Mánudagurinn 3/9

Jæja þá er aftur komin mánudagur og ný vika að byrja. Rólegheitin sem áttu að vera á laugardaginn breyttust nú og fékk Kristinn einhverja rakettu í rassinn, en við fórum að versla í matinn og svo í Rúmfatalagerinn ogkeyptum þar hillu og bastkörfur í hana fyrir herbergið hennar Margrétar. Svo fór Kristinn heim með allt dótið en við mæðgur kíktum á markað hér uppí skóla "BALLE BÖRNEMARKET" þar voru krakkar að selja notað dót og svo voru skemmtiatriði og þess háttar. Er við komum svo heim þá var farið á fullt í herberginu hjá skvísunni og farið í gegnum alla þessa blessuðu dótakassa sem hún á (hún hefði sko alveg getað selt eitthvað af þessu) en allavegana þá var allt sorterað(einu sinni enn) og svo sett í körfurnar og í fínu hilluna og það er sko ALLT annað að sjá herbergið hjá barninu Wink Kristinn ryksugaði síðan húsið ég þurkaði af (þar sem ég ekki þurfti að beygja mig niður) og svo skúraði bóndinn . Svo rauk hann út og sló garðinn Blikka Já ég sagði að hann hefði fengið rakettu í rassinn HEHE Tounge en nú er allavegana hægt að segja að húsið okkar sé hreynt og fínt (fyrir utan aukaherbergið) sem er næsta mál á dagsskrá. 

Já við eyddum síðan gærdeginum á fótboltamóti og var það bara fínn dagur þrátt fyrir rigningu og stelpurnar unnu engann leik. En þær voru nú samt alsælar með daginn og skemmtu sér vel sem er fyrir öllu. Margrét var mest í marki en hún er ÞRUSUGÓÐ þar ,hún er sko ekki hrædd við boltann Wink

Hún er svo að fara í blóðprufur í fyrramálið og mun ég svo taka hana bara með mér í skólann,þar sem ég tek jú strætó og ég myndi ekki ná í skólann ef ég ætti að fara með hana í skólann hennar og svo aftur niðri bæ.Ég er jú bara til 10:45 í skólanum á morgun svo að þessu er bara reddað svona Wink og er daman ekkert smá spennt að fá að koma með mömmu sinni í skólann og er farin að plana hvaða föt hún ætlar í og hvað hún ætlar að taka með sér HIIHI Tounge

EN jæja nú þarf ég að þjóta með hana í körfubolta skrifa meira síðar InLove

BÆJÓ Í BILI  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband