Færsluflokkur: Bloggar

Halló halló !

Jæja þá er þessi vinnuhelgi á enda, en ég er búin að fá frí í kvöld svo að ég geti nú sinnt Margréti á morgun, ég get bara ekki keyrt mig áfram allan sólarhringinn Ullandi reyndar voru það nú eiginlega samstarfs konur mínar sem ákváðu að ég myndi vera heima í kvöld Glottandi En ég var nú ekki svo kát þegar ég kom heim í morgun og skreið uppí á milli feðgininna, en þegar ég kom við prinsessuna fann ég að hún var SJÓÐANDI HEIT Öskrandi EKKI GOTT. Ég hringi svo í lækninn á morgun og fæ þá að vita hvað á að gera fyrir hana Glottandi en þetta er svo skrítið hún er alveg þokkalega hress á daginn en svo þegar líða fer á kvöldið er hún komin í keng og kvartar mikið undan verkjum, nú er henni einnig farið að svíða við þvaglát Fýldur ég vona svo ynnilega að hún fari að hressast og að ég fái einhver svör úr prufum ogn þess háttar sem fyrst.

Við hjónin vorum svo dugleg í dag og þrifum litla kotið okkar Hlæjandi maður verður nú að gera það öðruhvoru hi hi.  Það er búið að rigna ansi duglega hér um helgina en hitinn er enn fínn eða 15c , haustlitirnir eru farnir að láta sjá sig og er mjög fallegt að sjá þá hér í skóginum okkar Glottandi.

Vonandi hafið þið það sem allra best kveðja frá Dalsvinget 54 


Margrét lasin :(

Já litla prinsessan okkar er enn lasin í maganum Fýldur nú eru það orðnar 2 vikur sem hún er búin að vera með uppköst öðru hvoru og niðurgang Öskrandi Ég fór með hana til læknis aftur áðan og tók hún blóðprufur og svo á ég að hringja í hana á mánudagsmorgunn og gefa henni skýrslu eftir helgina , ef Margrét verður enn með niðurgang og yllt í maganum um helgina þá þarf hún að fara í ransóknir á spítalanum á mánudaginn Óákveðinn svo nú er bara að krossa fingur um að hún lagist fljótt Glottandi Hún grét undan magaverkjum í gærkvöldi litla skinnið og hefur legið og haldið um magann í morgun Óákveðinn ekki svo gott. svo nú þarf ég að reyna að leggja mig í kvöld þar sem ég fékk heilan 3 tima svefn í dag Ullandi og vinnuvikan rétt að byrja Óákveðinn en ef hún er mjög slæm þá hringi ég mig nú bara veika Skömmustulegur kristinn svaf lika illa í nótt vegna þess að hún hafði það ekki svo gott, svo það er bara málið að fara snemma í rúmið í kvöld og safna kröftum Glottandi

Annars segjum við bara góða helgi , og verið nú duglegri að kvitta fyrir ynnlit ykkar Hlæjandi


Vinnuvika framundan !!

Já þá er þessi frívika á enda og vinnan kallar á ný í kvöld, það er nú bara fínt Glottandi Margrét er enn eitthvað slöpp í maganum en hún gubbaði aftur í fyrrinótt og í gærmorgun Öskrandi veit ekki alveg hvað er í gangi hjá henni greyinu. Við fáum nú vonandi einhver svör úr prufunum á morgun. Hún er nú samt eitthvað búin að borða núna og er að hressast vona ég. Vonandi getur hún farið í Frístundina á morgun og hitt vinkonurnar Hlæjandi

Annars átti hún Birta Huld vinkona Margrétar afmæli í gær ( dóttir Olly vinkonu minnar) Til hamingju með daginn elsku Birta Huld og vonandi geturðu notað þetta smotterí sem við sendum þér Hlæjandi vonandi áttirðu góðan dag í gær Hlæjandi

Já svo fáum við heimsóknir í desember Hlæjandi þetta virðist koma svona í törnum hjá okkur, en Grímur og Dögg eru að stefna á að koma um mánaðarmótin nóv-des , svo ætlar Oddur Bjarni að koma 16-22 des og svo koma mamma og pabbi 23-30des = GAMAN GAMAN Glottandi það er alltaf svo gaman að fá heimsóknir frá Íslandi. Okkur er nú bara farið að hlakka til að sjá allt skreytt hér í Silkeborg og sjá hvernig danirnir höndla desember stressið Glottandi ég sá nú á bloginu hjá Fanney vinkonu að það er búið að skreyta í IKEA og RÚMFATALAGERNUM ÚFF ÚFF soldið tímanlega í þessu þar á bæ hi hi. Þeir eru ekki alveg svona tímanlega í þessu í Rúmfatalagernum hér úti he he. En það kemur fyrr en síðar Glottandi 

Jæja þá er komið nóg af bulli í bili, bið að heilsa ykkur ,Ragna 


Komið " efterarsferie" :)

Já nú er komið viku frí í skólanum hjá Margréti, við fórum í bæinn í morgun, byrjuðum í nuddi, en vitiði bara hvað ? nuddarinn minn er hættur !!! svo ég fékk nýja í dag, sem mér líkar eiginlega bara betur við  Hlæjandi svo það er bara í lagi( hún kann meira að seigja að seigja nafnið mitt rétt) Glottandi en það eru sko ekki margir sem kunna að bera fram nafnið mitt Óákveðinn Jæja við mæðgur kíktum svo aðeins í búðir, erum að leita af góðum kuldaskóm fyrir hana og ÚFF ÚFF hún er komin á erfiðan aldur, það má ekki vera svona og ekki hinsegin, fyrir 2 árum keypti ég það sem mér fannst flott en nú er það sko ekki hægt lengur, ef ég myndi kaupa eitthvað sem henni fynnst ekki flott þá myndi hún bara einfaldlega EKKI nota það Koss en svona er þetta. Svo er hún nú farin að fá nóg af BLEIKA litnum nú segir hún ooojjjjjj mamma þetta er ALLTOF bleikt hi hi já þetta er fljótt að breitast.

Margrét fékk vinkonu sína í heimsókn í gær og voru þær rosa góðar að leika, þangað til svona 5 mín áður en pabbi vinkonu hennar kom að sækja hana þá bara HURFU þær Hissa við vorum hér úti að leita að þeim með pabba hennar í svona 15mín EKKI þægilegt pabbi hennar var komin langt inní skóg að leita, svo komu þær röltandi í rólegheitum og bara skildu ekkert afhverju við vorum að kalla á þær Hissa þær höfú semsagt heyrt í okkur allan tímann en bara voru ekkert að koma Öskrandi Margrét fékk aðeins að kenna á gjörðum sínum en hún veit að hún má ekki fara frá húsinu án þess að láta okkur vita , þær voru búnar að fá leyfi til að vera í rólu hér í skóginum við hliðina en svo þegar það átti að sækja hina voru þær horfnar EKKI VINSÆLT og við vonum að vinkona hennar fái nú að koma aftur að leika Glottandi

Jæja nú ætla ég að vera SÚPER dugleg og baka með dóttirinni en hún er búin að suða um það í nokkra daga og nú erum við í fríi svo að það er nógur tími til baksturs og annars stússirí Hlæjandi 

Bið að heilsa ykkur í bili knús Ragna og hinir í Dalsvingetinu 


Bangsi á Afmæli

Já litli loðni hundurinn okkar átti víst 3ja ára afmæli núna 10okt. En það var svo mikið að gera hjá okkur og Margrét hefur verið lasin að við gleymdum að halda uppá það þá. Hann fékk í staðinn spagetti með skinku í gær og var sungið fyrir hann og svo fékk hann afmælispakka. Hann var voða kátur en ég held að ölið sem að Ragna helti í dallinn hafi verið hápunkturinn á afmælisveislunni hans. Honum finnst sopinn góður alveg eins og húsbóndanum á heimilinu.

Annars er bara róleg helgi framundan til að Margrét nái sér á fullu en hún hefur líklega fengið einhverja síkingu og virðist orðin vel hress í dag. Ragna er á fríhelgi og er kát með það. Annars er nóg að gera og erum við byrjuð á að föndra og undirbúa jólin. Enda ekki nema 71dagur til jóla.

Jæja biðjum fyrir kveðjum og vonum að þið látið í ykkur heyra.  Familian Dalsvinget.

P.S Nýjar myndir eru komnar inn. 


Margrét lasin :(

Já hún er ENN lasin litla skottið, en nú er hún búin að vera með niðurgang í viku og mikla magaverki með Öskrandi svo í morgun byrjaði hún að kasta upp, og hélt engu niðri, var náföl og mjög slöpp Fýldur ákvað ég því að hringja í læknirinn okkar og ætlaði að fá einhver góð ráð, en hún vildi bara fá að sjá hana. Hún var svo slöpp að hún sofnaði í fanginu á mér á biðstofunni en það hefur ALDREI gerst áður. Læknirinn telur að hún sé með einhverja bakteríu síkingu Óákveðinn svo að við þurfum að taka sýni um helgina og fylgjast vel með henni. Vona ég nú að hún hristi þetta af sér sjálf um helgina Skömmustulegur Fórum við svo í FÖTEX og keiptum orkudrykki,snakk og kók en það er það sem læknirinn mælti með, svo auðvitað epli og safa,fékk sjúklingurinn svo að velja sér videospólu í verðlaun þar sem hún var mjög dugleg í læknisskoðuninni, fyrir utan smá öskur þegar hún ýtti á vissa staði á kviðnum Öskrandi litla skinnið. Svo að það verður rólegheita helgi hjá okkur Glottandi 

EN vitið þið hvað ? við höldum að við séum að losna við nágranna okkar JIBBBÍ JEI en þeir sem ekki vita erum við MJÖG óheppin með nágranna , BÖLVAÐAR FYLLIBITTUR ,öskra mikið á hvort annað og fleira þess háttar, og við heyrum allt saman Öskrandi Margrét er skýthrædd við þau. En allavega þá voru þau að bera eitthvað dót í flutningakerru í dag Hlæjandi svo við vonum að þau séu að flytja Hlæjandi

En nú held ég að hafi bara ekkert fleira að segja svo ég kveð í bili , kveðja RAGNA 

 

 

 

 


Enn eitt námskeiðið :)

Í dag þurfti ég að mæta á námskeið sem tilheyrir tölvuvinnu Óákveðinn ekki beint mitt áhugasvið, en þar sem allt er tölvuvætt í vinnunni er nauðsinlegt að kunna á kerfið. Þetta gekk nú ágætlega en það getur verið að við þurfum að mæta aftur og fara betur í þetta Óákveðinn hin sem er með mér á næturvöktunum er líka nýbyrjuð og hún hefur ALDREY komið nálægt tölvum ÚFF ÚFF svo að það er eins gott að ég hafi náð að festa eitthvað í minninu í dag Glottandi  Annars átti ég bara fínan dag heima að gera það sem ég NENNI ekki að gera í vinnuvikum = þvo þvott og þess háttar svo á að þrífa á morgun Ullandi En þeir sem þekkja okkur vita að þvottahúsið er BANN svæði fyrir Kristinn þar sem ég vill að fötin fái að halda sínum lit Hlæjandi annars er hann duglegur að halda fínu og rykmoppar og þessháttar þegar ég á vinnuviku Glottandi svo er Margrét orðin svakalega dugleg í heimilisverkunum, hún heldur sínu herbergi í röð og reglu og fær 5 krónur danskar á viku fyrir, svo stakk hún SJÁLF uppá því að hún tæki alltaf útúr upþvottavélinni, var það samþikt og hún fær þá 10 krónur á viku Hlæjandi Hún verður alveg ÆF ef ég voga mér að taka sjálf úr vélinni (fyrir hverju ætli hún sé að safna ???) 
Annars var fyrsti úlpudagurinn í dag en Margrét fór í úlpu og húfu í skólann í morgunn = KOMIÐ HAUST  Biðjum að heilsa öllum Klakanum Familien Dalsvinget 54 HlæjandiKossKoss


Jæja þá er ég komin í frí :)

Já það er gott að vera komin í smá frí, nóttin í nótt var frekar skrítin Óákveðinn vegna þess að kallkerfið hjá okkur var bilað sem þýðir það að gamlafólkið gat ekki hringt á okkur ef eitthvað var að Fýldur við þurftum þess vegna að taka EXTRA rúnta og kíkja á ALLA, því margir eru jú með astma og hjartveikir og þess háttar þess vegna er nauðsynlegt að kikja inn x3 á nóttu þegar kerfið er bilað. Við máttum semsagt vera á hlaupum í nótt, en allir sváfu vært og rótt,og sem betur fer kom ekki neitt alvarlegt uppá Glottandi

Svo er nú prinsessan á bænum búin að vera heima í gær og í dag því hún er búin að vera tæp í maganum, og þá er nú ekki hægt að senda hana í skólann Fýldur = ekki mikill svefn hjá mér, en þið sem þekkið Margréti  vel vitið að hún er nú dugleg að dunda sér svo að ég gat nú dormað Glottandi svo er hún nú með bæði CARTOON NETWORK og DISNEY CHANNEL sem kemur sér VEL þegar svona er. Svo að í morgun var góði svefnsófinn okkar notaður sem rúm og ég HRAUT þar meðan hún kikti á tv og video Hlæjandi en hún er nú að hressast og getur farið í skólann á morgun.

Ég var að fá jólaföndur bók í pósti svo að nú getum við farið að byrja að föndrast fyrir jólin, fékk fullt af góðum hugmyndum við fyrstu skoðun Hlæjandi það er svo gaman að föndra, sérstaklega fyrir jólin. Svo þarf að fara að hanna jólakortin og byrja á þeim , það  tekur nú sinn tíma að skrifa 50 jólakort Brosandi en við erum ekki alveg búin að ákveða í hvaða formi þau verða í ár, svo þið verðið bara að bíða og sjá. 

Jæja verið DUGLEG KVITTA í GESTÓ það er svo gaman að vita hver er að kikka á síðuna Hlæjandi það er ekki það að við séum eitthvað forvitin HE HE HE HE

Við sendum ykkur öllum KNÚS OG KRAM héðan úr DK.

 


Hæ Hæ

Jæja og já þá er 1. vinnuhelgin búin, feðginin voru rosalega busy að leika sér og hafa það kósý svo ég gat sofið vel á milli vakta Glottandi reyndar fékk Margrét eitthvað í magann á föstudagsdkvöldið svo að hún fór ekki á Fimleikaæfingarhelgina Fýldur en hún var bara slöpp og illt í maganum, en svona er þetta. Hún er búin að jafna sig og fór hress og kát í skólann í morgun Hlæjandi svo sótti Kristinn hana og svo hélt hann til vinnu á kvöldvakt , þannig að við munum hittast í útidyrunum í kvöld (hann að koma ég að fara) en það eru nú bara 2 vaktir eftir af þessari törn það verður GOTT að fá smá frí.

Jæja held að þetta sé nú bara kokmið í bili bið að heilsa ykkur, Ragna 


Komin Helgi.

Jæja nú er loks komið helgar frí hjá mér (Kristinn)Ullandie

Ekki eru samt allir í Familiunni svona lukkusamir, því Húsmóðirinn á Vakt um helgina. Við Margrét ætlum að eiga góða helgi saman og leika okkur svolítið. Hún var nefnilega að kvarta yfir að ég léki mér ekki nóg. Hlæjandi Við ætlum að sjá hvort ekki sé hægt að leika með Lego, Dýr og Barbie allt í einu????

Annars á hún að mæta á Dansæfingar helgi/prógram í fimleika hópnum sínum. Allar stelpurnar í fimleikafélaginu mæta og hafa gaman saman. Svo verður bara slakað á, Sunnudags maturinn verður Lambalæri "ala" Mamma (frá NEW ZEALAND) með brúnuðum kartöflum og tilheyrandi. (NAMMMMMM)

Annars erum við að fá Loksins Haust veður núna og hitinn er kominn í aðeins 12-15c og það rignir nokkuð (minnir einna helst á EKTA ÍSLENSKT sumar). Erum búinn að vera einstaklega heppin það sem af er sumri. Þvílíkir hitar og sól. Það verður erfitt að snúa heim héðan af vegna þess að maður gæti aldrei notað allar þessar stuttbuxur á ævinni heima á skerinu.Svalur (búinn að kaupa aðeins af þeim)

Jæja bið að heilsa og vonandi hafið þið það sem best.

Familian Dalsvinget  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband