KRISTINN ÞUNNUR OG MARGRÉT LASIN

Góðann daginn já nú er kallinn þunnur eða var það allavegana í morgun.i Já ég (Kristinn) var með vinnufélagana í hópferð og svo í mat í gærkveldi. Það var þetta líka rosalega gaman og við drukkum svolítið af bjór,breezer, mojhito, brennivín, rauðvín, vískí og kók, hot´n sweet og bitter snafs frá DK. Reyndar lét ég rauðvínið og bjórin duga. Svo var stuð á mínum til miðnættis þegar þeir svo tóku leigubíl frá Silkeborg inn til Aarhusa þar sem veizlunni var fram haldið örugglega langt fram á morgun. En þar sem ég er orðin næstum 30 þá sat ég viljandi eftir í SilkeborgSleeping.

Hérna til morguns vaknaði Margrét með bólgið andlit  eins og hún hafi hreinlega verið kýld í andlitið. Já litla skinnið var komið með eitthvað sem heitir Siliussygdom. Ragna brunaði með hana á læknavaktina og beið þar í 1tima eftir að fá þessa greiningu. Svo var þetta afgreitt af læknis hendi með þessari greiningu og hún svo send heim með þau skilaboð að hún má ekki fara í skólan fyrr en þegar sýkingin er horfin. Við vitum ekki alveg hvað þetta heitir á íslensku en höldum að þetta sé Rauðu hundarnir.Frown

En ég (Kristinn) tók mig svo saman upp úr þynkunni og skellti mér á völlin eftir að búið var að taka til í kotinu. Sigfús tók lestina og við hittumst í bænum og röltum á völlin í 19c og sól þannig að þetta var dásamlegt fótbolta veður. Ekki fannst okkur heldur slæmt að miðarnir sem ég var með giltu í VIP stúkuna. Þar var okkur boðið uppá mat fyrir leik og nóg af drykkjarföngum. Svo í hálfleik fengum við kaffi og rababaratertu ásamt súkkulaði. Já og ekki var heldur slæmt að okkar menn í Silkeborg unnu 3-1 í leik sem þeir hefðu getað skorað 2-3 mörk til viðbótar.

Jæja hef þetta ekki lengra í bili. Bestu kveðjur frá AD vej 25 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ , það er alltaf nóg að gera hjá ykkur. Þið eruð líka súper dugleg að blogga. Það hefur aðeins fjölgað í okkar fjölskyldu, eða um 9 stk. Já hún Skotta var að eignast hvolpa, 10stk. Í öllum skoðunum hjá dýralæknum sáust bara 3 og nr.4 gæti leynst líka. En viti menn 10 stk komu og 9 lifðu af. Hún byrjaði að fæða kl.23:40 þann 12.sept á afmælisdeginum hennar Gerðar og hætti ekki fyrr enn kl.07:14 um morguninn 13.sept.  Skotta er nú svolítið slöpp eftir þetta og er mikið álag að vera með 9 stk á spena.  

Kv. Auðunn , Gerður  , Oliver Nói , Skotta og 9 hvolpar

Auðunn,Gerður og Oliver Nói (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 15:02

2 identicon

Hæ þið öll!

Leitt að heyra með Margréti. Vonandi nær hún sér fljótlega.

Kveðja frá Vejle

Bergþóra og co

Bergþóra (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband