GÓÐ HELGI

Jæja þá er búið að sækja um passa fyrir Bjarna Harald og gekk það allt saman vel,hann svaf alla leiðina til Köben og vaknaði svo fyrir myndatökuna drakk gubbaði útum allt í sendiráðinu Blush og sofnaði svo aftur Blikka Við áttum síðan rosa fína helgi í svíþjóð hjá Kidda og Níní og var Margrét alveg að fíla að stússast í þríburunum og hjálpaði hún mikið til með þau Wink TAKK AFTUR FYRIR OKKUR

Í nótt var Bjarni Harald eitthvað pirraður og ég tók hann því uppí fann ég þá að hann var VEL heitur mældi hann svo í morgun og var hann með 38.5 Frown hann er síðan búinn að sofa í allan dag en drekkur þó ágætlega hann er jú frekar pirraður yfir þessu greyið en mamman er bara þolinmóð og situr með hann Wink vona bara að þetta gangi fljótt yfir.

jæja nú vill hann láta taka sig bæ í bili Ragna 


2 vikur í Íslandsför :)

Já nú eru ekki nema 15 dagar í að við komum á klakann ótrúlegt hvað tíminn líður hratt BrosandiGasp 

Ég var með mömmuhitting í gær og gekk það mjög vel Bangsi var voða hissa á öllum þessum smábörnum en var voða fegin þegar þau voru farin aftur og steinsvaf í stólnum sínum HIHI. Ein úr hópnum ætlar að passa Bangsa um helgina en hún á sjálf hund og maðurinn hennar er hundaþjálfari svo ætli hann verði ekki þreutþjálfaður eftir helgina HAHA (ætli það)

Við förum til köben snemma á föstudagsmorgun og þegar við erum búin í sendiráðinu þá verður brunað til Lund í Svíþjóð og  verður helginni eytt þar með Kidda(frænda Kristins) Níní konunni hans og börnunum þeirra 4 , við erum voða spennt að hitta þau enda höfum við mæðgur aldrei séð þríburana nema á myndum svo að þetta verður voða gaman. 

Bjarni Harald er farin að fá eina tsk af sveskjumauki á morgnanna og eina tsk af rísgraut á kvöldin og er hann ALLT annar á nóttinni núna (loksins saddur) honum finnst þetta bæði voða gott og smjattar vel á þessu góðgæti Tounge ég átti nú tíma í sprautu fyrir hann í morgun en frestaði því um viku þar sem hætta er á að hann fái hita og fannst mér ekki sniðugt að fara með hann í dag þar sem við erum að fara þetta um helgina.

jæja nú orgar hann á mat bless í bili Ragna 


Rólegur Laugardagur :0)

jæja þá eru Linda og Hulda Rún búnar að vera hjá okkur en þær fóru snemma í morgun Kristinn fór líka í morgun til Köben að hitta vinnufélagana frá TOYOTA Kópavogi svo að þau keyrðu saman. Kristinn gat fengið bílaleigubíl báðar leiðir og þarf því ekki að borga bensín né brúnna Blikka heppilegt að það þurfti einmitt að flytja bíla á milli.

Við áttum rosa góðan tíma með Lindu og Huldu Rún og kíktum meðalannars í bæinn í gær þrátt fyrir rok,rigningu og haglél  Errm en við létum það ekki stoppa bæjartúrinn og tókum öll strætó í bæinn og meira að segja Kristinn líka(fyrsta skiptið hans í strætó í silkeborg) Linda gat aðeins verslað á útsölum svo að bæjarferðin gerði sitt gagn Smile  Svo höfðum við það bara kósý með þeim mæðgum og nutum þess að hafa þær hjá okkur,stelpurnar voru rosalega góðar saman (eiginlega eins og systur) og léku sér mjög vel saman.Margrét var hálf leið í morgun þegar þær fóru og fannst þær hafa stoppað frekar stutt Vandræðalegur en ég huggaði hana með að segja henni að það eru ekki nema 19 dagar þangað til við förum til íslands Já ég er ekki alveg að ná því hvað það er stutt í að við hittum ykkur öll GaspSmile

Margrét fór síðan kl:8:15 í morgun en hún átti að keppa í handbolta kl:9 hún fékk far með vinkonu sinni svo að ég þurfti ekki að fara með Bjarna Harald líka svo kom mamma vinkonu hennar hér eftir leikinn og sagði að Margrét færi með þeim heim að leika og hún myndi bara keyra hana heim þegar þær nenntu ekki að leika meira núna er kl:16:45 svo að þær leika greinilega vel og mikið Grin

Við Bjarni Harald eru því bara búin að hafa það kósý í dag (fyrir utan smið á þakinu) en erum nú búin að sofa og kúra okkur enda veðrið til þess (rigning og rok) 

Kristinn ætlar út að borða með köllunum í kvöld og keyra svo heim svo við Margrét munum hafa kósýkveld í kvöld  með íslensku nammi sem Linda kom með frá tengdó Grin

jæja læt þetta duga í bili knús og kram Ragna  

 


LOKSINS BLOGG :)

Jæja þá hef ég loks tíma að skrifa smá færslu hér Wink Ég og krakkarnir erum búin að eiga mjög góða viku í fríi við fórum í bæinn á miðvikudaginn en hún Margrét var búin að safna sér svo miklum pening og ákvað að kaupa sér eitthvað sniðugt hélt ég þá að sjálfsögðu að því yrði öllu eytt í dótabúðunum en NEINEI hún vildi ekki einu sinni fara inn í dótabúðina heldur keypti hún sér buxur bol og peysu voða flott skvísuföt Smile og var mamman bara ánægð með sína. Við fórum á kaffihús og fengum okkur að snæða og við áttum bara rosalega góðan og skemmtilegan dag.

Á fimmtudeginum fórum við svo í sumarbústað en við fengum lánað sumarhúsið hjá foreldrum Lisbet, við buðum Bergþóru,Jóni,Kormáki og Kristófer með okkur og var þetta rosa fín helgi fyrir utan KULDA fyrstu nóttina en rafmagnið var eitthvað að stríða okkur svo að annaðhvort var að hægt að hafa ljós eða hita EKKI BÆÐI Errm Kristinn fann svo útaf þessu á föstudeginum en það var sem betur fer kamína í stofunni svo að við hugguðum okkur bara þar á meðan restin af húsinu var við frostmark. Við fórum niður á strönd á föstudeginum og tíndum steina og skeljar og krakkarnir og hundurinn skemmtu sér konunglega, svo var keiptur ís og brjóstsykur í bænum. Á laugardeginum fóru Kristinn og Jón svo með krakkana í sund og voru þar í 3 eða 4 tíma Bjarni svaf úti og við Bergþóra sátum inni með teppi og höfðum það kósý og spjölluðum um heima og geima Grin annars gekk helgin útá það að  borða góðan mat ,spila ,með krökkunum og hafa það kósý, við skemmtum okkur öll vel. Á bakaleiðinni fórum við svo í afmæli hjá Lisbet og svo var brunað heim.

Í gær vorum við Bjarni nú frekar þreytt bæði 2 svo að við sváfum og reyndum að hafa það kósý en það er verið að skipta um þak (það fór að leka ) svo að það var frekar MIKILL hávaði hér hjá okkur GetLost

Planið fyrir daginn í dag er að slaka á og þvo þvott. Á morgun er svo mömmuhittingur hér heima og svo koma Linda og Hulda Rún líka á morgun svo það verður gaman hér hjá okkur á morgun Smile

Kristinn hringdi í ÍSLENSKA sendiráðið í morgun því við þurfum að fá passa fyrir prinsinn og héldum við að við myndum bara þurfa að senda mynd og upplýsingar og svo sækja bara passann þegar við förum til köben een NEI NEI við þurfum að mæta bæði og að sjálfsögðu með Bjarna með okkur það þarf að taka mynd hjá þeim og við þurfum að vera á milli 10 og 12 svo tekur þetta 5 daga svo að við erum neydd til að bruna til Köben Frown við ætlum nú að reyna að fara á föstudegi og reyna þá kannski að eyða helginni þar eða jafnvel í svíþjóð okkur finnst ekki hægt að bruna með prinsinn fram og til baka á sama degi. En þetta eru víst einhverjar nýjar reglur hjá þeim en svo gildir passinn í 5 ár.

Jæja læt þetta duga í bili bið að heilsa ykkur RAGNA

Þið megið alveg KVITTA eftir lesturinn Grin


MÁNUDAGURINN 11 FEBRÚAR

Við áttum nú bara rólega helgi þar sem húsbóndinn lagðist í rúmið með hita og kvef dauðans Blush en hann fór nú að vinna í morgun ágætlega hress. Það var vorblíða hjá okkur um helgina eða 11c og sól svo að guttinn okkar svaf úti báða dagana og Margrét var úti að leika með Cecilie og Rasmus úr bekknum en þau búa bæði hér í götunni.

Ég og krakkarnir hittum Annette og Lukas í morgun og röltum með þeim í Fötex og BabySam svo vorum við bara heima að hafa það kósý. Á morgun er svo mömmuhittingur og hlakkar Margréti mikið til að fá að koma með og sjá hina krakkana Wink 

Svo hringdi hún Linda (frænka Kristins)áðan og spurði hvort hún og Hulda Rún mættu koma í heimsókn í nokkra daga í næstu viku JEDÚDDA MINN hvað við vorum hissa og JIMINN hvað okkur hlakkar MIKIÐ til að sjá þær Grin 

Svo er hann Bjarni Harald í VAXTARKIPP ÚFF ÚFF ég geri ekki annað gefa honum brjóst og pela seinnipartinn svo er hann að drekka 200ml fyrir nóttina og sefur svo í 7 tíma sem er sko EKKI slæmt Wink

Jæja ætli það sé ekki best að fara að elda ofaní liðið pabbinn er að gefa syninum pela svo að það er

ég sem að elda í kveld Smile

kOSSAR OG KNÚS Ragna 

Já ég var að setja inn fleirri myndir á barnalandið LoL


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband