Góð helgi að baki :)

já við áttum frábæra helgi hér á bæ, Símon Mikael er fluttur inn til Bjarna Haralds og gengur það bara mjög vel þeir hrjóta vel og þungt þar í kór Sleeping

Svo var jú afmælisveisla fyrir Bjarna Harald á laugardaginn og komu Bergþóra, Jón, Kristófer og Kormákur frá Gadbjerg og svo Bylgja,Sigfús,Rakel Talía og kúluprins frá Aarhus :) Bjarni Harald var í essinu sínu og naut dagsins í botn. Bergþóra og CO gáfu honum tösku með allskonar litum í og var sunnudeginum eitt í að lita og lita Grin svo fékk hann bubba byggir og selmu og bíl frá Bylgju og CO og er búið að leika mikið með þau bubba og selmu og þau fá alltaf koss þegar hann finnur þau í dótakörfunni (mikið uppáhald hann bubbi byggir)  

Kristinn var svo í fríi í gær og vorum við reyndar öll heima þar sem Bjarni Harald var þreyttur eftir helgina og Margrét Svanhildur orðin veik.

Margrét og Símon eru núna lasin með hita,kvef og beinverki, læknirinn vildi nú meina áðan þegar ég hringdi að þetta hljómaði eins og svínaflensan Frown en ég verð bara að vera dugleg að láta þau drekka og bara hjúkra þeim Wink 

Kristinn ætlar bara að vera úti með Bjarna Harald eftir vinnu á eftir svo þeir smitist ekki líka Wink en ég er sjálf að drepast í hálsinum og eitthvað slöpp en samt hitalaus held ég. 

Jæja ætla að fara að spjalla við músu mína bið að heilsa ykkur í bili Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergþóra Hlíf Guðmundsdóttir

Takk fyrir okkur, alltaf gaman að koma

Bergþóra Hlíf Guðmundsdóttir, 19.11.2009 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband