Sunnudagur, 10. desember 2006
Mjög fín helgi :)
Já við erum búin að eiga mjög góða helgi Á laugardaginn kiktum við aðeins á jólastemninguna í bænum og svo um kvöldið fórum við á JULEFROKOST með TOYOTA liðinu var það fínt en þetta var á STÓRUM stað í Aarhusum svona álíka og NASA, það voru 150 manns frá TOYOTA og sátum við með fínu fólki á borði ( sem nennti að spjalla við mig )
Fannst okkur nú frekar fyndið að á borðunum var léttvín og bjór í könnum og var vel fyllt á
vorum við nú róleg í þannig drykkjum enda fórum við snemma þar sem við þurftum að sækja Margréti en hún skemmti sér konunglega þar sem hún var í pössun svo að allir áttu gott kvöld
Í dag erum við búin að vera að klára að ganga frá jólakortunum og svo fórum við í bíó á HAPPY FEET sem er alveg hreynt FRÁBÆR MYND Í ALLA STAÐI
Jóhanna vinkona Margrétar kom með okkur og svo kom hún með okkur heim að leika eftir Bíó var svaka stuð á þeim stelpunum
Jæja nú ætla ég að koma stúlkunni í draumaheimana
Athugasemdir
Hæ hæ
Við Grímur eyddum helginni á Brautarhóli. Oddný og Bjarni fóru á hótel Örk yfir helgina og í jólahlaðborð. Það var kósí jólastemming í sveitinni og ég bjó til fullt af jólakortum og krakkarnir gerðu jólahreingerningu (rosalega dugleg)
Kveðja Dögg
Dögg (IP-tala skráð) 11.12.2006 kl. 06:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.