FREDAG DEN 11. APRIL

Já það er komin föstudagur enn og aftur (ekki slæmt það ) þessi vika er búin að líða hratt enda nóg að gera svosem. Á mánudaginn fórum við Bjarni í bæinn með Anette og Lukas og var það mjög gaman, þriðjudaginn komu Jonna og Milla (úr mömmuhópnum) í kaffi og við fórum saman í göngutúr, Kristinn fór á námskeið á miðvikudaginn útí Middelfart og gisti þar því hann sat annað námskeið þar í gær, ég þurfti með Margréti til læknis í gær en hún fékk sár á fótinn á Handboltaæfingu fyrir 2 vikum síðan hún fékk plástur á sárið og greinilega þá þoldi hún ekki þennan plástur því hann var tekin daginn eftir að hann var settur á og viti menn hún var komin með þvílík útbrot hring um löppina Frown  hún er semsagt enn með þessi útbrot og þau vesna bara frekar en hitt, hana klæjaði svo mikið í þetta í gær að hún hringdi í mig úr skólanum og sagðist ekki líða nógu vel í löppinni, læknirinn sagðist aldrei hafa séð annað eins og skrifaði uppá krem sem á að bera á þetta 2x á dag svo á hún að koma aftur í næstu viku. Ég var alltaf að bíða eftir að þetta myndi hverfa og greyið lilta búin að vera að klæja og svíða í þetta í allan þennan tíma Blush en nú vonum við bara að kremið hjálpi og þetta fari fljótt. Í dag fórum við Bjarni í göngutúr í sólinni og svo á að grilla í kveld já það er komið GRILLVEÐUR Cool svo er planið að kikja í bæinn á morgun og svo á aðeins að vinna í garðinum um helgina Wink 

Já við erum dugleg að hafa eitthvað fyrir stafni hér á bæ enda óþarfi að láta sér leiðast Grin

En þið megið alveg vera duglegri að kvitta í gestó bæði hér og hjá krökkunum það er svo gaman að fá smá línu frá ykkur.

Góða helgi knús Ragna og allir hinir 


KOMNAR MYNDIR Á BARNALANDIÐ :0)

Já við settum inn FULLT af myndum í gær á Barnalandið Smile

Þessi helgi er búin að vera mjög róleg og góð reyndar er búið að vera nóg að gera hjá Margréti eins og alltaf en hún gisti hjá Cecilie hérna í götunni á föstudagskvöldið og svo léku þær sér í allan gær dag, Kristinn fór svo með þær á skauta og skemmtu þau sér mjög vel. Kristinn er að vinna í dag og Margrét er með Luise vinkonu sína í heimsókn og þær eru úti að leika í góða veðrinu, Bjarni Harald sefur úti og svo eru smiðirnir að setja gafla á húsið svo að það er nóg um að vera í kotinu núna Wink

Ég sjálf er nú bara að slaka á og þvo þvott og þannig (alltaf nóg af þvottinum ) ég ætla svo líklegast með Anette í bæinn á morgun en við erum að spá í að fara með strætó í bæinn og kikja aðeins í búðirnar    Það er bara vorblíða og fuglasöngur hjá okkur svo að það er kominn vor/sumar fílingur í mann , við heyrðum meira að segja í slátturvel í gær svo að við erum greinilega ekki þau einu sem  erum komin í vorfílinginn Cool    

ENDILEGA MUNIÐ AÐ KVITTA

KNÚS RAGNA 


Jæja þá eru allir komnir heim í kotið á ný :)

Já við mæðginin komum heim á þriðjudaginn vorum við nú bæði þreytt eftir ferðalagið enda langt ferðalag. Bjarni Harald var nú góður mest allan tíma fyrir utan smá söng fyrir fólkið í vélinni þegar við fórum frá borði HEHE   við tók klukkutíma bið eftir lestinni og svo 4 tímar í lest ÚFFÚff ég hélt þetta ætlaði aldrei að taka enda en Bjarni svaf mest alla lestarferðina en ákvað að syngja líka aðeins fyrir farþegana í lestinni rétt í lokin HEHE.  

Ég fór svo með Margréti til læknis á miðvikudaginn og var hún bara nokkuð ánægð með hana og vill sjá hana eftir ár.  Bjarni Harald er mun betri af lyfjunum og svo fær hann líka spes mjólk(ekki til soya þurrmjólk í DK)  en læknirinn hér er nú ekki viss um að hann þoli ekki kúamjólk og vill athuga það betur eftir mánuð (KROSSA FINGUR) vona svo ynnilega að hann þoli kúamjólkina Blush    En hann er semsagt mun kátari núna og tekur ekki eins mörg grátköst og áður Wink  Hann er farinn að babla heilmikið og nagar ALLT sem hann nær í enda eru 2 tönnslur á leiðinni Tounge Hann er farinn að borða VEL af sveskjumauki á morgnanna og svo graut með perumauki útí á kvöldin ( ELSKAR ÞAÐ) Wink

Við fórum svo í KÆRE BÖRN í gær og keyptum líka þessa flottu regnhlífakerru frá CHICCO þetta er mjög kröftug og góð kerra með almennilegum dekkjum ICELAND EXPRESS borgar svo flottheitin á mánudaginn Grin     enda var þetta mjög góð kerra sem var eyðilögð.

Kristinn og Margrét eru núna útí garði að setja áburð á grasið og Bjarni Harald sefur útí vagni svo ég er aðeins ein inni í rólegheitum Smile

Setjum inn myndir fljótlega á barnalandið BÆJÓ og góða helgi Kissing


Sunnudagur 30 Mars

Jæja góðan daginn,

Við Margrét erum núna búin að vera 2 í DK síðan á Þriðjudag og gengur allt vel. Við fórum í flug síðastliðinn Þriðjudag kl 15:30. Reyndar byrjaði Flugstöðin á því að eyðilegga Regnhlífarkerruna okkar með að klemma hana á færibandinu hjá sér. Hún var svo illa farinn að ég hirti bara pokan og regnslánna af henni og bað svo um að láta henda henni. Samt ekkert sérstaklega spennandi þegar maður er kallaður upp í hátalara kerfinu á vellinum og beðin að koma í VOPNALEITINA.Undecided Jæja en við komust nú samt að lokum í loftið og áleiðis til Köben. Jökull móðurbróðir var á vellinum og beið okkar með bílinn okkar. Við fórum heim til þeirra í Taastrup og þágðum kvöldverð áður en  við héldum alla leið til Jótlands (Silkeborg). Þegar við vorum komin rétt Vestur fyrir StórKaupmannahafnarsvæðið byrjaði að snjóa og var snjór meira og minna alla leiðina heim. Vegna snjókomu og seinkunar á vélinni vorum við fyrst komin heim kl 2 um nóttina og áttum bæði að vakna snemma næsta morgun. 

Síðan hefur daglegt amstur tekið við og var nóg að gera hjá Margréti í vikunni. Handbolti á fimmtudag og svo handbolta slútt á laugardeginum frá 4-10 um kveldið. Síðan í dag var brunað til Lisbet á suðurjótlandi og náð í hundinn okkar hann Bangsa sem var þar í MJÖG góðu yfirlæti.

Við erum farinn að hlakka til að fá Mömmu heim og litla bróðir. Við fengum reyndar slæmar fréttir af honum frá Íslandi. Ragna fór með hann til læknis og litli kallinn minn var komin með vírus í hálsin. Læknarinir villja reyndar meina að hann sé með bakflæði og það sé orsök þess að hann er ælandi lon og don, ásamt því að honum líði illa í maganum. Hann á að taka einhver lyf næsta mánuðinn og svo eigum við að sjá hvað setur.

Jæja bestu kveðjur frá Feðgininum í ADvej 25.

P.S. Þið megið kvitta í athugasemdir. Gaman að heyra frá fólki. 


Smá svona færsla

Ég vil byrja á að þakka öllum þeim sem að mættu í skírnarveiszlu síðasliðinn laugardag. Takk kærlega fyrir allar þær kveðjur og gjafir handa honum Bjarna Harald.

Veislan tókst vel og var vel sótt. ca 60manns og það var rosalega gaman að sjá alla vini og ættingja okkar svona á einum stað.

Erum kominn í bæin og hún Ragna mín verður hérna í bryggjuhverfinu hjá bróður sínum. Er með síman sinn með sér. (+45 6128 8855).

Við Margrét erum svo á leiðinni í flug á morgun enda nóg að gera í vinnu og skóla.

Bestu kveðjur frá familiunni ADvej 25.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband