Miðvikudagur, 16. ágúst 2006
Hæ hæ
Nú er ég bara heima að taka til og gera fínt í kotinu :0) svo á morgun koma Olly, Haukur og Birta Huld það verður rosa gaman að hitta þau og eyða helginni með þeim, vona bara að veðrið verði gott, en spáin er reyndar ekki sú besta rigning og þrumur
en við getum nú skemmt þeim og okkur þó að það rigni enginn er verri þótt hann vökni
.
Svo á eftir fer ég á hjólinu að sækja stóru stelpuna mína í skólann, en það er sko ekki vandamálið að ná henni niður á kvöldin núna, hún er svo spennt að vakna aftur og fara í skólann það er svo æðislegt hvað hún er að pluma sig vel í skólanum, það skiptir öllu máli að okkur öllum líði vel. Hún er voða spennt að fá Birtu Huld í heimsókn en þær eru mjög góðar vinkonur, svo það verður fjör hjá þeim um helgina
.
Jæja ég ætla að halda áfram að gera fínt.......... sjáumst á morgun Olly & co
knús Ragna
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.