Fimmtudagur, 10. ágúst 2006
Halló halló !!
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ! Grímur og Rúnar Já í dag eiga 2 bræður hans Kristins afmæli en samt eru 4 ár á milli þeirra, svona var þetta vel útreiknað hjá tengdó á sínum tíma hehe.
Ég fór í fyrsta nuddtímann í morgun og hélt gersamlega að manneskjan ætlaði að ganga frá mér lifandi, mér fannst hún vera að ganga á bakinu á mér en hún var víst bara að nota fingurgómana mér var óglatt þetta var svo vont
Margrét er alltaf jafn kát í frístundinni og svo á mánudaginn byrjar sjálfur skólinn en við fengum einmitt kennarann hennar í kaffi í gær, og líst mér rosalega vel á hana, við sátum og spjölluðum, í rúman klukkutíma, hún útskýrði fyrir mér hvernig skólastarfið gengur fyrir sig hjá þeim og er ég mjög ánægð með þeirra stefnur
Annars verður þetta rólegheita dagur hjá mér, enda kemur Svanhildur stóra systir á morgun hún kemur með morgunvélinni svo Kristinn og Margrét verða í fríi á morgun og við brunum til Billund að sækja þau. Ég vona að það verði ekki mikil seinkun á fluginu, en þar sem hún býr UK eru miklar líkur á seinkun, þar sem allt er brjálað þar núna
en vonandi gengur þetta allt snuðrulaust hjá þeim
Athugasemdir
Núna er sko heldur betur að styttast í að við komum, vá hvað okkur hlakkar öllum til. Ég fer eftir helgi til mömmu þinnar og næ í dótið svo ég gleymi því ekki í öllu stressinu..hihhhihih
Frábært hvað Margréti líður vel á frístundarheimilinu og svo er skólinn bara alveg að byrja.....skritið finnst mér að litlu börnin okkar séu að fara í skóla. Skrítið hvað þau eldast eitthvað hratt en við stöndum bara í stað....:O)
Jæja sjáumst bráðum, kv. úr Grafarholtinu
Ollý Björk (IP-tala skráð) 12.8.2006 kl. 17:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.