KÚLUBÚINN ER STRAX FARINN AÐ STRÍÐA FAMILIUNNI :)

Jæja við fórum í sónarinn í gær og lítur allt vel út krílið spriklaði og teigði sig á alla kannta allan tímann EEN þegar við ætluðum að sjá kynið þá hljóp stríðni í krílið og hún/hann setti einfaldlega höndina á milli lappanna HIHI Tounge og var svoleiðis þangað til að ljósan gafst upp. Ég er semsagt kominn 20 vikur núna og er enn sett þann 24/12. Svo  verðum við bara að bíða og sjá hvort þetta er prins eða önnur prinsessa Wink Margréti fannst þetta ótrúlega spennandi og starði á skjáinn allan tímann svo þegar krílið hreyfði sig þá spurði hún alltaf "var þetta ekki vont mamma" ALGJÖR DÚLLA eins og alltaf. Við fengum eina mjög fína mynd sem kemur hér inn vonandi um helgina.

Skólinn heldur áfram og enn er það LESTUR LESTUR og meiri LESTUR en þetta er mjög spennandi allt saman og mjög skemmtilegt í skólanum við erum alltaf frá 8:15 - 13:30 dagurinn er mjög fljótur að líða þar sem efnið er spennandi Wink en svo erum við á launum til 15:15 þar sem ætlast er til að maður læri heimavinnuna jafnvel í   skólanum. Ég hef gert það einu sinni þegar ég var í gati þá vorum við 3 saman að lesa og var það mjög fínnt . Við náum allar mjög vel saman og er þetta allt rosa fínar konur og gaman að spjalla við þær Smile 

Sumarið er LOKS komið til okkar og er búið að vera sól og fínt síðustu daga og er spáð 27c og sól fram á þriðjudag eða lengur Grinenda kominn tími á sumar hér.

ÞIÐ MEGIÐ ALEVEG KVITTA EFTIR LESTURINN.ÞAÐ ER SVO MIIIIIIKLU SKEMMTILEGRA AÐ BLOGGA ÞEGAR  MAÐUR FÆR VIÐBRÖGÐ FRÁ LESENDUM.

En við segjum góða helgi núna og hafið það gott um helgina InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er gott að það er fjör í krílinu. Er ekki sagt að kallar séu alltaf að klóra sér í pungnum ef þeir hafa ekkert annað að gera? Nei, segi bara svona. Það er gaman að sjá að sumarið er að gíra sig upp svona þegar maður fer að huga að því að stinga í tösku og koma sér heim til aarhus, gaman að því:) Bestu kveðjur héðan um þessa verslunarmannahelgi.

Sigfús Örn (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband