nú held barasta að ég hafi ekki meira að segja af okkur annað en við erum öll hress og kát að vanda Grin kær kveðja FAMILIEN 


NÓG AÐ GERA ÞESSA HELGINA

Já það er hægt að segja að það sé búið að vera ágætlega mikið að gera hjá okkur núna um helgina. Á föstudaginn fórum við í mat til foreldra Jóhönnu vinkonu Margrétar og sátum þar og spjölluðum fram eftir kveldi og stelpurnar höfðu það huggulegt yfir VIDEO og fengu FREDAGS SLIK með Wink þetta var mjög huggulegt kvöld. Á laugardeginum fór Margrét í afmæli hjá Marienne en hún er ný í bekknum og var mikil spenna að fara í þetta afmæli og var Margrét alsæl eftir það. Ég er svo búin að vera að lesa en við fengum mikla heimavinnu þessa helgina FootinMouth eða um 80 blaðsíður í NATURFAG. Náði ég nú að klára lesturinn í gær og á að njóta dagsins í dag í góðu veðri (hita og sól) Grin  Kúlan stækkar og stækkar núna og barnið spriklar vel og Kristinn er farin að finna spörkin líka en Margrét er ekki nógu þolinmóð og tekur hendina af kúlunni ef hún er ekki búinn að finna spark EINN TVEIR OG BINGÓ, en hana langar svo mikið að finna spark svo að  hún hlýtur að fara að verða heppinn eða þolinmóðari Wink ég finn líka mikið fyrir samdráttum en ég man ekki eftir að hafa fundið svona mikið fyrir þeim þegar ég gekk með Margréti en eingin meðgangan er nú eins.

Jæja nú hef ég ekki meira að segja í  bili og bið bara að heilsa ykkur kær kveðja Ragna


STUTTUR SKÓLADAGUR :)

Já ég er alltaf búin snemma á þriðjudögum eða kl:10:45 þetta er vegna þess að ég þarf ekki að taka ensku . Ég er núna heima að lesa og svo sæki ég Margréti kl:1 en ég ákvað að hafa kósýdaga með henni á þriðjudögum Grin hún verður jú líka að fá sinn tíma með múttu sinni Wink annars byrjaði hún í skólanum í gær og var alveg alsæl eftir fyrsta daginn,Kristinn fór með henni á skólasetninguna og hún fékk fullt af möppum og lestrarbók. Svo byrjaði líka fótboltinn líka í gær og svo var hún úti að hjóla eftir kvöldmat svo að mín var ÞREYTT í gærkvöldi eftir góðann dag Sleeping 

Við áttum mjög rólega og fína helgi Margrét fór í afmæli á laugardeginum og við Kristinn fórum í blóma-ávaxta búð hér í hverfinu og keyptum fullan kassa af girnilegum ávöxtum NAMMINAMM svo var á sunnudeginum fór Margrét að leika hjá vinkonu sinni svo að við hjónin höfðum það bara huggulegt hér heima.Við erum núna þessa dagana að föndra SKRAPPBOOK um fyrsta árið okkar hér í DK rosa skemmtilegt og verður gaman að sýna ykkur þegar þið komið í heimsókn Wink 

Við settum inn myndir á síðuna hennar Margrétar svo endilega kíkið á það. Annars bið ég bara að heilsa í bili kær kveðja RAGNA 


Til Hamingju með Daginn Bræður :) :)

Já þeir eru víst orðnir einu ári eldri litlu bræðurnir mínir. Rúnar er víst 24 og Grímur er 28, semsagt báðir á besta aldri og ekki að verða 30 eins og stóri bróðir. Þetta er víst að koma en nú get ég notið þess að vera seint á árinu og er 29lengur. Við höfum það annars mjög gott þessa dagana, eins og komið hefur fram hér á bloginu er dúndur veður í DK og við erum loks að uplifa sumarið. Í gær var reyndar of rakt fyrir mig, það var svona molla í loftinu. Margrét hún er farin að hlakka til að byrja aftur í skólanum. Hún er að fara núna í 1B og byrjar á mánudaginn. Ég ætla að fara með henni á mánudaginn en þá meiga foreldrar mæta milli 9 og 10.Jæja þá læt ég þetta duga í bili og vona að allir hafi það gott um helgina.Kristinn

BLÓÐTÖKU DAGURINN MIKLI

Já það er hægt að kalla daginn í dag fyrir BLÓÐTÖKU DAGINN MIKLA Tounge en ég var semsagt mætt á SILKEBORG SENTRAL SYGEHUS kl: 7:30 en ég var boðuð í sykusýkistest vegna þess að hann afi heitinn var jú með sykursýki. Jæja þetta tók 2 tíma en fyrst var tekið blóð úr eyrnasneppli og svo átti ég að drekka eitt stykki flösku af ógeðslegri sykurupplausn og svo að bíða í 2 tíma og svo aftur blóðprufa Blush ekki gaman að húka þarna í 2 tíma en ég las fyrir skólann að sjálfsögðu (nýta tímann) HIHI Svo þegar ég mætti í skólann í NATURFAG þá áttum við að taka blóð úr okkur sjálfum og finna út hvaða blóðflokki við erum í JÁJÁ MEIRA BLÓÐ Shocking en þetta gekk nú bara aldeilis vel hjá mér og var þetta bara frekar spennandi verkefni (hef aldrei áður tekið blóð úr sjálfri mér) 

Annars er bara allt gott hér ROSALEGA heitt í dag eða um 30c og sól ÚFFÚFF ekki gott að sitja í skólastofunni með sólina beint á gluggann sátum allar með blævingi í dag Tounge en veðrið á nú bara að vera svona gott eitthvað fram í næstu viku svo þetta er nú bara fínt.við vorum jú búinn að fá nóg af rigningu og dimmum dögum Blush

Jæja best að fara lesa fyrir mánudaginn en ég reyni að hafa frí frá lestri um helgar svo að maður eigi nú pínu líf líka fyrir utan skólann Wink kær kveðja Ragna


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband