AFMÆLI OG LITLU JÓLIN

Í dag á húsbóndinn afmæli og er hann orðinn 31 árs "gamli kallinn" við ákváðum því að gefa hvort öðru jólagjafir og krakkarnir fengu gjafir frá okkur svo á að elda góðann mat og hafa það kósý í kvöld Wink Bjarni Harald varð aftur veikur á fimmtudaginn en dagmamman "gleymdi"að setja hann í lopasokkana þegar hann  fór út að sofa "það var frost" og var hann svo kaldur frá tám upp að hnjám að ég hef aldrei vitað annað eins hann var eld rauður og þrútinn af kulda ARRG hvað ég varð reið útí hana þegar ég sá þetta og þá var hann líka kominn með 39c í hita Frown og rauk uppí 40 um kvöldið, svo var hann slappur hér á föstudaginn og rauk uppí hita á föstudagskvöldið Frown hann er búinn að vera hitalaus í gær og í dag og krossum við bara fingur að það haldist þannig. Ég ætla svo aðeins að ræða við dagmömmuna á morgun og láta hana vita að við séum EKKI glöð með þetta. Kristinn er LOKS að hressast en þeir eru báðir MJÖG kvefaðir Blush

Margrét stóð sig eins og hetja á miðvikudaginn á helgileiknum og vorum við  SVO stolt af henni Grin hún talaði mjög hátt og skýrt og var bara hin rólegasta í þessu.

Margrét fékk náttborð frá okkur í jólagjöf og eru þau núna að setja það saman, Bjarni fékk FICHER PRICE bóndagarð með fullt af dýrum og traktor og öðrum fylgihlutum og var hann alsæll með það Wink

Best að fara að huga að matseldinni biðjum að heilsa öllum og sjáumst brátt Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergþóra Hlíf Guðmundsdóttir

Innilega til hamingju með daginn Kristinn. Vonandi hafið þið átt góð "Jól" og afmæli. Ragna þú tókst nú ekki fram hvað þið fenguð í jólagjöf.

Þvílíkt kæruleysi í dagmömmunni að passa hann ekki betur þegar hann er ný búin að vera veikur, ég yrði líka brjáluð.

Jæja knús og við sjáumst á Íslandi, góða ferð.

Bergþóra Hlíf Guðmundsdóttir, 14.12.2008 kl. 16:46

2 identicon

Til hamingju með daginn Kristinn, þið verðið vonandi búnir að hressast áður en haldið er til Íslands. Ég get sent Rakel Talíu á dagmömmuna og látið hana skalla hana, hún er mjög góð í að skalla fólk...lætur okkur vita ef þig vantar svoleiðis þjónustu:) Biðjum annars öll innilega að heilsa bara þarna inneftir.

Sigfús Örn (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 11:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband