Laugardagur, 4. nóvember 2006
TAKK FYRIR KVÖLDIÐ Bylgja og Sigfús :) :)
Já í gær fórum við skötuhjúin út að borða með Bylgju og Sigfúsi en Bylgja var að vinna með mér á Rofaborg og þau búa núna í Aarhus. Þetta var rosa fínt kvöld , en við förum á grískan veitingastað í bænum UUMM ROSA GOTT. Já og þetta var líka 1. barnlausa kvöldið okkur síðan í MAÍ , en Margrét var í frístundinni þar var svona kvöldvaka og fleira gaman svo að sjálfsögðu nýttum við tækifærið og drifum okkur út og ekki var verra að fá að njóta félagsskapar skötuhjúanna frá Aarhus
Eftir að hafa troðið í okkur ljúffengum mat var komin tími að sækja Margréti svo var haldið heim og spjallað þar til vinna kallaði hjá mér, skutlaði ég þeim á lestarstöðina og hélt svo til vinnu
Og það var hreynt út sakt BRJÁLAÐ að gera
í alla nótt, lítið sest niður þá 7 tímana en fyrir vikið leið tíminn MJÖG HRATT
Fékk ég svo að sofa til 2 en feðginin fóru í bæinn að kaupa jólaskó á prinsessuna ætlunin var nú að þau ættu líka að kaupa kuldaskó en þeir voru búnir í hennar númeri
en við ættum að geta fundið einhverja í þýskalandi en planið er að halda þangað næstu helgi í jólagjafa ferð , svo kæru ættingjar þið fáið kannski bara eitthvað þýskt í jólagjöf í ár
Jæja ætla að fara að kúra hjá kallinum mínum en við höfum lítið sést síðastliðna daga sökum vinnu hjá okkur báðum
Bið að heilsa ykkur ú bili
Athugasemdir
Takk sömuleiðis fyrir kvöldið:) Maturinn var æði:) kveðja frá Aarhusbúum;) Bylgja Dögg og Sigfús Örn
Bylgja Dögg og Sigfús Örn (IP-tala skráð) 5.11.2006 kl. 12:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.