BÍLASKIPTI :)

Já nú erum við að fara að skipta um bíl næsta þriðjudag, við erum búin að kaupa TOYOTA AVENSIS ,SOL 99 árgerð og er þetta víst hinn fínasti bíll(reyndar ekki station) en það er GOTT skott Wink 

Kristinn er núna að pakka saman útí Aarhus og byrjar semsagt hér inní Silkeborg á morgun Smile Ég er nú eitthvað betri í grindinni en ég held að það sé einni úr bekknum að þakka þar sem hún er búin að sækja mig við skólann hennar Margrétar á morgnanna og svo keyrir hún mig uppað dyrum eftir skóla. Hún er sjálf búin að ganga í gegnum þetta 3x og veit því hvað þetta er VOOONT.Svo er ég búin að fá lánaðann svona stórann bolta sem ég sit á í skólanum(þá þarf ég ekki að taka minn með) svo kom kennarinn arkandi með dýnu fyrir mig í dag svo að ég get lagst útaf inn á milli, já þær eru sko alveg frábærar þarna í skólanum og reyna að gera allt til að hjálpa mér að klára önnina Smile Ég vona bara að ég haldi áfram að vera þokkaleg og geti klárað önnina en við eigum ekki nema 6 vikur eftir svo það er ansi fúlt að hætta núna og þurfa að byrja uppá nýtt Blush

Margrét er að fara á handbolta  æfingu á eftir og ætlar að sjá hvernig henni líkar það, hún var ekki alveg að fýla körfuboltann en  ég held að það sé líka vegna þess að það voru ekki svo margir þar og einginn á hennar aldri.

Feðginin fóru á fótboltaleik í gær en Kristinn fékk aftur frímiða í mat og alles og bauð dóttirinni með í þetta sinn Grin ég var nú bara heima að slaka á og svo þegar þau komu heim um 20 þá hraut mín á sófanum í bangsi hraut í stólnum HIHI Sleeping bara kósý HIHI.

Nú ætla ég að biðja ykkur um að vinsamlegast KVITTA eftir lesturinn það er SVOOOOO leiðinlegt að blogga og blogga og fá ekkert frá ykkur til baka FrownErrm


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergþóra Hlíf Guðmundsdóttir

Hæ!

Til Hamingju með nýja bílinn. Það er nú gott að það sé stjanað við þig í skólanum ekki veitir af. Svo færðu nú bráðum viku frí er það ekki, Það verður nú gott. Heyrumst síðar.

Kveðja frá genginu í Vejle

Bergþóra Hlíf Guðmundsdóttir, 27.9.2007 kl. 15:45

2 identicon

Hæ, allt gott að frétta úr sveitinni. Hér er er lognið alltaf að flýta sér og vatnið skolar allt. Erum á fullu í framkvæmdum sem er hægt að sjá hér: http://www.flickr.com/photos/aglasnor/sets/72157601238290462/ Húsið er á leiðinni og teiknarinn að klára að teikna grunninn, rafvirkinn er að græja rafmagnið, búið að panta innréttingar, gólfbita og hurðir. Sem sagt allt á fullu. Hlakka til að heyra meira frá ykkkur, kveðja frá öllum hinum í Vegatungu.

Agla Snorradóttir (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 20:58

3 identicon

Hæ hæ,

Sá að þið voruð enn á ný að mynna fólk á að kvitta í athugasemdir hjá ykkur. Ég er nú bara þannig að ég kvitta hér bara í ca. fimmtugasta hvert skipti. Hvað sem því líður þá vill ég nýta tækifærið og óska ykkur til hamingju með "nýja" bílinn.

 Lítið sem ekkert að frétta af okkur hérna heima. Við höfum frestað öllum framkvæmdum fram á vorið og höldum bara áfram að þræla okkur út í vinnu.

 Við þurfum endilega að fara að heyra í ykkur á Skype. Vonum að allt gangi vel hjá ykkur og að þú náir að þrauka út önnina Ragna.

 Kveðja úr Tjaldhólunum, Grímur Bro og Dögg.

Dögg (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband