Sunnudagur, 30. mars 2008
Sunnudagur 30 Mars
Jæja góðan daginn,
Við Margrét erum núna búin að vera 2 í DK síðan á Þriðjudag og gengur allt vel. Við fórum í flug síðastliðinn Þriðjudag kl 15:30. Reyndar byrjaði Flugstöðin á því að eyðilegga Regnhlífarkerruna okkar með að klemma hana á færibandinu hjá sér. Hún var svo illa farinn að ég hirti bara pokan og regnslánna af henni og bað svo um að láta henda henni. Samt ekkert sérstaklega spennandi þegar maður er kallaður upp í hátalara kerfinu á vellinum og beðin að koma í VOPNALEITINA. Jæja en við komust nú samt að lokum í loftið og áleiðis til Köben. Jökull móðurbróðir var á vellinum og beið okkar með bílinn okkar. Við fórum heim til þeirra í Taastrup og þágðum kvöldverð áður en við héldum alla leið til Jótlands (Silkeborg). Þegar við vorum komin rétt Vestur fyrir StórKaupmannahafnarsvæðið byrjaði að snjóa og var snjór meira og minna alla leiðina heim. Vegna snjókomu og seinkunar á vélinni vorum við fyrst komin heim kl 2 um nóttina og áttum bæði að vakna snemma næsta morgun.
Síðan hefur daglegt amstur tekið við og var nóg að gera hjá Margréti í vikunni. Handbolti á fimmtudag og svo handbolta slútt á laugardeginum frá 4-10 um kveldið. Síðan í dag var brunað til Lisbet á suðurjótlandi og náð í hundinn okkar hann Bangsa sem var þar í MJÖG góðu yfirlæti.
Við erum farinn að hlakka til að fá Mömmu heim og litla bróðir. Við fengum reyndar slæmar fréttir af honum frá Íslandi. Ragna fór með hann til læknis og litli kallinn minn var komin með vírus í hálsin. Læknarinir villja reyndar meina að hann sé með bakflæði og það sé orsök þess að hann er ælandi lon og don, ásamt því að honum líði illa í maganum. Hann á að taka einhver lyf næsta mánuðinn og svo eigum við að sjá hvað setur.
Jæja bestu kveðjur frá Feðgininum í ADvej 25.
P.S. Þið megið kvitta í athugasemdir. Gaman að heyra frá fólki.
Athugasemdir
Var bara að kíkja við og lesa fréttir af ykkur þarna hinumegin. Kannast nú alltof vel við þetta fjölskylduleysi þegar betri helmingurinn er á Íslandi og maður að hanga einn hér, en þú ert nú með Margréti með þér svo það er nú allavega helmingi betra;) Bestu kveðjur úr Aarhus frá okkur öllum
Sigfús Örn (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 10:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.