Lokafærsla hér

jæja þá erum við komin heim til íslands og þá ætlum við að hætta að skrifa hér inn og nota eingöngu barnalandið.
Ferðalagið gekk allt saman vel og komumst við klakklaust heim :) ég sit hér á Brautarhóli Kristinn er að vinna Margrét er með vinkonu í heimsókn og strákarnir sofa úti.
Margrét byrjaði í skólanum í gær og eignaðist strax 2 vinkonur og eru þær búnar að vera hér að leika í allan dag en það er frí í skólanum á föstudögum LÚKSUS bara í sveitinni HEHE Bjarni Harald heimsótti leikskólann í dag og leist svo vel á að hann vildi ekkert heim aftur hann byrjar svo í aðlögun á mánudaginn. Mér líst rosa vel á leiksólann og erum við bara alsæl með þetta allt saman. Það er frábært hvað krakkarnir eru að aðlagast vel :)
Gámurinn kemur svo vonandi í næstu viku og þá er bara að koma sér fyrir og gera kósý :) tengdó eru búin að gera voða kósý hjá sér í "gamla"bænum en eru ekki flutt enn en gera það líklegast bara þegar gámurinn kemur.
Við erum komin með GSM Kristinn 896 7003 Ragna 896 7004 Margrét 84489888 svo sláið bara á þráðinn :)
Bæjó

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergþóra Hlíf Guðmundsdóttir

Gott að heyra að allt gengur vel. Hafið það rosalega gott í sveitinni og vonandi náum við að kíkja á ykkur í sumar :)

Knús í hús

Bergþóra og co

Bergþóra Hlíf Guðmundsdóttir, 7.3.2010 kl. 16:47

2 identicon

Frábært að allt gengur vel hjá ykkur. Lúxus í sveitinni hjá Margréti á föstudögum, nú getur hún sofið út á föstudögum - nice;) Ég segi eins og Bergþóra, ég vona að við getum komið og kíkt á ykkur í sveitinni í sumar. Rakel Talía sagði að hún ætlaði að fara í flugvél til Íslands og hitta Margréti.

Hilsen á ykkur sveitafjölskylda frá Aarhusliðinu.

Bylgja Dögg og co. (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband