Þriðjudagur 30/10

Já núna er kominn þriðjudagur og ekkert svo mikið að frétta.

Ragna er innlögð á meðgöngudeild Skejby Sygehus og er þar í frekar góðum höndum. Litli Gaurinn er að slaka á og er greinilega sáttur við að bíða aðeins með að koma í heimin og það kannski sem betur fer. Hann má allveg vera aðeins lengur í kúlunni til að vaxa og þroskast. Þannig að við Margrét erum núna þessa dagana heima og stundum okkar vinnu og skóla eins og áður.

Einnig kom Tóta (mamma Rögnu) á laugardaginn og var nú Margrét heldur betur ánægð með að fá ömmu sína aðeins í heimsókn. Hún ætlar að vera hérna í eina viku og núna í vikunni hefur hún sótt Margréti strax eftir skóla þannig að hún hefur ekki þurft að vera í Frístundunni. Svo brunum við inn til Skejby í heimsókn og svo heim aftur. Þetta er nú eins og að vera kominn aftur í vinnu útí Árhúsum.

En við þökkum fyrir mikla kvittun og okkur finnst þetta líka rosalega gaman að fá svona margar góðar kveðjur frá ykkur sem að lesa Blogið okkar og hugsa til okkar.

Jæja Bestu kveðjur úr Silkeborg Kristinn, Margrét og Amma Tóta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært að allt er rólegt,fylgjumst vel með hérna megin, bestu kveðjur.  Linda og Hulda Rún. Oddur biður að heilsa.

Linda (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 23:27

2 Smámynd: Bergþóra Hlíf Guðmundsdóttir

Hæ!

Það er nú gott að hann ákvað að vera þarna inni aðeins lengur. En verður hún Ragna semsagt á meðgöngudeildinni þar til liili ákveður að koma í heiminn?

Bestu kveðjur frá okkur í Vejle

Bergþóra Hlíf Guðmundsdóttir, 31.10.2007 kl. 17:24

3 identicon

Ég er að hugsa til ykkar oft á dag, vonandi er allt ok. Ég sendi ykkur hlýja strauma frá klakanum. Love Fanney

Fanney (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 18:13

4 identicon

Halló

Hugsum til ykkar og sendum kærar kveðjur!

Vilborg frænka og allir strákarnir

Vilborg Eiríksdóttir (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 21:33

5 identicon

Gangi ykkur sem allra best.

Hilsen Sondy

Sondy (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband