Búin að fara í atvinnuviðtal :)

og mér leist bara mjög vel á þetta Smile ég er semsagt komin með vinnu hjá afleysingarfyrirtæki og vona núna bara að ég fái sem flestar vaktir Wink

Annars er bara allt rólegt hér Bjarni Harald fór að skríða á 4 fótum á mánudaginn og fer núna um allt og reynir að standa upp við ALLT Wink systur hans finnst hann nú frekar erfiður stundum þegar hún vill fá frið en hann sækir MJÖG mikið í hana og skilur ekki alveg afhverju hún vill hann ekki alltaf inn í herbergi hjá sér og afhverju hún þarf stundum frið til að læra og þannig HEHE LoL hún er samt alltaf jafn hrifin af honum og er rosalega þolinmóð og góð við hann. Hann vill alltaf fá koss frá henni þegar hún fer í skólann og svo stöndum við  við eldhúsgluggann og horfum á eftir henni og hann vinkar á fullu og fylgir á eftir henni svo lengi sem hann sér hana Grin BARA KRÚTT Tounge

Við erum farin að gefa Bjarna Harald fisk og finnst honum það veislumatur eins og allt annað sem hann fær, hann fékk líka ristaðbrauð í fyrsta sinn áðan og fannst honum það algjört lostæti Tounge

Margrét er svo að fara á fótboltaslut á eftir en það verður heima hjá þjálfaranum og fá þær allar DIPLOMA og svo verða pylsur og gos Wink

Jæja prinsinn er vaknaður svo ég er hætt í bili  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært að þér lýst vel á nýju vinnunna, og það er vonandi að þú fáir eins mikið af vöktum og þú ráðir við

Enn er að myndast systkyna kærleikur...hehe

Og það er frábært að Bjarni skuli alltaf vera tilbúinn að smakka nýjan mat

Kv. Jóhanna Elín

Jóhanna Elín (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband