Allir orðnir hressir má segja :)

jæja jæja þá er þetta að taka enda með þessi veikindi Wink reyndar er Margrét Svanhildur heima í dag með augnsýkingu en fer í skólann á morgun þar sem hún er byrjuð í meðhöndlun með dropa, Símon Mikael er með smá vírus í munninum og fær dropa við því, Bjarni Harald er sprækur sem lækur og er orðinn þreyttur á að vera heima hann er samt heima í dag þar sem dagmamman hans er komin í veikindaleyfi og mun hann byrja hjá nýrri dagmömmu á morgun og verður þar til June er hress á ný, við þekkjum hina dagmömmuna þar sem dóttir hennar er í sama bekk og Margrét Smile

Hjúkkan kom í heimsókn áðan og gerði 8 mánaða þroskapróf á Símoni hann kom vel útur því og er orðinn 9kg og 74cm svo hann stækkar vel, hún var bara rosa ánægð með hann.

Við bökuðum piparkökur,döðlukökur og hindberjakökur á laugardaginn og bragðast allt rosa vel NAMM NAMMGrin Bjarni Harald vildi nú ekkert skera piparkökurnar út með formum heldur bara setja klessur á plötuna og fékk hann að sjálfsögðu leyfi til þess og var hann rosa stoltur af sýnum kökum HEHE svo skreyttu þau kökur í morgun og hlustuðum við á jólamusik á meðan BARA KÓSY Wink

Jæja ætla að fara að nota tímann meðan bræðurnir hrjóta hérna sitthvoru megin við húsið Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ elskurnar mínar, vona svo sannarlega að allir séu orðnir hressir hjá ykkur ...bara komið nóg af því. Það er gott að Stína er komin til ykkar. Og svo Krissi minn til hamingju með daginn í dag..(Skrifað 14.desember)..þrátt fyrir að fylgja færslu 7unda. Bestu kveðjur. Linda og Hulda Rún.

Linda frænka (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 09:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband