Mánudagur, 4. desember 2006
Helgarfærslan
Jæja þá er FRÁBÆR helgi á enda komin við áttum mjög góða helgi með Grím og Dögg. Grímur kom á föstudagsmorgni og sóttum við hann inn í Aarhus svo kom Dögg um kvöldið og var hún sótt á lestarstöðina hér í Silkeborg. Kristinn eldaði svínalundir og góðgæti með UUUMMMMM
Svo var setið og spjallað fram eftir kvöldi. Kristinn þurfti síðan að mæta til talningar í vinnunni á laugardagsmorgun en við hin tókum lestina inní Aarhus og kíktum á mollið á lestarstöðinni ÞVÍLÍK GEÐVEIKI þar allir að kaupa jólagjafir og þar á meðal Grímur og Dögg var ég nú bara mjög hissa á hvað þau náðu að kaupa af gjöfum í öllum þessum látum
Kristinn sótti okkur svo eftir talningu og var brunað heim ALLIR ÞREYTTIR Svo um kvöldið lá leiðin á JENSENS BÖFFHUS alltaf jafn gott
Sunnudeginum var svo eitt í smá sýnisferð um borgina okkar og afslöppun og svo Andabringur í kvöldmat og Hættuspil eftir mat. Eldsnemma í morgun eða kl:5 fóru Kristinn og Grímur og Dögg inn til Aarhusa en þau áttu flug í hádeginu.
Takk æðislega fyrir frábæra helgi og góða sendingu frá klakanum
Á eftir förum við svo með Margréti út í Randers í tékk og fáum þá vonandi loka svör á þessu öllu saman.
Bæjó í bili og hafið það sem ALLRA best fjölsyldan í Dalsvinget 54
Athugasemdir
Takk fyrir okkur, við skemmtum okkur mjög vel og það var frábært að sjá nýja heimilið ykkar. Tollararnir létu okkur alveg vera!!!!
Kveðja Dögg og Grímur
Dögg (IP-tala skráð) 5.12.2006 kl. 11:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.