Mánudagur, 13. nóvember 2006
Margrét kölluð í fleiri rannsóknir !
Já síminn hringdi hér klukkan 07 í morgun, var það læknirinn sem var með Margréti á föstudaginn og var hún eitthvað búin að vera að bera bækur sínar við kollega sína um helgina og vilja þau fá hana aftur til rannsókna á morgun. Vona ég nú að þeir finni hvað er að maganum í henni því að hún var aftur komin með niðurgang í gær og svaf MJÖG illa um helgina fyrir verkjum í maganum Hún verður alltaf frekar slöpp á kvöldin og sagði læknirinn að við mættum endilega koma úteftir í kvöld sem að ég held að ég geri þar sem hún er slöppust á kvöldin, það er líka þæginlegra fyrir Kristinn að skutla okkur í kvöld
en þetta kemur allt í ljós í dag.
Annars vorum við bara heima í gær að gera jólakort og hafa það KÓSÝ. Svo fór ég í nudd í morgun og tók Margréti með mér því hún er heima þar sem hún er ENN með niðurgang. Fórum við svo í LYKKE SKO og keyptum á hana kuldaskó og var ECCO fyrir valinu, vildum við kaupa almennilega skó enda eru þeir ekkert mikið dýrari en aðrir skór hér og þeir eru líka vatnsheldir svo örkuðum við í KÆRE BÖRN og keyptum jólakjól á hana, og við keyptum líka jólakjól á BIRTU HULD vinkonu hennar svo þær verða eins um jólin bara í sitthvoru landinu
Nú erum við komnar heim í kotið og sjúklingurinn lagstur í sófann við TV þar sem hún er mjög orkulítil er hún alveg búin á því eftir smá bæjarferð
En ég bið bara að heilsa að sinni og læt ykkur vita hvað kemur útur þessu á morgun
Athugasemdir
Hæ allir í Dalsvignet
Hvað er að frétta af henni Margréti er hún að verða betri í maganum?
Allt fínt að frétta héðan af klakanum en það er sko kalt. Uúuuuuffffffff.
Allir á Rofaborg biðja að heilsa.
Kveðja Badda
Badda og Haukur (IP-tala skráð) 16.11.2006 kl. 16:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.