Föstudagur, 23. júní 2006
til hamingju með sólina íslendingar
jæja það var mikið að þið hin fenguð líka að sjá þá gulu, til hamingju með það hehe.
Þessa viku höfum fengið hvíld frá sólinni, en núna er hún eitthvað að rembast það er 22c núna og sól öðruhvoru fínt :0)
Við ætlum í bæinn á eftir en það er rosastór jazzhátíð í bænum alla helgina(byrjaði í gær) það er víst alltaf mikil stemning í bænum á þessari hátíð en þetta er árlegur viðburður. Það koma fullt af jazzböndum frá ýmsum löndum, spilað er bæði útá götu og inni á stöðunum. Svo eru búðirnar lengur opnar og fullt af tilboðum í gangi :) Þið fáið að frétta síðar hvernig okkur leyst á hátíðina.
Á morgun á svo að bruna inní IKEA og reyna að klára að koma klæðaskápnum í stand (okkar hjónanna). vonandi tekur þetta ekki 4klukkutíma eins og síðasta ark í gegnum IKEA þetta er eingin smá stærð á þessu ALLTOF stórt en mikið og gott úrval hehehe sem er ekki verra þegar mann vantar hitt og þetta. Ég vona að við fáum allt sem vantar í þessari ferð og þurfum ekki í aðra eftir 2 vikur hehe.
Jæja er þetta nú ekki gott í bili , skilum sumar kveðjum til allra
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.